Þjóðlíf - 01.06.1989, Blaðsíða 9
INNLENT
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstœðisflokksins vill að Davíð Oddsson
borgarstjóri verði íframboði til þings í nœstu kosningum. Sjálfstœðisflokkurinn
sem fagnar sextugsafmæli á þessu ári hefur komið veí út úr skoðanakönnunum
að undanförnu og forysta flokksins hefur styrkst. í viðtalinu við Þjóðlíf er
Þorsteinn ómyrkur í máli um pólitíska andstæðinga sína og stjórnmálaástandið í
landinu. En afmœlisbarnið, Sjálfstœðisflokkurinn, er fyrst til umrœðu:
Sjálfstæðisflokkurinn er sextugur á þessu
ári. Hann hefur löngum verið stærsti og öfl-
ugasti flokkurinn í landinu. Margir telja að
hann eigi góðu gengi sínu að þakka „breiðri
ímynd“, þ.e. að flokkurinn hafi í senn verið
þjóðlegur, haldið uppi merkjum einstak-
lingsfrelsisins en um leið haft á sér sósíalde-
mókratískan svip. Getur þú fallist á þessa
skýrgreiningu í grófum dráttum?
— Já í grófum dráttum getur maður sagt
að flokkurinn sé breiðfylking og á það hefur
verið lögð áhersla frá upphafi. Hann var
stofnaður með samruna Ihaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins og megináherslurnar
voru þá á einstaklingsframtak, samvinnu
stéttanna og þjóðernisþáttinn. Krafan um
lokaskrefið í sjálfstæðisbaráttunni setti svip
sinn á upphafið, en Sjálfstæðisflokkurinn
hafði þar forystu. Þar liggja djúpar sögulegar
og menningarlegar rætur í Sjálfstæðisflokkn-
um.
— Það má svo segja að nokkru seinna —
kannski tíu til fimmtán árum síðar, taki
flokkurinn að leggja áherslu á félagsleg við-
horf, viðhorf sem þú kallar sósíaldemókrat-
ísk. Enn síðar verða utanríkismálin veiga-
mikill þáttur í störfum flokksins, allt frá
bernskudögum lýðveldisins, er sú utanríkis-
stefna var mótuð, sem Islendingar hafa síðan
fylgt.
Margir telja að þessi „breiða ímynd“ hafí
máðst út á síðustu árum, vegna þess að tals-
menn flokksins hafí verið með of einhliða
9