Þjóðlíf - 01.06.1989, Page 33
ERLENT
HVERJIR KOMU HITLER TIL VALDA?
Stuttu eftir
heimstyrjöldina fyrri
var stjórnarskrá nýja
þýska lýðveldisins
samþykkt í borginni
Weimar.
Weimarlýðveldið
einkenndist af
miklum pólitískum
átökum jafnt innan
sem utan
þjóðþingsins,
Ríkisdeginum. Margir
telja að endalok
Weimarlýðveldisins
hafi verið 30. janúar
1933, en þá tók
samsteypustjórn
Hitlers til valda. Þessi
stjórn hófst þegar
handa við að brjóta
lýðveldið á bak aftur.
Kveikt var í
Ríkisdeginum þann
27. febrúar sama ár
og eftir það var
lýðveldið orðið að
rjúkandi rústum.
50 flokkar — 21
stjórn
Að lokinni heimsstyrjöld-
inni fyrri ríkti mikil þjóðfélags-
leg upplausn í Þýskalandi, sem
mótaðist af andstöðu við völd
keisara og hers, andstöðu við þau
öfl, sem leitt höfðu þjóðina út í
stríð og beiskan ósigur. Henni
lyktaði með afsögn keisarans,
Vilhjálms II, 9. nóvemberl918.
Var þá mynduð bráðabirgða-
stjórn í landinu undir forystu jafn-
aðarmanna, sem hafði síðan for-
Þýskar sagnfrœðirannsóknir
varpa nýju Ijósi á fall
Weimarlýðveldisins en á
þessu ári eru sjötíu ár liðin
frá stofnun þess.
Árið 1989 er tímamótaár í þýskri sögu: 50 ár
eru liðin frá upphafi heimsstyrjaldarinnar
síðari, 75 ár frá upphafi heimsstyrjaldarinn-
ar fyrri, 100 ár frá fæðingu Adolfs Hitlers og
70 ár frá stofnun Weimarlýðveldisins.
Weimarlýðveldið lifði aðeins í fjórtán ár.
Endalok þess má setja við 30. janúar 1933,
þegar samsteypustjórn Adolfs Hitlers tók
við völdum. Þessi stjórn hófst þegar handa
við að brjóta lýðveldið endanlega á bak aft-
ur, þótt mjög hafi verið tekið að hrikta í
stoðum þess áður.
Weimarlýðveldið, 1919-1933, hefur verið
nefnt „lýðveldi án lýðveldissinna“ og víst er
að þau þjóðfélagsöfl sem héldu þvf uppi urðu
stöðugt veikari er á leið. Hin pólitísku átök
voru gífurleg: fimmtíu flokkar og 21 ríkis-
stjórn á fjórtán árum segja sitt um það.
Weimarlýðveldið hefur löngum
verið mikið rannsóknarefni sagn-
fræðinga, enda víst að fá tíma-
bil í sögu nokkurrar þjóðar
eru jafnmargslungin og þessi
fjórtán ár í þýskri sögu. Nýj-
ustu rannsóknir hafa
hnekkt ýmsum útbreiddum
misskilningi um sögu
Weimarlýðveldisins, og
mikilvægir hlutir eins og
það hverjir studdu nasista
og hverjir ekki, hverjir
voru hinir raunverulegu
fjandmenn lýðveldisins og
hverjir fólu Hitler völdin í
hendur, virðast nú betur
skýrðir en áður.
33