Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 22
KONUR
ANDSNÚNAR
EB
Sœnskar konur andsnúnar Evrópubandalaginu. Aratugalöng barátta þeirra fyrir
efnahagslegu og félagslegu sjálfstœði í húfi? Sœnska velferðarkerfið í hættu?
GUÐBJÖRG LINDA RAFNSDÓTTIR SVÍÞJÓÐ
Ýmiss kvennasamtök hafa snúist gegn
aðild Svíþjóðar að EB. Þess er krafist að
umræðan um aðildina verði a.m.k. ekki
eingöngu út frá sjónarhóli fyrirtækjanna,
eins og hefur verið áberandi hingað til,
heldur einnig út frá sjónarhóli hins al-
menna borgara og þá ekki síst kvenna,
sem eiga sérstaklega undir högg að
sækja.
Fjórir stærstu flokkar sænska þings-
ins, Jafnaðarmannaflokkurinn,
Hægriflokkurinn, Þjóðarflokkurinn og
Miðflokkurinn hafa tekið höndum saman
í afstöðunni til Evrópubandalagsins. Þeir
vilja vinna að því að Svíar gangi í Evrópu-
bandalagið og að umsókn um aðild verði
lögð fram jafnvel fljótlega á þessu ári. Um-
hverfisflokkurinn og Vinstriflokkurinn
(sem hét þar til á síðasta ári Vinstriflokk-
urinn — kommúnistarnir) hafa verið and-
snúnir aðild að Evrópubandalaginu og
segja meðferð málsins hneykslanlega, þar
sem snögg stefnubreyting þingsins komi í
veg fyrir að almenningi gefist tækifæri til
að hafa áhrif á gang mála.
Sú spurning sem brennur hvað heitast á
Svíum er hvort væntanleg innganga í
Evrópubandalagið samrýmist hlutleysis-
stefnu Svíþjóðar. Starfshópur í utanríkis-
ráðuneytinu sem fjallað hefur um málið
telur þátttöku í Evrópubandalaginu ekki
þurfa að brjóta í bága við hlutleysisstefn-
una. Starfshópurinn telur þó að þetta sé
eitt af því sem athuga þurfi nánar áður en
umsókn um aðild verði send til Brussel.
Ýmiss samtök kvenna hafa tekið harða
afstöðu gegn inngöngu Svía í Evrópu-
bandalagið og gagnrýnisraddir hafa verið
áberandi á fundum og ráðstefnum sem
fjalla um áhrif Evrópubandalagsins á
stöðu sænskra kvenna. Evrópubandalag-
inu er líkt við stóran karlaklúbb, þrátt
fyrir að meirihluti félaganna sé konur. Það
þykir lýsandi fyrir áhrifaleysi kvenna inn-
an EB að á þingi þess eiga konur aðeins 6
prósent sæta. Sumir hafa tekið svo djúpt í
árinni að halda því fram að með inngöngu
Svía í EB yrði grundvellinum kippt undan
efnahagslegu og félagslegu sjálfstæði
sænskra kvenna. Astæður þessa eru sagð-
ar margar.
að er bent á þá staðreynd að atvinnu-
leysi er mun meira í löndum Evrópu-
bandalagsins en í Svíþjóð. í dag eru yfir
sjö milljónir kvenna skráðar atvinnulausar
í ríkjum Evrópubandalagsins. Atvinnu-
leysi meðal kvenna er tvöfalt meira en
karla. Sameinist atvinnu- og viðskipta-
markaður Svía mörkuðum Evrópubanda-
lagsins, er sú hætta fyrir hendi að atvinnu-
leysi í Svíþjóð verði líkt og er í EB-ríkjun-
um. Og þá er voðinn vís fyrir sænskar
konur. Það er söguleg staðreynd að at-
vinnuleysi kemur harðar niður á konum
en körlum. Sá forgangur sem karlmenn
hafa á vinnumarkaðnum styrkist enn við
aukið atvinnuleysi. Hætta er á að aukin
samkeppni á vinnumarkaðnum geri
launakjör kvenna verri og auki efnahags-
legt ósjálfstæði þeirra. Þessu til stuðnings
er bent á að í Danmörku hafa meðallaun
kvenna lækkað síðan Danmörk gerðist að-
ili að EB.
Svíar viðbúnir flóttamannastraumi frá Sovétríkjunum
Búist við að á milli 5 og 50
vestur á bóginn á
Svíar búa sig nú undir að taka á móti
mörg hundruð þúsund umsóknum um
landvistarleyfi frá sovéskum flótta-
mönnum. Sænsk stjórnvöld óttast, að
ef ekki verði gripið til neyðarráðstaf-
ana sem fyrst, muni fjöldi flóttamanna
streyma til Svíþjóðar með vorinu.
Ástæðurnar eru mikill skortur á mat-
vælum sem virðist ætla að hrjá Rússa og
ferðafrelsið sem Sovétmenn hafa nú
fengið. Þetta hefur orðið til þess að
nokkur ríki í Vestur-Evrópu búa sig
undir mikinn straum flóttamanna úr
milljónir Sovétborgara flýi
nœstu misserum!
Austri. Búist er við að á bilinu 5 til 50
milljónir Sovétmanna flýi vestur á bóg-
inn á næstu misserum.
Talið er að matvælaskorturinn verði
sérlega mikill f Rússlandi, einkum í
nánd við Eystrasaltslöndin. Það gæti
haft í för með sér flótta nokkurra mill-
jóna manna til þessara landa. Þar sem
Eystrasaltslöndin geta þó tæpast tekið
við svo miklum fjölda flóttamanna, ótt-
ast Svíar að hluti þeirra haldi áfram yfir
Eystrasaltið og til Svíþjóðar.
GLR/Svíþjóð
22 ÞJÓÐLÍF