Þjóðlíf - 01.01.1991, Qupperneq 43

Þjóðlíf - 01.01.1991, Qupperneq 43
og tekst ekki að halda áhorfandanum við efnið. Líkleg ástæða fyrir þessu er að handritið er ekki nógu íburðarmikið fyrir heila kvikmynd. Leikarahópurinn vinnur vel saman og gefur hann sannfærandi mynd af persónunum. Egill Ólafsson, í hlutverki hins dularfulla Péturs, sýnir stjörnuleik og sannar enn á ný að hann er einn besti kvikmyndaleikarinn sem við eigum. Kvikmyndatakan gefur rétta stemningu og lýsing er náttúruleg og fal- leg. Klippingin er ein sú besta sem sést hefur í íslenskri mynd og sá Skafti Guð- mundsson um hana ásamt aðstoðarfólki. Það er leikstjórn og tæknivinna sem gera RYÐ að einni þéttustu og fagmannlegustu kvikmynd okkar. Sýnd í Regnböganum Tryllt ást (Wild at Heart) - **** Vítamínsprauta örvandi efna beint í æð. David Lynch er bjartasta von þeirra sem hafa unun af hinu óvenjulega. Við fylgjumst með einu ástríðufyllsta pari kvikmyndasögunnar, leikin frábærlega af Nicolas Cage og Laura Dern, og ferðum þeirra í Ameríkunni sem ekki er sýnd í auglýsingum. Það er enginn venjulegur í myndinni og allra síst Bobby, leikinn af Willem Dafoe, sem er einn af þeim ógeð- felldari. Hann er í hlutverki sem hann hefur bersýnilega unun af að leika og minnir mann óneitanlega á voðamennið Frank Booth sem Dennis Hooper lék í síðustu mynd Lynch, Blue Velvet. Ur- vinnsla á Trylltri ást er hrá og villt eins og aðalpersónurnar eru, klippingin frumleg og tónlistin mögnuð. Lynch gerði hand- ritið af Wild at heart eftir samnefndri bók Barry Gifford. Sýnd í Háskólabíó Tryllt ást er ein af þeim bestu. Laura Dern og William Dafoe í hlutverkum sínum. Þrenningin úrBaker bræðrunum íellefta sæti. Hinrik V (Henry V) - ***172 Samstarf ‘ William Shakespeare og Kenneth Brannagh hefur getið af sér athyglisverða mynd. Hún einkennist af frumlegri og líflegri uppsetningu og einstökum leik fjölda margra af bestu leik- urum Bretlandseyja. Kenneth stýrir þess- um mikla hóp af stakri prýði og leikur sjálfur Hinrik af svo miklum krafti og sannfæringu að ég fylltist geðshræringu aftur og aftur meðan á myndinni stóð. Helsti, ef ekki eini, vankanturinn var lengd vissra bardagaatriða þar sem sömu atburðirnir virtust endurteknir hvað eftir annað. Hinn reyndi leikari Derek Jacobi fer með hlutverk sögumannsins sem kynnir persónurnar og leiðir áhorfandann milli atburða, frá ákvörðun Hinriks að endurheimta Frakkland fyrir enska kon- ungsvaldið og fram að lokabardaganum og trúlofun konungsins unga og dóttur hins aldraða konungs Frakklands. Eg hvet eindregið alla þá sem unun hafa á verkum Shakespeares og góðum kvikmyndum að fara og skoða útgáfu Kenneth Brannagh á Hinriki V. Sýnd í Háskólabíó. 0 ÞJÓÐLÍF 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.