Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 41

Fréttatíminn - 23.01.2015, Page 41
heilsa 41Helgin 23.-25. janúar 2015 F lensa virðist vera óhjá-kvæmilegur fylgifiskur janúarmánaðar, en flensa er líklega algengasta heilsufars- vandamálið sem við mannfólkið glímum við. Þegar kalt er í veðri eyðum við meiri tíma innanhúss og um leið erum við meira innan um fólk með kvef og hósta og það eykur líkurnar á smiti. Þó svo að það sé ekki hægt að koma alger- lega í veg fyrir kvefsmit þá er hægt að draga úr líkum á smiti, til dæm- is með því að láta bólusetja sig gegn inflúensu, þvo sér reglulega um hendurnar, drekka nóg af vatni og stunda hreyfingu reglulega. Þegar flensan hefur hins vegar náð yfirhöndinni er gott að hafa í huga nokkur atriði sem geta dreg- ið úr flensueinkennum og hjálpað okkur að ná heilsunni á ný. Ólífulaufsþykkni: Hefur verið kallað pensilín nútímans. Talið er að ólífulaufs- þykkni, sem unnið er úr greinum ólífutrjáa, trufli ákveðna amínósýruframleiðslu sem er nauðsynleg til þess að bakteríur og veirur nái sér á strik. Ólífulaufsþykkni er meðal annars fáanlegt á töfluformi. Sólhattur: Styrkir ónæmiskerfið og vinnur á sýklum, án þess þó að hafa slæm áhrif á meltinguna, líkt og sýklalyf eiga til með að gera. C-vítamín: Fjöldi rannsókna sýna að 1000 mg af C-vítamíni á dag draga úr einkennum kvefs og stytta þann tíma sem sjúkdómurinn varir. Te: Engiferte er gott við hósta og kvefi á byrjunarstigi. Engifer er mjög hitagefandi og gott fyrir blóðstreymið. Til að fá extra hita í kroppinn má bæta cayennepipar á hnífsoddi saman við teið. Góð ráð gegn flensu Hvítlaukur: Hefur styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið, auk þess sem margt bendir til að hann hafi einnig vírusdrepandi eiginleika. Góður svefn: Segir sig kannski sjálft en góður svefn er nauðsynlegur fyrir góða heilsu. Þegar okkur líður vel og erum í góðu jafnvægi er líklegra að við stöndum af okkur flensur, kvef og umgangspestir. Léttur matur: Forðist brasaðan og steiktan mat sem líkaminn þarf að nota mikla orku við að melta. Næringarmiklar súpur eru tilvalið flensufæði. Vörurnar frá Terra N ova passa saman við mína hugmyndafræði u m heilsusamlegt líf erni. Vísindi og náttúra m ætast þar sem næringarefnum er blandað saman í réttum hlutföllum fyrir hám arks upptöku. Vörurnar eru einnig lausar við öll auka efni sem gerir Terranova be sta valkostinn Arnór Sveinn Antioxidant Nutrient Mér finnst gott að taka andoxunar blönduna frá Terra Nova því hún er hlaðin næringarefnum úr framandi jurtum sem gefa mér orku og vellíðan. Heilsuhúsið | Lifandi Markaður | Gló Fákafeni | Blómaval, Lyfja Smáralind | Lyfja Smáratorg | Lyfja Laugavegi | Lyfja Lágmúla | Lyfja Keflavík Nánar á facebook - Terranova Heilsa FAGFÓLK VELUR TERRANOVA VÍTAMÍN Knattspyrnumaður & Nemi Magnifood Intense Greens Maður fær aldrei nóg af grænu grænmeti, því set ég set Intense greens blönduna í morgun hræringinn (booztið) og geri hann þar með að næringarsprengju, sem gefur mér orku og kraft ínní daginn. Full Spectrum Multivitamin Terra Nova sameinar vísindi og náttúru, þar sem næringarefnum er blandað saman í réttum hlutföllum til að tryggja hámarks upptöku, þess vegna tek ég multivítamínið frá Terranova. B12 Vitamin Ég tek B12 vítamín, því það er erfitt að nálgast í fæðunni minni. Ég tek B12 vítamínið frá Terranova því þeir tryggja gæði. Terranova er ímynd hreinnar næringar og vellíðunnar. Inniheldur engin fylliefni, bindiefni eða önnur aukaefni. Terranova bætiefnin sem virka. FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060 Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16 Sérverslun með

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.