Frjáls verslun - 01.11.2011, Blaðsíða 84
84 FRJÁLS VERSLUN 11. TBL. 2011
Það ber nú hæst að nýir eigendur komu að bank anum og lögðu honum til hlutafé, alls
fimm og hálfan milljarð króna.
Þar með var orðið ljóst að mP
banki hafði komist í gegnum
fjármálakreppuna án nokkurr ar
aðstoðar eða aðkomu stjórn
valda. Þessu lauk á vormán
uð um og hefur starfsfólk hans
unn ið hörðum höndum að því
að leggja grunninn að framtíð
mP banka. meðal þess sem
fram kvæmt hefur verið eru þrír
samrunar eða yfirtökur, við
Alfa verðbréf, fyrirtækjaráðgjöf
Saga fjárfestingarbanka og
verð bréfasjóðafyrirtækið Júpíter.
Aftur á móti seldum við frá okk
ur hluta af starfsemi okkar og
eignum í litháen á árinu. Aukin
áhersla var lögð á þjónustu okk
ar við atvinnulífið og höfum við
tvöfaldað lánasafn okkar frá
miðju ári,“ útskýrir Sigurður
Atli og segir jafnframt:
„Við náðum þeim ánægjulega
áfanga undir lok ársins að
fagna fyrirtæki númer tvö
þús und í viðskiptum hjá okkur
og bankinn var jafnframt með
mestu hlutdeild í viðskiptum í
Kaup höll inni á árinu.“
Öflug fyrirtæki og fjárfestar
MP banki fagnaði 10 ára far
sælu starfi 11. maí árið 2009
og opnaði sama dag sitt fyrsta
útibú í Borgartúni 26. Annað
útibú bættist við 8. febrúar 2010
í Ármúla 13a þegar höfuð
stöðvar fluttust þangað. MP
banki fékk fullt viðskiptabanka
leyfi í október 2008 og hóf að
taka við innlánum og séreignar
sparnaði til viðbótar við fyrri
starfsemi. Árið 2003 fékk bank
inn fjárfestingarbankaleyfi og
bauð þá upp á alhliða fjárfest
ingarbankaþjónustu.
„Á næsta ári munum við leggja
áherslu á að halda leiðandi
hlutverki okkar í markaðsvið
skiptum og fjárfestingarbanka
starfsemi, auka eignir í stýringu
og skerpa sérstöðu okkar í þjón
ustu við fyrirtæki og efna meiri
einstaklinga. lykilmarkmiðið
er að halda áfram að renna
stoðum undir styrkari rekst
ur bankans. Auknar opinber
ar álögur og samkeppni við
markaðs ráðandi keppinauta á
bankamarkaði gera það ekki
auðvelt. Hins vegar eru gríðar
lega mörg spennandi verkefni
framundan hjá bankanum.
Undanfarið hafa mörg öflug
fyrirtæki og fjárfestar bæst
í viðskiptamannahópinn og
það verður áhugavert að sinna
þeirra þörfum á komandi ári.
Við kappkostum að setja okkur
vel inn í aðstæður viðskipta
vina okkar og lítum á viðskipta
sam bandið sem samstarf sem
báðir aðilar hafi hag af,“ segir
Sigurður Atli.
Í lánastarfsemi á nýjan leik
Það hafa margir áhugaverðir
hlutir átt sér stað hjá mP banka
á árinu og ber þar sennilega
hæst að bankinn gat á ný, eftir
nokkurt hlé, sinnt lánastarfsemi.
„Stærsta nýjungin var auðvit
að sú að með hlutafjáraukingu
í apríl gátum við farið að sinna
lánastarfsemi á nýjan leik. Við
höfum lagt okkar af mörkum
til að styðja við uppbyggingu
atvinnulífsins með beinni fjár
mögnun. einnig með ráðgjöf
til fyrirtækja og fjárfesta, sem
við efldum umtalsvert á árinu,
meðal annars með kaupum
á fyrirtækjaráðgjöf Saga. Þá
höfum við styrkt gjaldeyrisvið
skipti okkar og sinnum nú
Upplýsingar Um fyrirtækið:
starfsmannafjöldi: 90 / fjöldi viðskiptavina: 13.000 / forstjóri: Sigurður Atli Jónsson
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, gekk til liðs við fyrirtækið um miðbik sumars og segir hann
tækifæri bankans á nýju ári meðal annars felast í fjármögnun verkefna í atvinnulífinu, eigendabreytingum,
endurskipulagningu og fjárfestingum á ýmsum sviðum. Starfsmenn MP banka fögnuðu því á dögunum að
bankinn var með mestu hlutdeild í viðskiptum í Kauphöllinni á árinu.
fjölbreytt tækifæri á nýju ári
hjá MP banka
TexTi: erla HJördís GUnnarsdÓTTir / mynd: síminn
„Starfsmenn MP
banka eru sérfræð
ingar í bankavið
skiptum fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki
og efnameiri ein
staklinga.“