Frjáls verslun - 01.04.2010, Blaðsíða 41
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 41
annarra með því að taka sendingar til höfundar til handargagns,
aka um hverfið þótt hann væri í fríi til að heilsa upp á íbúana og
svo mætti lengi telja.
Fred veitti höfundi bókarinnar svo mik inn innblástur að hann
fór að halda fyrir lestra um þjónustu byggða á Fredlög málunum sem
fjalla um hvernig veita á fram úrskarandi þjónustu. Lögmálin fjögur
eru einföld og á allra færi að tileinka sér þau.
Fyrir hverja er bókin?
Bókin er fyrir alla þá sem vilja fá aukinn innblástur og ástríðu í
störf sín. Þá sem vilja fá hugmyndir að því hvernig hinn almenni
starfsmaður getur sjálfur skapað sér tilgang með verkefnum sínum
og þannig fundið merkingu og aukna ánægju í starfi. Hún er
tilvalin fyrir stjórnendur sem vilja hvetja starfsmenn sína til að gera
ennþá betur í því að þjónusta viðskiptavini og þannig auka ábata
fyrirtækisins.
Kafli í bókinni fjallar um hvernig á að þjálfa starfsmenn upp í
að vinna samkvæmt Fredhugmyndafræðinni, hvernig á að finna
rétta fólkið, umbuna því, fræða það og síðast en ekki síst mikilvægi
þess að vera Fred sjálfur til að skapa gott fordæmi.
Hvernig?
Eins og með svo margt sem er áhrifaríkt er bókin einstaklega
einföld. Hún er stutt og auðveld aflestrar, með dæmisögum af Fred
og fjölmörgum öðrum sem hafa skarað fram úr í þjónustu. Hún
segir sögu Freds sjálfs, annarra sem höfundur líkir við Fred og
hann fór að taka betur eftir þegar hann hafði kynnst Fred.
Lögmál Freds eru einföld og á allra færi að tileinka sér og með
því að gera það finnum við aukinn tilgang og meiri ánægju í starfi
og þar með leik. Ekki svo lítill ávinningur það!
Hvar er Fred í dag?
Síðasti kafli bókarinnar svarar spurningunni sem höfundur fékk
gjarnan þegar hann hélt fyrirlestra um Fred. Hvar er Fred í dag?
Skemmst er frá því að segja að þegar bókin var skrifuð var Fred
enn í Denver í því starfi sem hann sinnir svo vel, sem bréfberi.
VIÐ HÖFUM ÖLL ÁHRIF, ÓHÁÐ ÞVÍ HVAR Í SKIPU-
RITINU VIÐ STÖNDUM.
ALLUR ÁRANGUR GRUNDVALLAST AF ÁRANGURS-
RÍKUM SAMSKIPTUM.
VIÐ ÆTTUM STÖÐUGT AÐ LEITAST VIÐ AÐ FÆRA
ÖÐRUM AUKIÐ VIRÐI. ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ
KOSTA KRÓNU.
VIÐ GETUM REGLULEGA FUNDIÐ NÝJAR LEIÐIR
TIL AÐ VINNA HLUTINA.
Hann hafði þá nýverið hlotið verðskuldaða viðurkenningu
fyrir vel unnin störf, sem hann tók við með miklu stolti, og tekið
er fram að samstarfsmenn hans hafi fylgst stoltir með árangri
Freds. Aðspurður hvað það væri sem drifi hann áfram til að veita
framúrskarandi þjónustu svaraði hann með eftirfarandi atriðum:
GERÐU ÖÐRUM GOTT OG ÞÉR MUN LÍÐA VEL.
SÁ BESTI HVÍLIR SIG ALDREI.
KOMDU FRAM VIÐ VIÐSKIPTAVINI OG AÐRA EINS
OG VINI ÞÍNA.
UMBUN ÞÍN FELST Í ÁHRIFUNUM SEM ÞÚ
HEFUR Á AÐRA.
GERÐU GULLNU REGLUNA AÐ ÞINNI – KOMDU FRAM
VIÐ AÐRA EINS OG ÞÚ VILT AÐ KOMIÐ SÉ FRAM
VIÐ ÞIG.
ÓTTASTU EKKERT NEMA ÞAÐ AÐ KASTA
AUGNABLIKINU Á GLÆ.
Einföld speki en samt svo áhrifarík. Bréfberinn Fred setur
hér fram leiðir fyrir okkur að skara fram úr í starfi, hafa áhrif
á líf annarra og bæta okkar eigið. Óhætt er að segja að
þessi upp talning geti skilað árangri í hvaða verkefni sem er.
Minna er augljóslega meira.
Með því að tileinka okkur lögmál Freds og lífs speki hans
má ljóst vera að við veitum ekki einasta framúrskarandi
þjónustu heldur bætum einnig eigið líf og annarra. Það er
ekki svo lítil umbun. Vertu Fred!
FREDS
LÍFSSPEKI
FREDS
LÖGMÁL
B Æ K U R
Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar um
bókina Fred Factor.