Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2010, Side 80

Frjáls verslun - 01.04.2010, Side 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 Rent a Prent Með Rent a Prent­kerfinu er innleitt heildstætt prent ara­ kerfi sem er lagað að þörfum fyrirtækisins með hagkvæmni og notagildi að leiðar ljósi. Anton Már Egilsson hjá Skyggni segir að áherslan sé á mið læg prenttæki sem eru að gangs ­ stýrð: „Starfsmaður sendir verk af stað í prentun en prent­ un in hefst ekki fyrr en hann kemur að prent aranum og setur inn auðkenniskortið sitt og er þá verkið klárt á svip stundu. Ósóttum prentverkefnum er eytt úr kerfinu eftir um 20 tíma. Gott dæmi um vel heppnaða innleiðingu á Rent a Prent er hjá Íslands banka sem dró úr pappírsnotkun um 18,5 tonn á síðasta ári, eða um 33%, frá því að Rent a Prent var tekið í notkun. Umhverfisvæn lausn Það eina sem lendir á fyrirtækjunum og starfsfólki er að bæta pappír á prentarann þegar skúffan tæmist og skipta um prenthylki þá sjaldan sem það þarf. Með fjarvöktun vitum við af því og bregðumst við um leið og bilun kemur upp og getum einnig gætt að því að skipta um vélarhluta þegar eðlilegum endingartíma þeirra fer að ljúka. Lager á hverjum stað tekur mið af notkuninni og í stað þess að þurfa að fara ótal óreglulegar ferðir með pappír og prent­ hylki dugar að fara eina ferð mánaðarlega. Þessi lausn er því einstaklega umhverfisvæn, dregur úr notkun á pappír og fækkar óþarfa ferðum seljenda til viðskiptavina. Búast má við að innleiðing Rent a Prent hafi í för með sér 25­30% lækkun á árlegum prentkostnaði. Þetta eru töluverðar fjár hæðir enda er algengt að um 3% af heildar rekstrarkostnaði fyrir tækja fari í prentun. Þá er hægt að fækka prenturum um allt að því 40% með því að taka Rent a Prent í notkun. Það eitt sýnir hversu öflug lausnin er. Einnig má reikna með hagræðingu í tæknideildum fyrir tækja því talið er að um fjórðungur allra verkefna sem tæknimenn þurfa að sinna sé vegna prentmála.“ Um 15% af útprentuðum gögnum í fyrirtækjum eru aldrei nýtt. Rent a Prent er umhverfisvæn prentlausn frá Skyggni sem dregur úr sóun á pappír og kemur í veg fyrir að viðkvæm gögn liggi á glámbekk. SPARAR FLEIRI TONN Í ÚTPRENTUN Á PAPPÍR SKYGGNIR Anton Már Egilsson. www.skyggnir.is

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.