Frjáls verslun - 01.04.2010, Blaðsíða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0
„Umfangsmesta þátttaka Íslands var á heimssýningunni í Hannover
árið 2000 en þá var hannaður og byggður sérstakur íslenskur skáli sem
seinna var seldur til Danfoss,“ segir Hreinn.
„Á síðustu heimssýningu í Japan, árið 2005, tóku Norðurlöndin
sameiginlega þátt. Þrátt fyrir að það hafi gengið mjög vel var ekki vilji
til þess að endurtaka það í Kína þar sem löndin vildu koma fram í
eigin nafni hjá gestgjafa sem er vaxandi stórveldi bæði í pólitískum og
við skiptalegum skilningi.“
– Hvað hefur komið þér mest á óvart á þessari heimssýningu í
Sjanghæ?
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem að heimssýningu og viðurkenni að
fyrirfram var ég gagnrýninn á svona þátttöku. Oft á tíðum er mest
fjallað um menningarsamskiptin sem fylgja heimssýningum sem eru
góðra gjalda verð en gefa takmarkaða mynd af því sem hér fer fram.
Hún hefur því komið mér á óvart sú mikla aðkoma fyrirtækja sem
tengjast heimssýningum og allir þeir vísindalegu viðburðir sem hér fara
fram, sjö stórar ráðstefnur um borgarsamfélög.“
Hreinn segir um íslensku þátttökuna að sér hafi komið á mjög á
óvart sá mikli áhugi sem fjölmiðlar hafa sýnt íslenska skálanum.
„Ég og samstarfsmenn mínir höfum nú þegar gefið um hundrað
viðtöl við sjónvarpsstöðvar, útvarpsstöðvar, blöð og aðra fjölmiðla.
Við erum því ekki bara að kynna Ísland og íslenskan málstað fyrir
þeim um tveimur milljónum sem heimsækja munu skálann heldur
einnig hundruðum milljóna sem fá upplýsingar um okkur gegnum
fjölmiðla í Kína og um allan heim.“ Um það hvað sé best heppnaða
atriðið á sýningunni segir Hreinn að í sínum huga hljóti það að vera
íslenski skálinn, annað komi ekki til greina. „En þar fyrir utan vekja
Norðurlöndin mikla lukku hér í Kína auk þess sem spænski skálinn
er oft nefndur sem einn sá glæsilegasti – að skála gestgjafanna
undanskildum.“
En hvað skyldu gestir íslenska skálans nefna fyrst af öllu þegar þeir
koma í skálann? Hvað heillar þá mest? „Þeir eru mjög heillaðir af hinu
stórbrotna landslagi sem sýnt er í vídeóhluta sýningarinnar og þeim
krafti sem íslensk náttúra býr yfir og kemst vel til skila í verkinu.“
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur vakið athygli í Kína. „Við höfum
nýtt þá athygli til að beina sjónum að þeim mikla krafti sem við virkj
um í náttúrunni með íslensku hugviti. Þetta hugvit er nú þegar flutt
út, m.a. til Kína þar sem Orkuveitan og Geysir Green Energy standa að
jarðhitaverkefnum í samstarfi við Sinopec, eitt stærsta orkufyrirtæki Kína.“
– En eru Íslendingar að verða þekktastir í Kína fyrir orkuna?
„Jarðhitaverkefnin í Kína hafa gengið vel og ég skynja ekki annað en að
mikill áhugi sé hjá Kínverjum á samstarfi við okkur á þessu sviði.
Við Íslendingar erum þó einnig þekktir hér fyrir ýmislegt annað.
Íslenska vatnið hefur fangað athygli Kínverja, Iceland Springvatn er
þegar komið á markað hér. Einnig hafa íslensk fyrirtæki eins og t.d.
Gestir í íslenska skálanum eru mjög
heillaðir af hinu stórbrotna landslagi sem
sýnt er í vídeóhluta sýningarinnar og þeim
krafti sem íslensk náttúra býr yfir og
kemst vel til skila í verkinu.