Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2010, Side 40

Frjáls verslun - 01.04.2010, Side 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 Ígegnum tíðina hef ég oft spurt sam ferða fólk mitt hvar það fær fram úr skar andi þjónustu. Alltof oft kemur ekkert upp í hugann, einhverjir muna eftir örfáum sem hafa sýnt þeim sérstakan áhuga, ráðlagt þeim af heilum hug eða farið fram úr vænt ingum. Oftar en ekki eru það sömu fyrirtækin sem koma upp hjá fólki. Forsvarsmenn fyrirtækja vita engu að síður að til að ná ár angri í sam­ keppni verða þeir og fólkið þeirra að veita bestu mögulegu þjónustu. Hvernig má það þá vera að við mælendur mínir eigi í vandræðum með að nefna þessi fyrir tæki? Svarið er líklega það að þau eru svo fá. Alltof fá fyrirtæki veita framúrskarandi þjónustu. Það er því borð fyrir báru fyrir þá sem vilja skara fram úr. Bókin Fred Factor eftir Mark Sanborn fjallar einmitt um það sem gera þarf til að fara fram úr væntingum viðskiptavina og með því skapa samkeppnisforskot. Hver er Fred? Fred er bréfberi sem höfundur bókarinnar kynntist þegar hann flutti í nýtt hverfi í Denver. Strax frá fyrstu kynnum sýndi Fred nýja íbúanum mikinn áhuga, lagði sig fram um að kynnast honum og fara fram úr væntingum hans. Þetta gerði hann með því að gera langtum meira en af honum var ætlast, eins og til dæmis að bjóðast að fyrra bragði til að geyma póstinn fyrir íbúann á meðan hann var á ferðalögum, bjarga klúðri Hvernig bréfberi í Denver í Banda ríkjun um varð inn blástur að leiðum til að fara fram úr væntingum viðskiptavina og veita framúrskarandi þjónustu. Sagan af bréfberanum Fred er uppfull af hug myndum um það sem gera þarf til að skara fram úr. Mark Sanborn. Bókin Fred Factor eftir Mark Sanborn: TEXTI: UNNUR VALBORG HILMARSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON & ÝMSIR Fred Factor er afar læsileg bók.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.