Frjáls verslun - 01.04.2010, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0
SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR:
UM 70% KOMA VEGNA NÁTTÚRUNNAR
„Það hafa verið miklar umræður um
um hverfismál frá því Samtök ferða þjón
ust unnar voru stofnuð árið 1998,“ segir
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri sam
takanna. „Umhverfisnefnd hefur verið
starf andi og sett meðal annars stefnu fyrir
sam tökin. Fyrirtækin innan samtakanna
sýna umhverfismálum mikinn áhuga og hafa
nokkur þeirra nú þegar fengið vottun svo
sem ISOvottun, Green Globe – sem nú
heitir reyndar Earth Check – og Svaninn.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa unnið að
kynningu á vottunum meðal fyrirtækjanna.“
Aðspurð hvernig hún meti umhverfis
stefnu hvað varðar ferðaþjónustuna segir
Erna að stærsta verkefnið síðustu miss
eri hafi verið vinna við rammaáætlun
ríkisstjórnarinnar um vernd og nýtingu
nátt úrusvæða. „Mikilvægt er að hagsmuna
ferðaþjónustunnar sé gætt varðandi aðgengi
að verðmætum svæðum. Íslensk náttúra
er helsta aðdráttaraflið í ferðaþjónustunni
og því mikið í húfi að hennar sé gætt.
Samkvæmt könnunum sækja 70% erlendra
ferðamanna til Íslands vegna hennar. Annað
stórt verkefni á þessu sviði er að innleiða
hér á landi gæða og umhverfiskerfi sem
snýr að fyrirtækjunum í greininni og er sá
undirbúningur kominn vel á veg. Kerfi sem
þetta hefur verið notað á NýjaSjálandi og
eru íslensk fyrirtæki mjög áhugasöm um
að taka þátt í slíku starfi svo hægt sé að
markaðssetja íslenska ferðaþjónustu sem
umhverfisvæna gæðaþjónustu.“
Erna segir að ferðamenn sæki í síauknum
mæli í umhverfisvæna ferðaþjónustu og vilji
ferð ast um óröskuð svæði og svæði sem hlúð
er að með vistvænum hætti. „Margir kjósa að
versla fyrst og fremst við fyrirtæki sem hafa
einhvers konar umhverfisvottun. Það er því
mikilvægt fyrir íslenska ferðaþjónustu til fram
tíðar að stunda vistvæna ferðaþjónustu.
Hjá SORPU er meðal annars lögð á hersla
á að tryggja stöðugar úrbætur í um
hverfis stjórnun og mengunarvörnum,
setja sér mæl anleg markmið í um hverfis
málum, leitast við að nota innlenda og
endurnýjanlega orkugjafa, lág marka notkun
spilliefna og há marka endurvinnslu og
endurnotkun innan fyrirtækisins.
„Við viljum tryggja að við séum að
vinna í sátt við umhverfið,“ segir Björn H.
Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU.
„SORPA er með gæðastefnu en unnið er
að vottun gæðakerfisins. Við hyggjumst ná
markmiðum gæðakerfisins með góðu innra
starfi.“
Á meðal áherslna í gæðastefnunni er að
vera í fararbroddi á Íslandi í meðhöndlun
úrgangs og skuldbinda sig til að starfsemi
fyrirtækisins sé ávallt í sátt við umhverfið
eins og þegar hefur verið bent á, að vera
leiðandi í öflun og miðlun þekkingar,
ný sköpun og innleiðingu bestu aðferða,
að efla jákvæða ímynd fyrirtækisins með
arðbærum rekstri, markvissri þjónustu,
frumkvæði, trausti og trúverðugleika,
uppfylla kröfur stjórnvalda og fylgja vott
uðu gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO
9001 og vinna að stöðugum umbótum
á því. Björn segir að fólk sé almennt á
þeirri línu að vernda umhverfið með réttri
umgengni við úrgang þótt til séu undan
tekningar. „Íbúar eru duglegir að koma
með flokkaðan úr gang á endur vinnslu
stöðvar SORPU en það er búið að kenna
landanum ýmislegt á þeim tæpu 20 árum
sem liðin eru síðan fyrir tækið var stofnað.
Ég lít björtum augum til framtíðar og
endur vinnsluiðnaður er eitt af því sem á
eftir að blómstra. Vonandi finnast íslens
kar leiðir sem við getum nýtt okkur til
framtíðar.“
Eitt af markmiðunum hjá fyrirtækinu er
að draga úr urðun á lífrænum úrgangi og
eitt verkefnið sem stefnt er að er að byggja
gasgerðarstöð fyrir lífrænan úrgang en þá
yrði metan framleitt fyrir samgöngutæki.
„Það myndi spara gjaldeyri, draga úr út
streymi gróður húsalofttegunda, draga úr
mengun, auka orkuöryggi og yrði okkur
til góðs í framtíðinni. Stefnt er að því að
árið 2013 verði farið að framleiða metan í
verksmiðju hér á landi.“
Erna Hauksdóttir. „Fyrirtækin innan samtakanna
sýna umhverfismálum mikinn áhuga og hafa
nokkur þeirra nú þegar fengið vottun svo sem
ISO-vottun, Green Globe – sem nú heitir reyndar
Earth Check – og Svaninn eða eru að undirbúa sig
fyrir slíkar vottanir.“
BJÖRN H. HALLDÓRSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI SORPU:
GASGERÐARSTÖÐVAR
STEFNT AÐ OPNUN
Björn H. Halldórsson: „SORPA er með gæðastefnu en
unnið er að vottun gæðakerfisins. Við hyggjumst ná
markmiðum gæðakerfisins með góðu innra starfi.“
GRÆNA
HLIÐIN
UPP