Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 52
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R 52 LÆKNAblaðið 2014/100 Það þóttu tíðindi þegar Læknablaðið íslenska komst á Medline. Hvað þýðir það? Jú, að fræðigreinar er birtast í Læknablaðinu eru skráðar og að- gengilegar í stærsta læknisfræðilega gagnabanka í veröldinni þar sem hægt er að nálgast allar nýjustu upplýsingar um læknisfræðilegar rannsóknir, svo framar- lega sem birt hefur verið grein, ein eða fleiri, í viðurkenndum tímaritum. Það skiptir því máli fyrir útgáfuna ekki síður en höfundinn/höfundana að tímaritið sé á Medline. Medline rekur upphaf sitt aftur til ársins 1850 er landlæknir Bandaríkjanna setti á stofn herlæknisfræðilegt bókasafn. Fimmtán árum síðar var kornungur lækn- ir, John Shaw Billings, skipaður yfirbóka- vörður og undir hans stjórn óx bókasafnið úr nokkrum þúsundum titla í að verða stærsta læknisfræðilega bókasafn veraldar með 116.000 titla árið 1895. Billings var afar framsýnn maður og eitt af hans verkum var að tryggja bókasafninu áskriftir að læknisfræðilegum tímaritum þess tíma og árið 1879 hófst árleg útgáfa yfirlitsskrár er nefndist Index Medicus. Medline mætti í rauninni lýsa sem hinni stafrænu útgáfu Index Medicus. Árið 1956 var herbóka- safninu breytt í Læknisfræðilegt Lands- bókasafn (National Library of Medicine) sem skilgreinir sjálft sig sem stærsta líf- og læknisfræðilega bókasafn veraldar. Árið 1997 var stigið merkilegt skref í sögu safns- ins er þáverandi forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, ákvað að Medline skyldi verða aðgengilegt án gjalds fyrir alla jarðarbúa, og hefur það verið þannig síðan. Gataspjöld og segulbönd Medline hefur þróast í áranna rás og tölvu- væðing þess hefur um margt verið í farar- broddi á hverjum tíma þó eflaust þætti tækni 8. áratugarins sein í svifum í dag. Þá voru allar upplýsingar geymdar á gata- spjöldum og segulböndum og afgreiðslu- tími beiðna um afrit af greinum var að jafnaði tvær vikur. Umsækjandinn þurfti þá að vita nafn höfundar og titil greinar ef niðurstaða átti að fást af leitinni. Í dag er þessu öðruvísi farið og helstu ókostir leitar að ef ekki er skilgreint nægilega nákvæm- lega hverju leitað er eftir, er hætt við að upp komi tugir þúsunda möguleika enda gríðarlegur fjöldi greina sem leitarvélin hefur aðgang að. Nú eru 5600 tímarit skráð í Medline og nær leitarvélin í dag aftur til ársins 1946 en stöðugt er verið að tölvutaka eldri árganga læknisfræðilegra rita til að auka sögulegt gagn af gagnbankanum. Um 22 milljónir leitarorða eru í gagna- bankanum og árlega bætast 800.000 við. Magnið þarf þó ekki að valda verulegum áhyggjum þar sem ýmis hjálpartæki eru í boði á heimasíðu PubMed sem er hinn opinberi aðgangur að Medline. Strangar kröfur Nefnd sérfræðinga metur hvert tímarit sem talið er eiga erindi á Medline. Kröf- urnar beinast fyrst og fremst að gæðum þeirra vísindalegu vinnubragða sem liggja að baki þeim greinum sem tímaritið birtir. Hver grein er síðan skráð af sérfræðingum Medline undir ýmsum leitarorðum er nefnast MeSH (Medical Subject Headings). Leitarorðin falla undir kerfi sem í grunn- inn er enn óbreytt frá því höfundur þess, John Billings, hóf útgáfu Index Medicus. Hann var sannarlega framsýnn náungi. Aðalskráning greina í Medline tekur til viðeigandi leitarorða eins og til dæmis sjúkdóma, einkenna, líkamlegra hugtaka og lyfja. Hverri aðalskráningu fylgir síðan fjöldi undirskráninga, svo þegar leitað er má bæta við undirleitarorði með skástriki til að þrengja leitina. Einfalt dæmi er að ef slegið er inn leitarorðið „influenza” birtast 33.000 svör en þegar slegið er inn „influ- enza/heat“ fækkar þeim í 12.000. Öllum greinum frá 1975 fylgir útdráttur á ensku hafi hann á annað borð fylgt greininni frá upphafi. Hægt er að leita eftir orðum úr texta þó hætt sé við að niðurstöður geti orðið ansi margar í fyrstu umferð en þá er um að gera að þrengja leitina frekar. Einfalt að leita Þegar leitað er á Medline er einfaldast að byrja á því að gúggla Medline og velja Home-PubMed-NCBI. Þá opnast heimasíða PubMed með leitargluggann efst á síðunni. Ef vitað er nákvæmlega hverju leita skal eftir, er ekki eftir neinu að bíða og/eða skrifa viðeigandi leitarorð í gluggann og senda vélina í leit innan um allar milljónirnar af möguleikum. Sá sprettur tekur að jafnaði innan við 10 sekúndur. Ef hins vegar leitandinn er ekki viss hverju leitað skal eftir eða hefur svolítinn tíma aflögu til að kynna sér möguleika PubMed og Medline er rakið að velja úr listanum lengst til vinstri PubMed quick Guide eða PubMed Tutorials og kynna sér hversu fjöl- breyttir möguleikar til upplýsinga gefast í gegnum þessa síðu. PubMed og Medline eru eflaust gagn- legust þeim sem stunda vísindalegar rann- sóknir og vilja kynna sér nýjustu niður- stöður á tilteknu sviði. Upplýsingarnar takmarkast þó engan veginn við það og gríðarlegt magn upplýsinga um nánast allt er snýr að heilbrigðismálum er að finna í iðrum Medline. Kjarni málsins er einfaldlega sá að stærsta læknisfræðilega bókasafn heimsins er aðgengilegt ókeypis með einum músarsmelli hvaðan sem er úr veröldinni. Klikk. Slóðin á Medline er ncbi.nlm.nih.gov/pubmed en einfaldast er í upphafi að gúggla Medline og velja Home- PubMed-NCBI. Þá opnast þessi síða sem veitir aðgang að stærsta gagnabanka veraldar í læknisfræði. Ótæmandi uppspretta Gagnabankinn Medline og leitarvélin PubMed ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Þessi samantekt er byggð á þremur nýlegum greinum í sænska læknablaðinu: Theander S, Jensen J, Nilsson PM. Medline – en skatt- kammare för läkare och forskare. Så skapades databasen med över 20 miljoner medicinska referenser. Läkartidn- ingen 2013; 110: 1878-9. Theander S, Jensen J. Att söka i Medline – en kurs för nybörjare. Läkartidningen 2013; 110: 1879-83. Theander S, Jensen J, Nilsson PM. Medlines tillväxt speglar utvecklingen av medicinskt vetande. Läkar- tidningen 2013; 110: 1880-3.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.