Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2014/100 49
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
sjálfa og almennt er vilji læknastéttarinnar
og lyfjafyrirtækjanna að kynningin sé
meira í formi ráðgjafar en í beinni sölu-
mennsku. Það er einnig í samræmi við
nýlegan samning Læknafélags Íslands og
Frumtaka um samskipti lækna og lyfja-
fyrirtækja.
Í ár er Vistor aðalstyrktaraðili Lækna-
daga og það ríkir gagnkvæmur skilningur
á mikilvægi þess stuðnings og hvernig
honum skuli háttað. Það er alveg ljóst að
án stuðnings lyfjafyrirtækja væru Lækna-
dagar ekki í því formi sem þeir eru, þó við
reynum að sjálfsögðu að gæta aðhalds í
kostnaði á öllum póstum.“
Fræðslukvöld fyrir almenning
Ein nýjung er að á miðvikudagskvöldi
verða Læknadagar opnaðir almenningi.
Haldið verður málþing um lífsstílssjúk-
dóma. Þarna gefst almenningi kostur á að
fræðast af læknum og öðrum fagmönnum
og vonandi mun þetta festa sig í sessi sem
jákvæð kynning á störfum heilbrigðis-
stétta.
Á Læknadögum að þessu sinni verður
einnig tekin upp skráning á hádegis-
verðarfundi á vegum Fræðslustofnunar.
„Síðustu ár hefur Fræðslustofnun boðið
upp á hádegismat sem allir gátu fengið
sér. Kostnaðurinn við það var orðinn mjög
mikill og því nauðsynlegt að takmarka
hann bara við þá sem hafa skráð sig á
hádegisfundi. Ég vil hvetja alla sem hafa
áhuga til að skrá sig tímanlega svo öruggt
sé að þeir komist að.“
Spekingaglíma á sínum stað
Meðal þess sem Gunnar Bjarni segir að
lögð verði aukin áhersla á er að fleiri mál-
þing og fyrirlestrar verða tekin upp á
myndbönd þannig að þeir sem ekki eiga
kost á því að sækja Læknadaga geti kynnt
sér efnið á netinu síðar. „Þetta nýtist að
sjálfsögðu öllum, líka þeim sem vilja rifja
upp tiltekið efni og geta sótt það á netið.
Þá erum við einnig með þann möguleika
opinn að halda fjarfundi þar sem fyrirles-
arar sem okkur þykir fengur í að hafa með
okkur en eiga ekki heimangengt á þessum
tíma halda fyrirlestur sinn í gegnum fjar-
fundabúnað. Þetta var gert í fyrra með
góðum árangri en reyndist ekki þörf á í ár.
Þá má einnig nefna að sótt hefur verið um
að Læknadagar 2014 veiti endurmenntun-
arpunkta (CME-punkta). Við erum einnig
að vinna þeirri hugmynd brautargengi
að innan Læknadaganna verði styttra
fræðsluþing fyrir almenna lækna á ensku.
Þetta er hugmynd Örnu Guðmundsdóttur
forvera míns, og gæti orðið valkostur fyrir
erlenda lækna sem eru að leita sér endur-
menntunar og vilja heimsækja Ísland í
leiðinni. Ég býst helst við að það væri
áhugi fyrir þessu á Norðurlöndum og það
væri til dæmis mjög gaman ef læknar sem
starfa á Grænlandi og í Færeyjum gætu
komið. En þetta er allt í mótun og verður
að kynna vel. Þetta ræðst að miklu leyti
af fjárhagslegum forsendum og áhuga
erlendra kollega okkar.“
Gunnar Bjarni segir að ekki verði skilið
við dagskrá Læknadaga án þess að nefna
lokahófið með sinni hefðbundnu spek-
ingaglímu sem margir bíða eftir í ofvæni.
„Gunnar Guðmundsson lungnalæknir
tilkynnti í fyrra að hann myndi ekki stýra
glímunni lengur, en maður kemur í manns
stað og Kristján Guðmundsson háls-, nef-
og eyrnalæknir tekur við stjórninni. Við
leggjum mikla áherslu á vel sé haldið utan
um þetta atriði.“ Að lokinni glímu verður
svo kokdillir í boði Fræðslustofnunar.
Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur fer
fram í Hörpu á laugardagskvöldið undir
veislustjórn Benedikts Sveinssonar. Þar
kemur sonur hans, Bergur Ebbi, einnig við
sögu og ætla þeir feðgar að halda uppi
fjörinu ásamt hljómsveitinni Buffi. Góða
skemmtun.
„Áhuginn á Læknadögum er mikill og hann
fer vaxandi,“ segir Gunnar Bjarni Ragnarsson
framkvæmdastjóri Fræðslustofnunar Læknafélags
Íslands.