Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2014/100 37
Með skilningi vinnuveitenda okkar og samtakamætti lækna
hafa Læknadagar þróast vel vegna góðrar þátttöku. Höldum áfram
að skapa sem flestum möguleika á að sækja þá.
Á tíðum hagræðingar og aðhalds í ríkisfjármálum má vona að
við getum sem flest, eftir að hafa sótt næstu Læknadaga, tekið okk-
ur í munn áður tilvitnuð orð Hannesar Finnbogasonar eftir fyrsta
haustþing læknafélaganna 1961 „er það vissa mín, að fé því hafi
ekki öllu verið á glæ kastað, þar sem þeir sem námskeiðið sóttu
muni í mörgum tilfellum lækna með betri árangri á miklu hag-
kvæmari hátt en áður, öllum aðilum til hagsbóta.“
Þegar ég settist niður nú í jólamánuðinum og rifjaði upp þann
tíma sem ég hef átt ásamt öðrum í starfi að fræðslumálum fyrir
lækna, finnst mér það alltaf hafa verið skemmtilegt. Allan tímann
var eitthvað nýtt í vændum eða unnið að því að gera betur í starfi
nefndanna. Áhugi og stuðningur stjórna LÍ og LR var alltaf mikill
og einlægur. Formenn félaganna hlífðu sér ekki í neinu til þess að
taka ábyrgð með okkur á því sem við gerðum. Starfsmenn félag-
anna, þáverandi framkvæmdastjóri, Páll Þórðarson heitinn, sem
og aðrir, voru allir tilbúnir að hjálpa til, hvort sem það þurfti að
vinnast hratt eða ekki. Sama var að segja um starfsmenn Lækna-
blaðsins um það sem að þeim sneri. Tryggð starfsmanna við félagið
er einnig aðdáunarverð og auðveldar allt félagsstarf. Margrét Aðal-
steinsdóttir, gjaldkeri félaganna og starfsmaður Fræðslustofnunar
lækna, er nú að koma að skipulagi Læknadaga í 19. skipti sem
framkvæmdastjóri þeirra. Með henni í framkvæmdanefndinni
fyrir Læknadaga er nýr formaður Fræðslustofnunarinnar, Gunnar
Bjarni Ragnarsson, sem er að koma að skipulagi Læknadaga í
annað sinn. Fyrra skiptið var 1999 þegar hann var fulltrúi Félags
ungra lækna í nefndinni.
Læknadagar hafa vaxið og dafnað af því að þeir eru vel sóttir.
Tökum höndum saman um að halda því áfram til að geta notið
þeirra. Ég óska þeim í framkvæmdanefndinni og okkur læknum
til hamingju með glæsilega dagskrá sem bíður okkar í Hörpu á
Læknadögum 2014.
Læknablaðinu óska ég velfarnaðar á afmælisárinu.
Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S
Árið 2013 var nokkrum forkólfum Læknadaga í gegnum tíðina stillt upp í tunnunni hjá Læknafélaginu: Sigurður Guðmundsson, Margrét Aðalsteinsdóttir og Stefán B. Matthíasson.