Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 13
R a n n S Ó k n
LÆKNAblaðið 2014/100 13
gildi 70 ár, bil 23-93), 63% voru karlar og að meðaltali var legutími
þeirra 5,6 ± 9 dagar (miðgildi 2 dagar, bil 1-66).
Á þessu hálfa ári voru alls 1722 blóðhlutar gefnir 202 sjúk-
lingum (að meðaltali 8,5 ± 20 blóðhlutar, bil 4-143) á 439 sólar-
hringum/lotum. Af þeim sjúklingum sem fengu blóðhluta fengu
flestir rauðkornaþykkni, eða 179 (30%) talsins, 107 (18%) var gef-
inn ferskfrystur blóðvökvi og 51 (9%) fengu blóðflögur (tafla II). 34
sjúklingar fengu allar tegundir blóðhluta á meðan á gjörgæslulegu
stóð (eða 6% allra gjörgæslusjúklinga).
istical Computing) notað fyrir lýsandi og greinandi tölfræði. At-
hugað var hvort gögn væru normaldreifð með Saphiro-prófi og
meðaltöl og staðalfrávik reiknuð fyrir normaldreifð gögn, annars
voru gefin upp miðgildi með fjórðungsmörkum. Blóðrauði við gjöf
rauðkorna var skoðaður sérstaklega með tilliti til fjölda gefinna
eininga rauðkornaþykknis á sólarhring/lotu.
Samanburður á blóðgildum undirhópa var gerður með línu-
legri aðhvarfsgreiningu. Leiðrétt var fyrir bjagandi breytum sem
reyndust hafa áhrif á blóðgildi samkvæmt útilokunaraðferð. Líkan
tvö af blandaðri aðhvarfsgreiningu var notað til að leiðrétta fyrir
endurteknum blóðhlutagjöfum hjá sama einstaklingi. Tölfræðileg
marktækni miðast við p-gildi undir 0,05.
Niðurstöður
Sjúklingar og innlagnarástæður
Alls lögðust 598 sjúklingar inn á báðar gjörgæsludeildir Landspít-
ala á þessu 6 mánaða tímabili og var legutími þeirra á deildinni
að meðaltali 2,9 dagar.
Í töflu I eru skráðar ástæður innlagnar hjá þeim gjörgæslu-
sjúklingum sem fengu blóðhluta. Í mörgum tilvikum eru skráðar
fleiri en ein ástæða innlagnar. Í meira en helmingi tilvika (53%)
var ein ástæða innlagnar á gjörgæsludeild eftirmeðferð vegna
skurðagerðar, oftast opinnar hjartaaðgerðar (27%) eða aðgerðar
á kviðarholi (11%, tafla I). Aðrar algengar innlagnarástæður voru
lost eða sýklasótt (18%), sjúkdómar í öndunarfærum (11%), melt-
ingarvegi (10%) eða hjarta- og æðakerfi (9%). Hjá helmingi sjúk-
linga (49%) var saga um blóðþurrðarsjúkdóm í hjarta við innlögn,
hjá 16% sjúklinga var saga um sykursýki, 10% höfðu nýrnabilun og
7% lungnaþembu. 39 sjúklingar (19%) höfðu ekki undirliggjandi
sjúkdóma aðra en þá sem leiddu til innlagnar á gjörgæsludeild.
Af 598 sjúklingum sem lágu á gjörgæsludeildum á rannsóknar-
tímanum fengu 202 (34%) blóðhluta; 117 af 258 sjúklingum (45%)
sem lágu á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut og 85 af 340
(25%) sjúklingum á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Meðal-
aldur þeirra 202 sjúklinga sem fengu blóðhluta var 68 ± 15 ár (mið-
Tafla III. Samanburður á blóðgildum við gjöf blóðhluta hjá helstu undirhópum
þeirra 202 sjúklinga sem fengu blóðhluta. Notað var líkan tvö af blandaðri
línulegri fjölbreytugreiningu.
Já2 Nei2 p-gildi
Rauðkorn (n=179)1
meðaltal blóðrauða ± staðalfrávik g/L
Skurðaðgerð (n=90) 89 ± 9 84 ± 14 0,006*
opin hjartaaðgerð (n=45) 90 ± 8 86 ± 13 0,07
Blóðþurrðarsjúkdómur í hjarta (n=87) 88 ± 9 86 ± 14 0,07
Eldri en 70 ára (n=95) 88 ± 9 90 ± 13 0,07
Lost/sýklasótt (n=31) 90 ± 14 89 ±10 0,049*
Blóðmeinasjúkdómur (n=11) 82 ± 15 90 ± 11 <0,001*
Blóðvökvi (n=107)1
meðaltal próþrombíntíma ± staðalfrávik sekúndur
Skurðaðgerð (n=69) 17,4 ± 5 26,7 ± 20 0,003*
opin hjartaaðgerð (n=41) 16,6 ± 2 22,4 ± 16 0,02*
Skorpulifur (n=6) 20,7 ± 9 24,6 ±14 0,07
Blóðflögur (n=51)1
meðaltal blóðflögugildis ± staðalfrávik þús/μL
opin hjartaaðgerð (n=21) 125 ± 40 63 ± 40 <0,001*
Blóðmeinasjúkdómur (n=9) 41 ± 38 89 ± 45 <0,001*
Leiðrétt var fyrir breytum samkvæmt útilokunaraðferð.
1Heildarfjöldi sjúklinga sem fékk blóðhlutategund á rannsóknartímabili.
2Já/nei með tilliti til undirhóps í fremsta dálki.
Mynd 1. Dreifing blóðrauða (g/L) við gjöf rauðkorna. Lóðréttar línur sýna hlut-
fall rauðkornaeininga sem voru gefnar við blóðrauða undir 70 og yfir 90 g/L. Texti í
rauðum kössum ofan stöpla er samkvæmt klínískum leiðbeiningum Landspítala frá
árinu 2012.
Mynd 2. Blóðrauði við gjöf rauðkorna skoðaður með tilliti til fjölda gefinna eininga
rauðkorna á sama sólarhring/lotu. Hringir tákna því sólarhring/lotu sem rauðkorn
voru gefin og lægsta blóðrauða sem mældur var innan þess sólarhrings/lotu. Rauð
brotalína sýnir gjafir rauðkorna við blóðrauða yfir 100 g/L þegar ástæða til gjafar
rauðkorna er einungis mikil virk blæðing.