Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.01.2014, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 53 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Læknadagar eru íslenskum læknum vel kunnir. Þeir hafa verið haldnir ár hvert í janúar í meira en áratug. Aðsóknin hefur verið góð og dagskráin vönduð og yfirgripsmikil. Aðalhlutverk þeirra er að veita læknum innlendan vettvang fyrir símenntun. Minna er hins vegar rætt um hlutverk þeirra í að stuðla að framþróun og nýsköpun í íslensku heilbrigðiskerfi. Þetta hlutverk er ekki síður mikilvægt og verður hér rakið dæmi þess. Á Læknadögum 2013 var fyrsti dagur þingsins helgaður svefnleysi, eðli, grein- ingu og meðferð. Þessir fyrirlestrar voru vel sóttir og sköpuðust miklar umræður um þetta algenga vandamál sem talið er að hrjái um 10-20% fólks á hverjum tíma.1 Í erindum sem fjölluðu um meðferð svefnleysis kom fram að bensódíasepín og skyld svefnlyf eru aðallega gagnleg við meðhöndlun svefnleysis til skamms tíma, en við langtímameðferð tapast þessi ávinningur og fylgikvillar fara að vega þyngra. Betri árangur fæst með hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S), auk þess sem áhrifin vara lengur en með- ferðin stendur yfir. Samkvæmt samantekt bandaríska svefnlækningafélagsins frá 2006 fá um 70% bata af HAM-S, sem viðhelst í að minnsta kosti 6 mánuði að lokinni meðferð.2 Enginn ágreiningur virtist vera meðal fyrirlesara og fundargesta um gagnsemi HAM-S. Hins vegar var ljóst að ekki hefur verið auðvelt að komast í slíka meðferð, sérstaklega fyrir fólk sem býr utan höfuð- borgarsvæðisins. Mörgum sjúklingum kann að þykja erfið sú tilhugsun að þurfa að fara til sálfræðings til að þiggja meðferðina. Einnig er slík meðferð kostnaðarsöm, og stendur það efnaminni sjúklingum oft fyrir þrifum. Þessi vandi einskorðast ekki við Ísland.3 Fram kom í umræðum að vegna þessa væri farið að bjóða erlendis upp á HAM-S í gegnum vefforrit. Slík forrit, sem eru hönnuð af fagfólki, leiða sjúklinginn gegnum meðferðina á gagnvirkan hátt. Sjúklingurinn svarar spurningum um svefnvandann og út frá þeim eru gefnar meðferðarleiðbeiningar. Forritið leiðir sjúklinginn áfram í gegnum meðferðina eftir því hvernig svör hans þróast, oft með einhverri aðkomu fagfólks. Rannsóknir á þessari nálgun hafa sýnt að jafnvel þó ekk- ert fagfólk komi beint að meðferðinni (fyr- ir utan hönnun forritsins) þá hafi hún samt sem áður marktæk áhrif, en líklegast ekki eins mikil og einstaklings- eða hópmeð- ferð á stofu þó enn vanti góðar rannsóknir með beinum samanburði.4, 5 HAM-S gegnum netið er því hentug nálgun að algengu vandamáli, sem ætti að geta gagnast stórum hópi sjúklinga með vægari sjúkdóm. Meðferðin er ódýrari en hefðbundin HAM-S, aðgengilegri (sér- staklega fyrir sjúklinga utan höfuðborgar- svæðisins) og gæti mögulega minnkað lyfjanotkun. Því má færa rök fyrir því að þessi nálgun gæti nýst mörgum og dregið úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu og í samfé- laginu vegna svefnleysis. Málþingið var vel sótt, meðal annars af tveimur nýútskrifuðum læknum með mikla kunnáttu í uppsetningu vefsvæða. Að málþinginu loknu hófu þeir samtal við sálfræðing með sérhæfingu í HAM-S sem hafði flutt erindi á málþinginu. Þau höfðu öll áhuga á hlutverki vefforrita í meðferð og eftirfylgd sjúklinga en höfðu ekki haft bolmagn til að hefja slíkt verk- efni hvert í sínu lagi. Með því að ná saman fyrir tilstuðlan þessa málþings gátu þau hins vegar í sameiningu sett á laggirnar nýja vefsíðu, betrisvefn.is, sem býður upp á HAM-S gegnum netið og hefur nú verið tekin í notkun. Meðferðin tekur 12 vikur og skiptist í 6 vikna virka meðferð og 6 vikna eftirfylgd. Á fyrstu þremur mánuð- unum sem meðferðin hefur verið í boði hefur 61 skráð sig á síðunni. Takist að festa meðferðina í sessi mun það vonandi leiða til þess að fleiri Íslendingar fái betri og virkari meðferð við svefnleysi en áður. Læknadagar skapa vettvang fyrir kynningu innanlands á nýjustu þekkingu í læknisfræði, og auðvelda læknum að viðhalda þekkingu sinni. Erindi frá heil- brigðisstéttum, öðrum en læknum, þegar við á, auka enn frekar á gæðin. Þar fæst grundvöllur fyrir fagfólk með svipuð áhugasvið til að hittast og deila þekkingu sinni, sem getur orðið uppspretta nýrra hugmynda og verkefna og er betrisvefn.is gott dæmi. Það er því ljóst að Læknadagar þjóna mikilvægu hlutverki og hvetja til framþróunar og nýsköpunar í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Gleðilega Læknadaga! Heimildir 1. Buysse, DJ. Insomnia. JAMA 2013; 309: 706-16. 2. Morin, CM, Bootzin, RR, Buysse, DJ, Edinger, JD, Espie, CA, Lichstein, KL. Psychological and behavioral treat- ment of insomnia:update of the recent evidence (1998- 2004). Sleep 2006; 29: 1398-414. 3. Williams J, Roth A, Vatthauer K, McCrae CS. Cognitive behavioral treatment of insomnia. Chest 2013; 143: 554-65. 4. Espie CA. «Stepped care»: a health technology solution for delivering cognitive behavioral therapy as a first line insomnia treatment. Sleep 2009; 32: 1549-58. 5. Cheng, SK, Dizon, J. Computerised cognitive behavioural therapy for insomnia: a systematic review and meta- analysis. Psychother Psychosom 2012; 81: 206-16. Betrisvefn.is – Dæmi um nýsköpun í kjölfar Læknadaga Össur ingi Emilsson stjórnarmaður í fræðslunefnd Félags almennra lækna og meðlimur í undirbúningsnefnd Læknadaga. ossuri@landspitali.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.