Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2014, Page 3

Læknablaðið - 01.12.2014, Page 3
LÆKNAblaðið 2014/100 643 læknablaðið the icelandic medical journal www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1800 Áskrift 12.400,- m. vsk. Lausasala 1240,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Hjúkrunarfræðinemar horfa með andakt á læknakandí- datinn Árna Björnsson (1923-2004) og hlusta á hann segja allt sem segja þarf um líffærafræði. Hauslaus bein- grind kemur út úr skápnum og fylgist með en þeim finnst Árni greinilega meira spennandi! Þessa mynd á kápu blaðsins frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur tók Sigurhans E. Vignir um árið 1950 en þá fór kennslan fram á efstu hæð Landspítalans. Myndin er að mörgu leyti táknræn fyrir menntunarmál og stjórnun í heilbrigðiskerfinu á þessum árum; fjöldi af ungum konum sem ætla að verða hjúkrunarkonur hlusta á karlkyns læknakandídat upp- fræða hópinn. Árni fékk lækningaleyfi árið 1953 en var kandídat á Landspítalnum af og til á árunum 1950-1953 og kenndi þá við skólann. Það þótti nægileg kennsla að læknanemar, sem flestir voru karlmenn, færu yfir helstu atriðin sem talið var æskilegt að hjúkrunarkonur kynnu einhver skil á. Nám hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta hefur gjörbreyst á undanförnum áratugum sem og sam- spil þekkingar og fræðasviða ólíkra starfsstétta. Þá hafa kennsluaðferðir breyst frá því sem er á þessari mynd en það sem enn er óbreytt eru markmið náms heilbrigðis- starfsmanna: lækningar og líkn. Kennsla hjúkrunarkvenna hófst með stofnun Holds- veikrahælisins í Laugarnesi 1898 en til þess að fullnuma sig í fræðunum þurftu þær að fara utan og fóru einkum til Kaupmannahafnar. Árið 1931 var Hjúkrunarkvenn- askólinn stofnaður og fór þá allt nám fram hér heima. Nafni skólans var breytt í Hjúkrunarskóla Íslands 1948 en starfsheitinu hjúkrunarkona var ekki breytt í hjúkrunar- fræðingur fyrr en árið 1975. Flestar konurnar höfðu lítið annað en skólaskyldu að baki þegar þær hófu nám í Hjúkrunarskólanum en eftir miðja öldina luku þær yfirleitt gagnfræðaprófi eða jafnvel meira námi. Nám hjúkrunar- kvenna var að mestu verklegt en þær fengu einnig tilsögn í bóklegum greinum eins og lífeðlis-, lyflæknis- og líffæra- fræði. Lengi vel eimdi eftir af þeirri hugsun að „betra væri að hafa góðar konur til að aðstoða lækna og sjúklinga en langskólamenntaðar konur sem gerðu ekki annað en að skrifa skýrslur“. Eftir því sem árin liðu og tækni og þekk- ingu fleytti fram var námið flutt yfir á háskólastig. Jón Ólafur Ísberg Myndin er tekin 23. maí 1969 í hátíðasalnum í aðalbyggingu Háskóla Íslands, og sýnir læknanema á fyrsta ári gangast undir upphafspróf í læknisfræði. Tilefni myndatökunnar voru deilur fyrsta árs læknanema við læknadeild HÍ og hótanir um prófverkfall ef kröfur þeirra um niðurfellingu inntökuskilyrða yrðu ekki teknar til greina. Þetta sumar voru fyrstu herskáar aðgerðir sem íslenskir stúdentar stóðu að og má segja að þær hafi tilheyrt hinni evrópsku stúdentabyltingu sem hófst í París 1968 og heil kynslóð dregur nafn sitt af. Í nóvember 1973 fóru læknanemar í verkfall til að mótmæla áætlunum læknadeildar um að setja á fjöldatakmarkanir. Hvatamenn verkfallsins, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Guðmundsson og Gizur Gottskálksson, allir ungir og vel greiddir, voru í stjórn Félags læknanema á þessum tíma. Báðar myndirnar tók Bragi Guðmundsson, og þær eru varðveittar hjá Ljósmyndasafni Íslands sem er eitt albesta ljósmyndasafn í heimi. Nám og kennsla Turbuhaler innöndunartæki Turbuhaler er fjölskammta innöndunartæki sem inniheldur ýmis lyf við lungnasjúkdómum eins og astma og langvinnri lungnateppu Leiðbeiningar um notkun fást á næstu heilsugæslustöð eða í lyfjaverslunum Umboðsaðili: Vistor.hf. Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 535 7000 Einfalt og auðvelt í notkun 1 0 -2 0 1 3 -0 1

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.