Læknablaðið - 01.12.2014, Síða 3
LÆKNAblaðið 2014/100 643
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Hjúkrunarfræðinemar horfa með andakt á læknakandí-
datinn Árna Björnsson (1923-2004) og hlusta á hann
segja allt sem segja þarf um líffærafræði. Hauslaus bein-
grind kemur út úr skápnum og fylgist með en þeim finnst
Árni greinilega meira spennandi! Þessa mynd á kápu
blaðsins frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur tók Sigurhans
E. Vignir um árið 1950 en þá fór kennslan fram á efstu
hæð Landspítalans. Myndin er að mörgu leyti táknræn
fyrir menntunarmál og stjórnun í heilbrigðiskerfinu á
þessum árum; fjöldi af ungum konum sem ætla að verða
hjúkrunarkonur hlusta á karlkyns læknakandídat upp-
fræða hópinn. Árni fékk lækningaleyfi árið 1953 en var
kandídat á Landspítalnum af og til á árunum 1950-1953
og kenndi þá við skólann. Það þótti nægileg kennsla að
læknanemar, sem flestir voru karlmenn, færu yfir helstu
atriðin sem talið var æskilegt að hjúkrunarkonur kynnu
einhver skil á.
Nám hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta
hefur gjörbreyst á undanförnum áratugum sem og sam-
spil þekkingar og fræðasviða ólíkra starfsstétta. Þá hafa
kennsluaðferðir breyst frá því sem er á þessari mynd en
það sem enn er óbreytt eru markmið náms heilbrigðis-
starfsmanna: lækningar og líkn.
Kennsla hjúkrunarkvenna hófst með stofnun Holds-
veikrahælisins í Laugarnesi 1898 en til þess að fullnuma
sig í fræðunum þurftu þær að fara utan og fóru einkum
til Kaupmannahafnar. Árið 1931 var Hjúkrunarkvenn-
askólinn stofnaður og fór þá allt nám fram hér heima.
Nafni skólans var breytt í Hjúkrunarskóla Íslands 1948 en
starfsheitinu hjúkrunarkona var ekki breytt í hjúkrunar-
fræðingur fyrr en árið 1975. Flestar konurnar höfðu lítið
annað en skólaskyldu að baki þegar þær hófu nám í
Hjúkrunarskólanum en eftir miðja öldina luku þær yfirleitt
gagnfræðaprófi eða jafnvel meira námi. Nám hjúkrunar-
kvenna var að mestu verklegt en þær fengu einnig tilsögn
í bóklegum greinum eins og lífeðlis-, lyflæknis- og líffæra-
fræði. Lengi vel eimdi eftir af þeirri hugsun að „betra væri
að hafa góðar konur til að aðstoða lækna og sjúklinga en
langskólamenntaðar konur sem gerðu ekki annað en að
skrifa skýrslur“. Eftir því sem árin liðu og tækni og þekk-
ingu fleytti fram var námið flutt yfir á háskólastig.
Jón Ólafur Ísberg
Myndin er tekin 23. maí 1969 í hátíðasalnum í aðalbyggingu Háskóla Íslands, og sýnir læknanema á fyrsta ári gangast undir upphafspróf
í læknisfræði. Tilefni myndatökunnar voru deilur fyrsta árs læknanema við læknadeild HÍ og hótanir um prófverkfall ef kröfur þeirra um
niðurfellingu inntökuskilyrða yrðu ekki teknar til greina. Þetta sumar voru fyrstu herskáar aðgerðir sem íslenskir stúdentar stóðu að og
má segja að þær hafi tilheyrt hinni evrópsku stúdentabyltingu sem hófst í París 1968 og heil kynslóð dregur nafn sitt af.
Í nóvember 1973 fóru læknanemar í verkfall til að mótmæla áætlunum læknadeildar um að setja á fjöldatakmarkanir. Hvatamenn
verkfallsins, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Guðmundsson og Gizur Gottskálksson, allir ungir og vel greiddir, voru í stjórn Félags
læknanema á þessum tíma. Báðar myndirnar tók Bragi Guðmundsson, og þær eru varðveittar hjá Ljósmyndasafni Íslands sem er eitt
albesta ljósmyndasafn í heimi.
Nám og kennsla
Turbuhaler innöndunartæki
Turbuhaler er fjölskammta
innöndunartæki sem inniheldur ýmis lyf
við lungnasjúkdómum eins og astma
og langvinnri lungnateppu
Leiðbeiningar um notkun fást á næstu
heilsugæslustöð eða í lyfjaverslunum
Umboðsaðili: Vistor.hf. Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 535 7000
Einfalt og auðvelt
í notkun
1
0
-2
0
1
3
-0
1