Læknablaðið - 01.12.2014, Side 14
654 LÆKNAblaðið 2014/100
ára tímabili. Þetta er svipað hlutfall yngri sjúklinga og í erlendum
rannsóknum.13,14
Helstu niðurstöður voru þær að dánarhlutfall innan 30 daga og
tíðni alvarlegra fylgikvilla reyndust svipuð í yngri og eldri sjúk-
lingahópi. Minniháttar fylgikvillar reyndust hins vegar marktækt
færri meðal yngri sjúklinganna, aðallega vegna lægri tíðni nýtil-
komins gáttatifs. Þetta skýrir að hluta að legutími yngri sjúklinga
reyndist tveimur dögum styttri að meðaltali. Yngri sjúklingar
fengu einnig færri einingar af rauðkornaþykkni og veikindi þeirra
virtist bera bráðar að, þar sem fleiri úr þeirra hópi voru teknir til
aðgerðar með flýtingu. Flýting aðgerðar fer sennilega saman við
hærri tíðni nýlegs hjartadreps hjá yngri sjúklingum, sem einnig
voru með lægra útfall vinstra slegils.
Niðurstöður okkar eru í samræmi við nokkrar erlendar rann-
sóknir á árangri kransæðahjáveitu hjá yngri sjúklingum sem
flestar sýna svipaða tíðni skurðdauða og fylgikvilla,13,14,17,18 þar á
meðal rannsókn D'Errigo og félaga þar sem dánarhlutfall innan 30
daga var 2,5%.13 Fyrir suma af sjaldgæfari fylgikvillunum, eins og
djúpar sárasýkingar og heilaæðaáfall, sást ákveðin tilhneiging í átt
að lægri tíðni fyrir yngri sjúklinga, en þar sem sjúklingaþýðið var
tiltölulega lítið var ekki sýnt fram á marktækan mun á hópunum.
Um þriðjungur yngri sjúklinga fékk einhvern minniháttar
fylgikvilla, borið saman við helming eldri sjúklinga. Mestu mun-
aði um tíðni nýtilkomins gáttatifs sem aðeins greindist hjá 14%
yngri sjúklinga en hjá 35% þeirra eldri. Fjöldi rannsókna hefur sýnt
að aldur er einn af sterkustu áhættuþáttum gáttatifs eftir hjartaað-
gerðir, án þess að ástæðan fyrir því sé þekkt.18,19 Aðrir minniháttar
fylgikvillar, eins og þvagfærasýkingar, grunnar skurðsárasýking-
ar og lungnabólga, voru sambærilegir í hópunum, sem svipar til
rannsóknar Mamoun og félaga.18
Algengasti alvarlegi fylgikvillinn var hjartadrep í eða eftir að-
gerð sem er í samræmi við aðrar rannsóknir, enda þótt tíðni milli
rannsókna sé háð því hvernig hjartadrep er skilgreint.20 Í okkar
rannsókn var notast við frekar víða skilgreiningu á hjartadrepi en
tíðni hjartadreps var engu að síður lág í báðum hópum (3% á móti
5%, p=0,62). Tíðni skurðsýkinga, bráðs nýrnaskaða og fjöllíffæra-
bilunar var einnig sambærileg milli hópa í okkar rannsókn sem er
svipað og í rannsókn Rahmnaian og félaga.21,22
Ekki reyndist munur á tíðni kransæðavíkkana (2% á móti 3%,
p=0,77) eða endurhjáveituaðgerða innan 30 daga (0% á móti 0,4%,
p=1) vegna endurþrenginga. Svipuðum niðurstöðum var lýst í
rannsókn Lamy og félaga.20
Eins og búast mátti við var heildarlifun yngri sjúklinga betri
en þeirra eldri, enda skerðast lífslíkur með hækkandi aldri. Ekki
kemur því á óvart að aldur undir fimmtugu skyldi hafa jákvæð
áhrif á lifun. Sama á við um neikvæð áhrif bráðaaðgerðar og þegar
útfall vinstra slegils er undir 30%, en hvort tveggja eru vel þekktir
neikvæðir forspárþættir lifunar,23 líkt og sykursýki og skert nýrna-
starfsemi.24
Ekki reyndist mikill munur á sjúkdómasértækri lifun á fyrsta
ári frá aðgerð en tilhneiging sást í átt að betri lifun hjá yngri
hópnum eftir bæði 5 og 10 ár (p=0,06-0,07). Varast ber að oftúlka
þessar niðurstöður, enda aldur sjúklinga mjög mismunandi milli
hópa. Engu að síður gefa þessar niðurstöður vísbendingu um að
kransæðahjáveituaðgerðir séu ekki síðri meðferðarkostur fyrir
yngri sjúklinga en þá eldri.
Í þessari rannsókn, líkt og fjölda erlendra rannsókna, var
ekki hægt að sýna fram á hvaða áhættuþættir tengjast snemm-
komnum kransæðasjúkdómi.8,9,25 Karlmenn voru í miklum meiri-
hluta í báðum hópum en hlutfall sjúklinga með einhvern af helstu
áhættuþáttunum (háþrýsting, blóðfituröskun, reykingar og syk-
ursýki) var mjög áþekkt, eða 93% í yngri hópnum og 94% í þeim
eldri (p=0,86). Þessum niðurstöðum svipar til þess sem lýst hefur
verið í öðrum rannsóknum.25 Sá áhættuþáttur sem virtist skera
R A N N S Ó K N
BA
Tafla V. Hlutfallslegt Cox áhættulíkan fyrir heildarlifun.
Áhættuhlutfall 95% öB p-gildi
Aldur <50 ár 0,45 0,21 - 0,96 0,04
Kvenkyn 1,11 0,81 - 1,53 0,50
Sykursýki 1,54 1,12 - 2,11 0,008
Bráðaaðgerð 2,93 1,80 - 4,76 <0,001
GSH* <60 ml/mín/1,73m2 2,42 1,82 - 3,22 <0,001
Útstreymisbrot <30% 2,81 1,52 - 5,19 <0,001
*GSH: gaukulsíunarhraði. öB: öryggisbil
Mynd 3. Heildarlifun (a) og sjúkdómasértæk lifun (b) yngri sjúklinga borin saman við eldri sjúklinga (Kaplan-Meier graf). Á x-ási er fjöldi sjúklinga, eldri og yngri, á hverjum
tíma (number at risk).