Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2014, Page 51

Læknablaðið - 01.12.2014, Page 51
LÆKNAblaðið 2014/100 691 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R tæknialdar. Síldin gaf peninga og stríðið peninga og tækni. Vélvæðing hófst fyrir alvöru og fólkið flutti á mölina.“ Fermdur upp á ástina og Willys Valgarður segir skemmtilega frá því hvernig hann féllst á að láta ferma sig. „Ég trúði ekki á guð. En ég var skotinn í stelpu á Grenivík og sá möguleikann á að hitta hana ef ég gengi til spurninga. Svo var presturinn í Laufási orðinn lasburða og átti erfitt með að keyra jeppa sinn. Ég tók að mér að keyra fyrir hann út á Grenivík. Þannig fermdist ég upp á ástina og Wil- lysjeppaakstur.“ Skólaganga Valgarðs var endaslepp framanaf að hans sögn. „Ég lærði mest heima af eldri systkinum mínum en í skóla gekk ég lítið. Ég var þó 5 vikur í barnaskóla á Grenivík og lærði tvennt: Að það eru tvö l í Halldór og að héraðið Saskatchewan er í Kanada. Síðan var ég einn vetur í Alþýðuskólanum á Laugum í Reykjadal og lærði bókstaflega ekki neitt. Annan vetur á Héraðsskólanum á Laugar- vatni. Eftir einn vetur í Menntaskólanum í Reykjavík settist ég á skólabekk í Mennta- skólanum á Akureyri. Það var afskaplega afturhaldssamur skóli. Engin yfirsýn, engin heimspeki. Íslenskukennslan var ágæt, latínan og franskan einnig, en að maður þroskaðist eitthvað sem manneskja var af og frá. Náttúrufræði og heimspeki náttúrunnar var gjörsamlega hunsuð þó kennarinn væri Steindór Steindórsson, ágætur grasafræðingur, en náttúrufræði- kennsla fór fram án þess að menn litu út um gluggann. Ég hafði áhuga á nátt- úrufræði af öllu tagi. Mest stundaði ég þó teikningu, aðallega pennateikningar. Ég hélt að teikning yrði mitt ævistarf. Taldi þó rétt að taka stúdentspróf og hafði þá fengið mikinn áhuga á heimspekilegum efnum. Ég setti dæmið svo upp að fyrir heimspekivinnu væri gott að þekkja fyrst manninn sem dýr, þekkja bæði efnislega gerð þess manndýrs og líka að þekkja til atferlis þeirrar tegundar. Í MA var líkami mannsins aldrei á dagskrá sem viðfangs- efni í námi. Atferli tegundarinnar manns, félagsleg hegðun, var ekki til umræðu. Ég fór því fyrst í læknisfræði við Háskóla Íslands. Að henni lokinni heillaðist ég af frumunni sem kalla mætti grunneiningu lífveranna. Varð að skilja hvað drífur hana áfram.“ Orkubúskapur frumna Væntingar til háskólanámsins snérust þó upp í nokkur vonbrigði að sögn Valgarðs. „Jón Steffensen, hinn merkasti vísinda- maður, kenndi vefjafræði og anatómíu. Hann var ómögulegur kennari, einn sá versti sem ég hef haft. Efnafræði kenndi Steingrímur Baldursson, óskaplega fínn kennari, ég lærði mína efnafræði af mikili nautn. Í miðhluta námsins eignaðist ég „Ég hafði óslökkvandi áhuga á fólkinu og alvörulífi þess, leikverkinu sjálfu, alvöruleiknum. Með snert af kómedíu. Og umgjörðina, sviðið, myndaði náttúran sjálf,“ segir skáldið og vísindamaðurinn Valgarður Egilsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.