Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2014, Síða 54

Læknablaðið - 01.12.2014, Síða 54
694 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Það vakti athygli okkar á Læknablaðinu að íslenskur læknir, Gunnar H. Gíslason sérfræðingur í hjartasjúkdómum, var í haust ráðinn yfirmaður rannsókna hjá dönsku hjartaverndarsamtökunum, Hjerteforeningen. Gunnar hefur verið búsettur í Danmörku í 17 ár og stundaði sérnám sitt við háskólasjúkrahúsin í Kaupmannahöfn eftir nám við HÍ (1986-92) og læknisstörf í Reykjavík og á landsbyggðinni til ársins 1997. Gunnar hefur um skeið gegnt stöðu prófessors í hjartasjúkdómum við lækna- deild Kaupmannahafnarháskóla og er yfirlæknir á Gentoftesjúkrahúsinu í Kaup- mannahöfn. „Það var hálfgerð tilviljun að ég tók þetta starf að mér en það atvikaðist þannig að ég var á ráðstefnu í Washing- ton með formanni Hjerteforeningen og hann tjáði mér að fyrir dyrum stæði að endurskipuleggja samtökin. Ætlunin væri að gera samtökin meira áberandi í sam- félaginu með fræðslu og forvörnum en einnig setja á stofn eigin rannsóknarteymi í hjartasjúkdómum. Hann spurði hvort ég hefði áhuga á því að taka að mér stöðu yfirmanns rannsókna. Fyrirkomulagið fram að þessu var þannig að samtökin voru meira ráðgefandi um rannsóknir og lögðu fé til þeirra en frumkvæði og bein þátttaka í rannsóknum var ekki hluti af starfinu. Ég sagðist ekki hafa áhuga á því. En þá spurði hann á móti hvort ég gæti hugsað mér starfið ef stofnuð yrði rannsóknardeild innan samtakanna. Það fannst mér strax miklu áhugaverðara. Þetta var síðan í undirbúningi í nokkra mánuði og niðurstaðan er sú að ég var ráðinn sem yfirmaður rannsókna hjá sam- tökunum og fæ sérstaka afmarkaða fjár- veitingu og starfsfólk til að sinna þessu verkefni.“ Stefnubreyting hjá samtökunum Gunnar segir starfið hjá hjartaverndar- samtökunum vera eiginlega viðbót við önnur störf hans. „Þetta er hálf staða og ég held áfram störfum mínum sem prófessor og yfirlæknir. Ég held áfram með rannsóknarteymi mitt á Gentofte og þetta er því rekið samhliða og því fylgir vissulega talsverð umsýsla. Í rannsóknar- teyminu á Gentofte eru um 35 manns og teymið hjá hjartasamtökunum verður líklega um 10-15 manns þegar það er full- skipað. Þetta skarast auðvitað verulega á mörgum sviðum, þar sem ég get nýtt reynsluna og þekkinguna sem er til staðar á Gentofte til að hjálpa til hér.“ Ef dönsku hjartaverndarsamtökin eru borin saman við Hjartavernd á Íslandi kemur verulegur munur í ljós. „Megin- munurinn er sá að Hjartavernd hefur stundað eigin rannsóknir um árabil samhliða því að vera sjúklingasamtök en samtökin hér hafa nánast eingöngu verið sjúklingasamtök sem lagt hafa sjálf- stæðum rannsóknum lið með styrkjum. Þetta er því veruleg stefnubreyting sem ég er að innleiða en auk þess að hefja eigin Dönsku hjartaverndarsamtökin Vilja hafa áhrif á umræðu og þróun rannsókna ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Héraðsgeðlækningadeildin í Tynset Héraðsgeðlækningadeildin í Tynset er í Hedmark-fylki, 170 kílómetra frá Þrándheimi. Við þjónum svæði með u.þ.b. 22.000 íbúa. Þar eru 2 klínískar deildir: Bráðamóttaka með 10 rúmum og ein göngudagdeild fyrir fullorðna með samþættan meðferðarhóp. Deildin er með 3 stöður fyrir yfirlækna, 1 námsstöðu fyrir lækna í sérfræðinámi, sálfræðinga, háskólamenntað starfsfólk og umhverfisstarfsfólk. Geðlæknir Við leitum að yfirlækni í geðlækningum fyrir göngudagdeildina í 100 % fasta stöðu. Við bjóðum upp á • Gott samstarf á staðnum og við utanaðkomandi aðila. • Hvetjandi og fjölbreytt starf. • Mikla möguleika fyrir faglega þróun í gegnum fræðslu á staðnum og með námskeiðum. • Umhverfi sem býður upp á gjöfult útivistarlíf. • Hjálp með að finna húsnæði. • Tungumálanámskeið. Hafið samband við: Steinar Trettbergstuen, deildarstjóra, + 47 480 63 216. Umsóknarfrestur: 1. janúar 2015 Sykehuset Innlandet HF notar veraldarvefinn fyrir starfsumsóknir (Webcruiter). Farið á heimasíðu okkar www.sykehuset-innlandet.no til að sækja um starf og fyrir frekari upplýsingar. fr an tz .n o Geðheilsuverndardeild

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.