Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 60

Læknablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 60
700 LÆKNAblaðið 2014/100 Ú R S Ö G U l æ k n i S F R æ ð i n n a R Í grein Geirs W. Jacobsens, Erlendar Hem og Jóhanns Á. Sigurðs- sonar1 í Læknablaðinu um baráttuna við ginklofa í Vestmanna- eyjum er fjallað um samstarf Peters Antons Schleisner læknis og Solveigar Pálsdóttur ljósmóður. Solveig fæddist í Vestmannaeyjum árið 1821 og var ein af 13 börnum Páls Jónssonar prests á Kirkjubæ og Guðrúnar Jónsdóttur ljósmóður. Um tvítugt ákvað Solveig að mennta sig og verða ljós- móðir. Guðrún móðir hennar hafði starfað sem ljósmóðir en ekki hlotið til þess formlega menntun. Miklar líkur eru á að danski héraðslæknirinn í Vestmanna- eyjum, dr. Andreas Haaland (1814-1855), hafi hvatt Solveigu til að læra ljósmóðurfræði í Kaupmannahöfn. Solveig var ógift og barnlaus og þurfti að fá undanþágu til náms en engin stúlka hafði fengið námsvist í Fæðingarstofnuninni í Kaupmannahöfn nema hafa sjálf fyrst alið barn. Undanþága fékkst sem var staðfest með svokölluðu kansellí- bréfi dagsettu 9. desember 1841. Í bréfum Haalands kemur meðal annars fram að fyrsta skilyrði til að uppræta ginklofa í Vest- mannaeyjum sé að fá lærða ljósmóður til að sinna sængurkonum. Taldi hann orsök ginklofans vera óhreinindi, mataræði og með- höndlun á naflastreng. Allar konur skyldu fæða börn sín á sér- stökum fæðingarstofnunum þar sem ljósmóðir og læknir sæju um umönnun þeirra fyrstu vikurnar. Mæður skyldu hafa börn sín á brjósti í stað þess að gefa þeim kúamjólk og vatn.1 Á þessum tíma var ungbarnadauði mikill og sýndu tölur að 95% var af völdum ginklofa. Fátækt var mikil í Vestmannaeyjum á þessum árum og húsa- kynni léleg. Þekkingarleysi og fáfræði ríkti um almennt hrein- læti. Um 7 af hverjum 10 börnum sem fæddust í Vestmannaeyjum létust á fyrstu 5-12 dögum ævinnar.2 Solveig fór til Kaupmannahafnar árið 1842 til eins árs náms. Haaland hélt áfram að berjast fyrir því að sérstök fæðingarstofn- un yrði reist í Vestmannaeyjum. Árið 1847 fólu dönsk yfirvöld Schleisner lækni að reisa slíka stofnun og hefja rannsóknir á or- sökum ginklofa. Fæðingarstofnunin tók til starfa í september 1847 og var fæðingarstofan flutt á heimili Solveigar 1848 en Matthías Markússon smiður og eiginmaður Solveigar byggði húsið. Á fyrsta ári eftir að stofnunin tók til starfa lækkaði dánartíðni nýbura um helming.1 Strangar kröfur voru gerðar um hreinlæti og mataræði. Börnin fengu pela heim með sér ásamt barnafötum og þvottasvampi. Áhersla var lögð á brjóstagjöf og aukið græn- meti í fæðu. Skráning á dánarorsökum nýbura var bætt.2 Eftir að Schleisner fór frá Eyjum hélt Solveig áfram að starfa með sama hætti.1 Árið 1848 fór Schleisner aftur til Danmerkur og var Sol- veigu falið að sinna læknisstörfum í Eyjum til ársins 1852 en þá kom Davidsen til starfa til ársins 1860. Solveigu var enn á ný falið að gegna læknisstörfum næstu þrjú árin. Magnús Stephensen gerðist héraðslæknir í rúmt ár árið 1863 og var Solveigu í þriðja sinn falið að annast læknisstörf í héraðinu frá árinu 1864 til 1865 en þá tók Þorsteinn Jónsson læknir til starfa. Solveig giftist Matthíasi Markússyni trésmið árið 1845 og eignuðust þau 9 börn. Þau byggðu hús sitt, Landlyst, árið 1848 og tveimur árum síðar létu dönsk yfirvöld byggja yfir fæðingar- stofnunina sem var í vesturenda húsins. Húsið er nú safn og stað- sett á Skansinum í Eyjum. Í safninu er ljósmóðurtaska Solveigar og ýmis áhöld sem hún notaði við fæðingar og aðhlynningu. Hjónin fluttu til Reykjavíkur árið 1867 og byggðu sér íbúðar- hús við Skólavörðustíg sem þau nefndu Holt. Solveig starfaði í Reykjavík til 1886 er hún lést.2 Ég kann Læknablaðinu bestu þakkir fyrir að fá tækifæri til að greina lítillega frá ævi Solveigar og starfi sem afkomandi hennar. Heimildir 1. Jacobsen GW, Hem E, Sigurðssonar JÁ. Baráttan við ginklofa í Vestmannaeyjum. Læknablaðið 2014; 100: 90-6. 2. Víglundsson Þ. Blik, ársrit Vestmannaeyja.1967. Solveig Pálsdóttir ljósmóðir (1821-1886) Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur gudrgrim@landspitali.is Á myndinni er langalangamma greinarhöfundar, Solveig Pálsdóttir ljósmóðir. Meðal afkomenda hennar í læknastétt eru Páll Torfi Önundarson og Úlfur Ragnarsson. Uppruni myndarinnar og ljósmyndari er óþekktur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.