Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 12

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 12
80 LÆKNAblaðið 2015/101 Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða algengi sykursýki á íslenskum hjúkrunarheimilum yfir árin 2003-2012. Einnig að gera samanburð á heilsufari, færni, lyfjanotkun og sjúkdómsgrein- ingum íbúa með eða án sjúkdómsgreiningarinnar sykursýki sem bjuggu á hjúkrunarheimili árið 2012. Efniviður og aðferð Mælitækið sem notað var við gagnasöfnun var Gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa á öldrunarstofnunum, útgáfa 2.0 (Minimum Data Set 2.0) sem er gagnasöfnunarhlutinn af matstæk- inu Raunverulegur aðbúnaður íbúa (Resident Assessment Instru- ment; RAI). Gagnasafnið er þó aðeins partur af RAI-matstækinu og verður vísað til þess sem RAI-mælitækis í þessari umfjöllun. Í RAI-mælitækið eru skráðar upplýsingar um heilsufar, færni og þarfir íbúa á hjúkrunarheimilum. Frá árinu 1996 hafa íbúar á ís- lenskum hjúkrunarheimilum verið metnir með RAI-mati og frá árinu 2003 hefur það verið gert að minnsta kosti þrisvar á ári.16 RAI-mælitækið inniheldur um 350 breytur og var fyrst og fremst hannað sem klínískt mælitæki til að bæta umönnun en hefur einnig verið notað við gagnasöfnun fyrir rannsóknir víða um heim. Mælitækið hefur reynst gagnlegt við alþjóðlegan sam- anburð og rannsóknir hafa sýnt fram á réttmæti og áreiðanleika þess.17 Hjúkrunarfræðingur sem hefur lært á mælitækið hefur yfir- umsjón með gerð matsins ásamt lækni, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og sjúkraliða. Nákvæm leiðbeiningabók sem skilgreinir hvernig meta á hvert atriði styður við framkvæmd matsins en upplýsinga fyrir matið er aflað úr sjúkraskrá, með athugun á íbúanum og viðtali við íbúa og ættingja hans. Í þessari rannsókn eru notaðar valdar breytur úr RAI-mælitækinu auk útkomu úr 6 kvörðum sem hann- aðir hafa verið fyrir mælitækið og nota má til að skoða breytingu á færni og heilsufari yfir tíma. Lífskvarðinn hefur gildi frá 0 til 5. Lægsta gildið 0 gefur til kynna að heilsufar einstaklingsins sé stöðugt en hæsta gildið 5 að heilsu- far sé óstöðugt, hætta sé á andláti, sjúkrahússinnlögn og miklu álagi á umönnunaraðila. Rannsóknir hafa staðfest að kvarðinn hefur forspárgildi fyrir andlát.17,18 Verkjakvarðinn hefur gildi á bilinu 0 til 3. Gildið 0 merkir að ein- staklingurinn hefur enga verki en hæsta gildið 3 að um mjög mikla og óbærilega verki sé að ræða. Niðurstöður rannsakenda hafa bent til að kvarðinn sé áreiðanlegur til að meta verki hjá íbúum á hjúkr- unarheimilum.19 Þunglyndiskvarðinn hefur lægsta gildi 0 sem gefur til kynna að einstaklingurinn hafi engin einkenni þunglyndis. Gildi 3 bendir til vægs þunglyndis og gildi 14, sem er hæsta gildi kvarðans, að um mjög alvarlegt þunglyndi sé að ræða.20 Rannsakendur hafa bent á að þörf sé á frekari rannsóknum á kvarðanum, en að kvarð- inn sýni mjög gott næmi og viðunandi sérhæfni.20 Vitræni kvarðinn hefur sýnt ágæta fylgni við MMSE (Mini-Men- tal State Examination) við mat á vitrænni getu. Gildið 0 þýðir að einstaklingurinn hefur óskerta vitræna getu en síðan versnandi vitræna getu með hækkandi gildum og hæsta gildið 6 gefur til kynna mjög mikla vitræna skerðingu.21 Langi ADL-kvarðinn sýnir færni einstaklingsins í athöfnum daglegs lífs (ADL) og hefur gildi á bilinu 0 til 28. Hækkandi gildi benda til versnandi færni í ADL og hafa athuganir bent til næmi kvarðans við breytingar á færni.17 Virknikvarðinn hefur gildi frá 0 til 6 og gefur til kynna meiri virkni eftir því sem talan er hærri. Núll merkir að einstaklingur- inn hefur dregið sig í hlé frá félagslegum samskiptum en hæsta gildið 6 gefur til kynna mikið frumkvæði og þátttöku í félagsleg- um athöfnum. Gildin 0-2 hafa verið tengd lítilli félagslegri virkni í samanburði við þá sem hafa gildi á bilinu 3-6.22 Úrtak Gögnin sem notuð voru í rannsókninni var mat gert á íbúum á íslenskum hjúkrunarheimilum með RAI-mælitækinu yfir árabilið 2003-2012 (N=16.169). Notað var nýjasta mat hvers einstaklings fyrir hvert ár, en mat gert við fyrstu komu eða eftir nýlega endur- komu voru ekki notuð. Þetta var gert til að varpa ljósi á heilsufars- þætti sem tengdust meðferð á hjúkrunarheimilinu. Í samanburði á milli ára er því um blandaða hópa að ræða og sami einstaklingur getur átt mat í gögnum frá einu eða fleiri árum. Tölfræði Lýsandi og greinandi tölfræði var notuð til að greina gögnin. Fyrir stikalaus gögn, raðbreytur og nafnbreytur var notað Pearson Kí- kvaðrat próf og „Yates Continuity Correction“ notuð þegar um 2x2 töflur var að ræða. Við athugun á leitni yfir mörg ár var notað Kí- kvaðrat próf fyrir leitni. T-próf milli óháðra hópa var notað fyrir R a n n S Ó k n Tafla I. Fjöldi greininga með RAI-mælitækinu eftir árum, meðalaldur og hlutfall kvenna. Ár N % Meðalaldur (sf) Konur n (%) 2003 447 2,8 82,3 (9,1) 293 (65,5) 2004 1001 6,2 82,8 (8,5) 677 (67,6) 2005 1383 8,6 83,4 (8,2) 922 (66,7) 2006 1721 10,6 84,4 (7,9) 1149 (66,8) 2007 1922 11,9 84,4 (7,9) 1268 (66,0) 2008 1885 11,7 84,7 (8,2) 1247 (66,2) 2009 1867 11,5 84,9 (8,2) 1223 (65,5) 2010 1754 10,8 85,0 (8,4) 1192 (68,0) 2011 1852 11,5 84,5 (8,6) 1232 (66,5) 2012 2337 14,5 84,7 (8,2) 1531 (65,5) Samtals 16169 100 84,2 (8,4) 11.294 (66,3) Mynd 1. Hlutfall íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum með sykursýki á árunum 2003- 2012.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.