Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.2015, Page 24

Læknablaðið - 01.02.2015, Page 24
92 LÆKNAblaðið 2015/101 150 mg á dag. Honum var vísað til sálfræðings sem byrjaði á því að fræða hjónin um þráhyggjuárátturöskun og ráðlagði atferlismeð- ferð með áherslu á berskjöldun og svarhömlun. Maðurinn var afar ákveðinn í að ná tökum á einkennum sínum og fylgdi hann vel ráðleggingum um að fresta áráttum svo sem handþvotti og endur- teknum spurningum til eiginkonu. Fékk hann bæði munnlegar og skriflegar leiðbeiningar um stigvaxandi frestun þess að þvo sér eða skoða barnið. Jafnframt fékk hann skýrar leiðbeiningar um að snerta smám saman oftar föt barnsins, rúm þess og loks barnið sjálft. Sálfræðingurinn setti honum fyrir ákveðin afmörkuð verk- efni í hverju viðtali og var síðan farið yfir þau í næsta viðtali. Hann mætti samtals 12 sinnum til sálfræðingsins á 18 vikum. Meðferðin var árangursrík og í síðustu tveimur viðtölunum lýsti hann því að hann fengi enn hugsanir um að geta mögulega smitað barnið en þær vörðu stutt og hann var farinn að geta haldið á barninu og sinnt því með eðlilegum hætti. Eiginkonan lýsti því í síðasta viðtalinu að hann væri hættur að vakna á nóttunni og verulega hafði dregið úr þvotta- og athugunaráráttum. Hann hélt áfram töku sertralíns 150 mg á dag í 12 mánuði. Sjúkratilfelli II Umræddur sjúklingur er 48 ára gömul fráskilin kona sem er öryrki, býr ein og á tvö uppkomin börn. Hún veiktist fyrst af alvarlegu þunglyndi og kvíða í kjölfar fæðingar eldra barnsins þegar hún var 21 árs. Hún hitti í kjölfarið geðlækni á stofu og tók í nokkur ár þunglyndislyfið flúoxetín sem dró nokkuð úr einkennum hennar. Síðar fór að bera á vaxandi heilsukvíða og í kjölfar alvarlegra veik- inda yngri dóttur hennar fyrir um sex árum komu fram vaxandi þráhyggjuhugsanir sem ágerðust hratt. Hún fór að einangra sig frá öllum nema nánustu ættingjum, reykingar jukust í allt að tvo sígarettupakka á dag og hún nærðist illa. Hún var síðast lögð inn á bráðageðdeild fyrir þremur árum með nánast stöðugar þráhyggju- hugsanir sem snerust aðallega um að hún hefði mögulega sýkst af því að stíga til dæmis á glerbrot eða nálar og var jafnframt með mjög ágengar hugsanir um að hún gæti mögulega smitað aðra með snertingu. Hún var einnig með mikla efasemdaþráhyggju um að hún kynni að hafa gleymt að greiða reikninga eða standa í skilum við yfirvöld. Þessum þráhyggjuhugsunum hefur aðallega fylgt sú árátta að spyrja alla sem hún hittir endurtekið hvort hún hafi mögulega getað valdið einhverjum skaða eða yfirsést eitthvað. Hún dvaldi í þrjá mánuði á móttökugeðdeild þar sem reynd var meðferð með SSRI-lyfjunum sertraline (100-200 mg) og escitalop- ram (20-30mg). Jafnframt var bætt við meðferð með geðrofslyfjum, fyrst olanzapine í skömmtum 5-15 mg að kvöldi og risperdal 2-6 mg á dag. Eftir veruna á móttökugeðdeildinni fluttist hún yfir á endurhæfingargeðdeild þar sem hún dvaldi í eitt ár. Áfram voru reynd serótónínvirk lyf í háum skömmtum. Eftir tvo mánuði var hún sett á klómípramín sem aukið var á 6 vikum frá 50 mg á dag upp í 200 mg á dag. Var hún jafnframt sett á olanzapine 10 mg að kvöldi en hún þoldi illa geðrofslyfin risperdal, quetiapine og aripiprazole vegna margvíslegra aukaverkana. Í innlögninni hitti hún reglulega sálfræðing sem reyndi eins og hægt var að beita aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Hún átti afar erfitt með að taka þátt í meðferðinni og snerust mörg viðtöl að mestu um það að reyna að styðja hana í hennar gríðarlega miklu vanlíðan. Hún var afar föst í þráhyggjuhugsunum og vegna þessa gat hún sáralítið einbeitt sér að skipulagðri samtalsmeðferð. Þó geðslag hennar yrði aðeins léttara og kvíði minnkaði almennt eitthvað á meðan á inn- lögn stóð létu þráhyggjuáráttueinkenni hennar lítt undan meðferð. Henni bauðst að flytja í búsetukjarna fyrir einstaklinga með geð- rænan vanda en afþakkaði það og var því útskrifuð heim að lokinni dvölinni á endurhæfingargeðdeild. Fékk hún vitjanir frá sérhæfðu geðteymi tvisvar í viku og hitti geðlækni reglulega í tvö ár sem hélt áfram að reyna ýmsar lyfjabreytingar. Hún var mjög óvirk, félagslega einangruð og með nánast stöðugar þráhyggjuhugsanir. Í ljósi þess að konan þjáist af alvarlegri þráhyggjuáráttu sem árum saman hefur ekki látið undan hefðbundunum meðferðarúrræðum og sökum þess að lífsgæði hennar eru gríðarlega skert vegna sjúk- dómsins var ákveðið að bjóða henni nýja meðferð sem vart er kom- in af tilraunastigi. Um er að ræða raförvun á djúphnoðum heilans sem ætlað er að draga úr ofvirkni í ákveðnum brautum heilans sem tengja saman heilabörk, undirstúku og djúphnoð. Fyrst var staðsetning raförvunar kortlögð með segulómmyndgreiningu á heila. Því næst voru gerð göt á höfuðkúpu í svæfingu og vírar með rafskautum leiddir niður að ákveðnum stað í djúphnoðum, nánar tiltekið capsula interna anterior. Við ísetningu rafskautanna var notast er við þrívíddarramma sem festur var höfuð sjúklings fyrir aðgerðina og var hann notaður til þess að stýra rafskautunum inn að þeim stað sem kortlagður var út frá segulómmyndunum (mynd 3). Vírarnir voru síðan tengdir við lítið raförvunartæki sem komið var fyrir undir húð í brjóstvegg sjúklingsins. Þessari meðferð hefur verið beitt við alvarlegustu tilfellum þráhyggjuárátturöskunar þar sem áralöng lyfja- og sálfræðimeð- ferð hefur ekki skilað árangri. Aðgerðin var framkvæmd á Íslandi af sérhæfðum íslenskum heilaskurðlækni sem starfar erlendis. Var þetta í fyrsta skipti sem slíkri meðferð er beitt við geðröskun hér á landi og árangur hennar er enn sem komið er ekki ljós. Y F i R l i T Mynd 3. Þrívíddarrammi notaður við ísetningu rafskauta í heila. Mynd: Þorkell Þor- kelsson ljósmyndari Landspítalans.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.