Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.2015, Page 31

Læknablaðið - 01.02.2015, Page 31
LÆKNAblaðið 2015/101 99 Kjarasamningar í höfn ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Kynningarfundur LÍ á nýgerðum kjarasamningi sem haldinn var á Hótel Natura föstudaginn 9. janúar er langfjölmennasti fundur í sögu læknafélaganna á Íslandi. Varla hefur farið framhjá neinum að nýir kjarasamningar Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands við ríkið voru undirritaðir 7. og 8. janúar. Ánægja með nýju samningana virtist almenn í báðum félögunum og var það enn frekar staðfest í atkvæðagreiðslu en ríflega 91% greiddra atkvæða féllu samningnum í vil í kosningu LÍ og rúm 85% sögðu já í atkvæðagreiðslu Skurðlæknafélagsins. Skýrara getur það varla verið. Samninganefnd LÍ átti sinn fyrsta fund með samninganefnd ríkisins í maí 2014 og lagði þar fram ítarlega kröfugerð sem mik- il undirbúningsvinna hafði verið lögð í. Er skemmst frá því að segja að samninga- nefnd ríkisins leit varla á kröfugerðina en bauð strax 2,8% hækkun launa og við það sat allar götur þar til 27. október að verk- fall lækna á sjúkrahúsum og heilsugæslu- stöðvum var orðin staðreynd. Þegar rennt er til baka yfir atburðarás síðustu mánuða má glöggt sjá að ýmis met voru slegin og skref stigin er ekki höfðu verið tekin fyrr. Verkfallið var hið fyrsta í sögu LÍ og SKÍ og hið fyrsta í sögu íslenskra lækna. Yfir 95% þeirra lækna er greiddu atkvæði um verkfallsboðunina sögðu já. Fjölmenn- asti fundur í sögu Læknafélagsins var haldinn. Í minnisblaði Landlæknisembættisins frá 20. janúar 2015 eru tölulegar upplýs- ingar um áhrif verkfallsins. Páll Matthías- son forstjóri Landspítala hefur sagt að það muni taka spítalann góðan part úr árinu að vinda ofan af þeim biðlistum sem verkfallið skapaði. Eflaust, en varla datt nokkrum manni í hug að verkfallið hefði ekki áhrif. Þá hefði verið til lítils unnið. Verkfallið og kjarabaráttan snérist um launakjör lækna en í stærra samhengi snérist það um að bjarga heilbrigðiskerf- inu íslenska frá hruni. Landflótti og ekki síður landótti íslenskra lækna vegna bágra launa- og starfskjara er löngu þekkt stað- reynd og þjóðin gerði sér grein fyrir að heilbrigðiskerfið var undir í kjarasamning- unum. Um þetta eru forystumenn lækna sammála og segja ennfremur að samstaða læknastéttarinnar í baráttunni allri hafi verið algjört skilyrði þess að svo vel tókst til og að forysta félaganna hvikaði hvergi frá settu marki. Þegar hillti undir að nýr samningur væri að fæðast, færðist líf í ríkisstjórnina sem fram að því hafði að því er virtist haldið sig til hlés en óskaði nú eftir því að læknafélögin skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu um endurreisn heilbrigðis- kerfisins í kjölfar nýs kjarasamnnings. Þessi yfirlýsing var svo undirrituð sam- hliða kjarasamningi læknafélaganna við ríkið og verður ekki annað sagt en að hún lofi góðu; ef staðið verður við allt sem þar er sett niður á blað ætti ekki að þurfa að örvænta um íslenska heilbrigðiskerfið í framtíðinni. Yfirlýsingin er undirrituð af forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og starfandi fjármálaráðherra, auk formanna Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags- ins. Hún tekur af öll tvímæli um góðan vilja stjórnvalda til að efla heilbrigðiskerf- ið, bæta launa- og starfskjör lækna svo þau verði samkeppnisfær við nágrannalöndin, byggja nýjan Landspítala, koma rafrænni sjúkraskrá í gagnið og koma heilbrigðis- kerfinu í það horf sem þjóðin vill að það eigi að vera. Nú er bara að standa við stóru orðin.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.