Læknablaðið - 01.02.2015, Side 33
LÆKNAblaðið 2015/101 101
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
„Það fylgir því ótrúlegur léttir að hafa
lokið þessu og náð samningi sem hægt er
að vera sáttur við,“ segja þau Kristín Huld
og Helgi Kjartan sem leiddu Skurðlækna-
félag Íslands í kjarabaráttu þess og samn-
ingagerð við ríkið.
„Þetta er besti samningur sem við
skurðlæknar höfum náð og sannarlega
skref í rétta átt til þess að bæta kjör
lækna,“ segir Kristín Huld.
„Við settum okkur markmið í upphafi
og þau náðust nánast öll í þessum samn-
ingi. Hvað varðar launaliðinn þá náðust
sett markmið en við komumst ekkert
áfram með lífeyrissjóðsgreiðslur eins og
vonast var til en að öðru leyti getum við
verið nokkuð sátt,“ segir Helgi Kjartan.
„Samningurinn er að flestu leyti hlið-
stæður samningi LÍ en þó eru nokkur
frávik sem byggja á sérstöðu skurðlækna.
Þar má nefna greiðslur fyrir gæsluvaktir
en þar geta vaktir skurðlækna verið mjög
þungar og því eðlilegt að greitt sé meira
eftir því hver álagsþunginn er,“ segir
Kristín Huld.
„Við höfðum ekki samráð við samn-
inganefnd LÍ en það voru samskipti á milli
samninganefndanna, óformleg reyndar,
en segja má að báðir aðilar hafi vitað hvar
hinn var staddur á hverjum tíma. Samn-
inganefnd ríkisins vildi reyndar gera alveg
eins samning við okkur og gerður var
við LÍ en við héldum fram sjónarmiðum
skurðlækna og töldum að sjálfsögðu
lykilatriði að semja sérstaklega fyrir þá,“
segir Helgi Kjartan.
Kristín Huld rifjar upp að við síðustu
samningagerð árið 2011 hafi þeim einfald-
lega verið réttur samningur ríkisins við
LÍ og óskað eftir að þau skrifuðu undir.
„Samninganefnd ríkisins vill líta svo á
að þetta séu tveir hliðstæðir hópar og vill
semja við okkur á
þeim forsendum.“
„Það á vissulega
við um mörg atriði
en alls ekki öll og um
þau þarf að semja
sérstaklega,“ bætir
Helgi Kjartan við.
Varla er hægt ann-
að en spyrja hvort
það sé í rauninni
nauðsynlegt fyrir
skurðlækna að vera í
sérstöku stéttarfélagi
og semja sérstaklega um kjör sín.
Þau segja að aðskilnaður skurðlækna
og Læknafélags Íslands hafi verið orðinn
staðreynd þegar þau komu að félaginu og
samruni við LÍ hafi ekki verið ræddur á
vettvangi félagsins undanfarin ár.
„Við teljum ótvírætt að skurðlæknar
séu sérstakur hópur þar sem eru mjög fá-
mennar undirsérgreinar með mjög þunga
vaktabyrði fyrir einstaklingana og mikil-
vægt að semja sérstaklega um það.“
„Þessi samningagerð tók miklu lengri
tíma en við höfðum reiknað með og við
trúðum því hreinlega ekki að óreyndu að
ríkið myndi reka okkur alla leið í verkfall.
Það var bókstaflega ekkert í boði af hálfu
samninganefndar ríkisins fyrir verkfallið.
Og í rauninni gerðist ekkert fyrr en eftir
miðjan desember og þá var það eflaust
vegna þess að samninganefndin fékk
loksins raunverulegt umboð til að semja
við okkur,“ segir Helgi Kjartan.
Skurðlæknar eru nokkuð misleitur hóp-
ur og þó við höfum skynjað að þeir væru
tilbúnir í aðgerðir kom okkur verulega á
óvart hversu þétt samstaðan var og allir
stóðu bókstaflega að baki okkur í samn-
inganefndinni sem einn maður. Við skynj-
uðum velvilja almennings einnig mjög
sterkt og gættum þess mjög vel að þrátt
fyrir verkfallsaðgerðir væri fyllsta öryggis
sjúklinga gætt. Þetta skilaði sér allt saman
í okkar baráttu.“
Hvort samningurinn verður til þess að
íslenskir sérfræðingar í skurðlækningum
starfandi erlendis muni flytja heim verður
framtíðin að leiða í ljós.
„Þetta bætir kjör okkar verulega og
gefur okkar fólki von um að framhald
verið á. Fyrsta skrefið er að halda þeim
læknum heima sem þegar eru hér og síðan
að fá þá heim sem búsettir eru erlendis.
Liður í því er yfirlýsingin sem ríkisstjórnin
annars vegar og formenn læknafélaganna
hins vegar skrifuðu undir í kjölfar samn-
inganna um átak í bættri heilbrigðisþjón-
ustu á Ísland. Óskin um þessa yfirlýsingu
kom frá stjórnvöldum upphaflega og eftir
mikla yfirlegu og talsverðar breytingar
frá upphaflegu skjali skrifuðu formenn
læknafélaganna undir. Þetta er afskaplega
jákvæð yfirlýsing og lýsir góðum vilja til
að bæta kerfið. Það verður síðan að koma
í ljós hvernig stjórnvöld hyggjast standa
að því,“ segja þau Helgi Kjartan og Kristín
Huld að lokum.
„Trúðum því ekki
að kæmi til verkfalls“
– segja Helgi Kjartan Sigurðsson formaður
Skurðlæknafélags Íslands og Kristín Huld
Haraldsdóttir varaformaður
„Við settum okkur markmið í upphafi og þau náðust
nánast öll í þessum samningi,“ segja Kristín Huld
Haraldsdóttir og Helgi Kjartan Sigurðsson.