Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 38

Læknablaðið - 01.02.2015, Síða 38
106 LÆKNAblaðið 2015/101 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Á vegum orlofssjóðs Læknafélags Íslands er rekin umfangsmikil starfsemi en í eigu sjóðsins eru 8 orlofshús og tvær íbúðir, auk nokkurra íbúða sem sjóðurinn leigir til handa félagsmönnum. Í lok síðasta árs var tekinn í notkun nýr bókunarvefur sjóðsins og í vor verður nýtt hús í boði á orlofssvæðinu í Svignaskarði. Orlofssjóður Læknafélags Íslands er fjármagnaður með framlögum vinnuveit- enda sem samið er um í kjarasamningum. „Það eru ekki allir sem átta sig á því að þetta er ekki dregið af laununum heldur er þetta umsamið framlag vinnuveitanda, 0,25%, sem greiðist til viðbótar við launin. Ég hef því hugsað með velþóknun til nýja kjarasamningsins því með honum munu tekjur sjóðsins aukast og fjárhagur hans styrkjast,“ segir Jörundur léttur í bragði. Ásamt honum sitja í stjórn sjóðsins Bolli Bjarnason og Rafn Benediktsson. „Stjórnin er mjög samhent og rekstur sjóðsins hefur gengið vel á undanförnum árum.“ Nýr orlofsvefur „Þegar ég tók við formennsku í Orlofs- sjóðnum snemma árs 2008 var nýlega búið að uppfæra vef orlofssjóðsins. Síðan hefur tíminn liðið og við vorum að lenda í vandræðum með nauðsynlegar upp- færslur á vefnum. Við fórum því að líta í kringum okkur eftir nýjum vef og niður- staðan varð sú að við völdum Frímann frá AP Media og hann var tekinn í notkun seint á síðasta ári,“ segir Jörundur. „Fyrsta breytingin sem notendur mæta þegar þeir fara inn á vefinn er að nota verður rafræn skilríki, eða íslykilinn, en það ætti nú ekki að vefjast fyrir neinum enda flestir nú þegar komnir með slíkt. Vefurinn er myndrænni og auðveldara að átta sig á valkostum. Þá er mun auð- veldara fyrir starfsfólk skrifstofunnar að uppfæra upplýsingar á vefnum, sem er til þæginda fyrir notendur, og bæta við eða breyta valkostum með stuttum fyrirvara svo allar upplýsingar séu sem réttastar.“ Frá því vefurinn var tekinn í notkun fara allar bókanir fram í gegnum hann. Ekki er lengur hægt að hringja á skrif- stofuna og bóka þannig. „Við teljum að þetta sé til mikillar hagræðingar því nú sitja allir við sama borð og bókanir eru skráðar strax. Þá er breyting fólgin í því að greitt er strax við bókun með kreditkorti og það teljum við að muni bæta nýtinguna og draga úr „draugabókunum“. Það vildi brenna við að fólk bókaði bústað, ætlaði svo að greiða síðar en hætti svo við án þess að láta vita og bústaðurinn var auður og ógreiddur þá vikuna.“ Jörundur bætir því við að ef fólk lendir í vandræðum með bókun á netinu er starfsfólk skrifstofunnar boðið og búið til aðstoðar. „Fólk getur komið á skrifstofuna og bókað þannig eða hringt og fengið að- stoð við netbókunina en þá er nauðsynlegt að hafa rafrænu skilríkin eða íslykilinn meðferðis.“ Að eiga og leigja Sjóðurinn á bústaði á nokkrum stöðum, þrír í Brekkuskógi í Biskupstungum, einn í Vaðnesi í Grímsnesi, tveir við Hreðavatn í Borgarfirði, einn á Húsafelli. Þá er hús í eigu sjóðsins á Kirkjubæjarklaustri. Næsta sumar kemur húsið í Svignaskarði inn. „Þetta er samskonar hús og húsin þrjú í Brekkuskógi en þó heldur stærra, 50 sentimetrum breiðara, sem gerir húsið allt heldur rýmra. Verktakinn er sá sami og byggði húsin þrjú í Brekkuskógi og húsið á Húsafelli. Húsið er staðsett á mjög vel skipulögðu orlofshúsasvæði þar sem góð þjónustumiðstöð er til staðar. Borgar- fjörður er eitt vinsælasta orlofshúsasvæði landsins, og húsin okkar tvö við Hreða- vatn hafa komið mjög vel út. Við erum því mjög ánægð með þessa fjárfestingu.“ Hús og íbúðir sem sjóðurinn býður upp á eru ýmist í eigu sjóðsins eða tekin á leigu. Jörundur segir það góðan kost þegar eftirspurnin er bundin við hluta ársins. „Við höfum leigt nokkur hús og íbúðir yfir orlofstímann þegar eftirspurnin er hvað mest og reynslan hefur sýnt okkur að það er skynsamlegt. Það er ekki skyn- samlegt að eiga húsnæði þar sem nýtingin er aðeins í þrjá til fjóra mánuði á ári og restina af árinu er bara lokað og læst. Sú var raunin með orlofshús sem við áttum austur á Héraði og einnig hús sem við áttum í Reykjadal í Þingeyjarsýslu. Við seldum bæði þessi hús. En við höfum aftur á móti komið til móts við eftirspurn með því að leigja orlofshús á Héraði yfir sumarið og það hefur komið ágætlega út.“ Sjóðurinn leigði á sínum tíma íbúð í Kaupmannahöfn, í Barcelona, Alicante og Strassborg fyrir félagsmenn. „Þetta kom „Gestabókin er ekki nettengd“ – segir Jörundur Kristinsson formaður orlofssjóðs LÍ Nýjasta hús félagsins er í Brekkuskógi en í vor verður samskonar hús, örlítið stærra þó, tekið í notkun í Svignaskarði í Borgarfirði. Mynd Jörundur Kristinsson.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.