Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2015, Side 42

Læknablaðið - 01.02.2015, Side 42
Félag áhugamanna um sögu læknis- fræðinnar fagnaði 50 ára afmæli sínu þann 18. desember síðastliðinn. Af því tilefni var efnt til málþings á Læknadögum undir yfirskriftinni Heilbrigði og Skaftáreldar 1783. Fyrirlesarar voru tveir, Ólöf Garðars- dóttir prófessor flutti erindið „Mannfall í kjölfar Skaftárelda 1783-1785“ og breski prófessorinn og rithöfundurinn Richard Hamblyn flutti erindið „The Year of the Ashie“. The Volcanic fog of 1783. Formaður félagsins, Óttar Guðmunds- son geðlæknir, setti málþingið og rakti í stuttu máli söguna og minntist aðalhvata- mannsins að stofnun þess, Jóns Steffensen prófessors. Í erindi Ólafar Garðarsdóttur komu fram ýmsar fróðlegar tölfræðilegar upp- lýsingar um áhrif Skaftárelda á búsmala og mannfólk á Íslandi og erfitt er fyrir nútímafólk að gera sér hugarlund hversu skelfilegt ástand skapaðist hér á landi í kjölfar náttúruhamfaranna. Ungbarna- dauði margfaldaðist og var hann þó ærinn fyrir. Dánartíðni í öðrum aldurshópum margfaldaðist einnig en hungursneyð ríkti á landinu enda féllu nær 90% af sauðfjár- stofni landsmanna og ríflega helmingur nautgripa. Athygli fundargesta var vakin á því að konur virtust þola hörmungarnar betur en karlar og sagði Ólöf ekki einhlíta skýringu á því. Segja má að ekki hafi ein báran verið stök, því árið eftir eldsum- brotin geisaði bólusótt í landinu og felldi marga enda viðnámsþróttur þjóðarinnar í lágmarki eftir viðvarandi hungur og vergang. Ekki var síður fróðlegt erindi Richards Hamblyn en hann sagði frá áhrifum Skaftárelda á Bretlandi og meginlandi Evrópu. Yfirskrift erindis hans segir hluta sögunnar þar sem sumarið 1783 var ein- stakt í sögunni, öskuský lá yfir Evrópu í 2-3 mánuði samfleytt, lofthiti var meiri en sögur höfðu áður farið af og síðan varð veturinn eftir sá kaldasti í manna minnum. Áhrif öskuskýsins á heilsufar fólks í Evrópu voru veruleg en dánartíðni snarhækkaði af völdum ýmissa pesta og sýkinga, sérstaklega öndunarfærasýkinga, og urðu lágstéttirnar verst úti eins og viðbúið var. Hamblyn sagði að heimildir um þetta „sumar öskunnar“ í Evrópu væru fjölmargar, dagbókarskrifarar í Englandi, Frakklandi og Ítalíu lýstu veðurfari af nákvæmni og sögðu varla sjást til sólar svo dögum skipti, loftið var þurrt og fúlt svo sveið í lungun og kirkjunnar menn hvöttu fólk til að gera yfirbót enda væri þetta refsing af himnum ofan fyrir spillt líferni mannfólksins. Hamblyn dró upp sterka mynd af þeim ótta sem skapaðist U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R 110 LÆKNAblaðið 2015/101 Mannfall á Íslandi – sólarlaust í Evrópu ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Fundarstjórinn Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir, Óttar Guðmundsson, Ólöf Garðarsdóttir og Richard Hamblyn. Pétur Eggerz flutti brot úr leikverkinu Eldklerkurinn Jón Steingrímsson.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.