Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2015, Side 44

Læknablaðið - 01.02.2015, Side 44
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R 112 LÆKNAblaðið 2015/101 Að velja sérgrein er ein stærsta ákvörðun sem læknanemar standa frammi fyrir að grunnnámi loknu. Ýmsir þættir hafa áhrif á valið, eins og laun, vinnutími og vakta- álag, nánd við sjúklinga og möguleikar til rannsókna. Einnig má ætla að vinnuum- hverfi og aðstæður hér á landi eigi ríkan þátt í að móta val á sérgrein. Í þessu greinarkorni kynnum við niðurstöður könnunar sem ætlað var að varpa ljósi á hvaða sérgreinar vekja mestan áhuga læknanema hér á landi. Könnun á áhuga læknanema á sérgreinum Á haustdögum 2013 buðum við læknanem- um við Háskóla Íslands að svara könnun um áhuga þeirra á sérgreinum innan lækn- isfræðinnar. Könnunin var send á netföng 301 læknanema á öllum námsárum og hlekkur á hana birtur í hópi læknanema á samfélagssíðunni Facebook. Könnunin var nafnlaus og aðgengileg í rúma viku. Alls bárust svör frá 205 læknanemum, 86 körlum og 119 konum, svarhlutfallið var 68%. Fáir læknanemar höfðu þegar ákveðið hvaða sérgrein þeir ætluðu að velja að grunnnámi loknu, eða aðeins um 13% svarenda. Einn hugði ekki á sérnám í læknisfræði. Læknanemar voru beðnir að velja af lista eina sérgrein sem þeir höfðu mestan áhuga á (mynd 1). Þeir sem völdu lyflækningar eða skurðlækningar voru beðnir um að tilgreina eina undirsérgrein af lista (mynd 2 og mynd 3). Skurðlækningar vinsælastar Flestir sögðust myndu velja skurðlækning- ar, eða rúmur þriðjungur svarenda (mynd 1). Af þeim 71 sem völdu skurðlækningar voru 36 karlar og 35 konur. Af undirsér- greinum skurðlækninga voru almennar skurðlækningar og hjartaskurðlækningar vinsælastar (mynd 2). Val kynjanna á und- irsérgreinum var nokkuð líkt. Bæklunar- skurðlækningar skáru sig þó úr þar sem 8 karlmenn völdu þá grein en aðeins tvær konur. Konur voru hins vegar í meirihluta þeirra sem völdu heila- og taugaskurð- lækningar. Lyflækningar Á eftir skurðlækningum höfðu flestir læknanemar áhuga á lyflækningum, eða rúmur fimmtungur (mynd 1). Það voru 45 sem völdu greinina, 23 konur og 22 karlar. Hjartalækningar voru vinsælasta undir- sérgreinin, tæplega þriðjungur valdi þær (mynd 3). Athygli vekur að afar fáir völdu lungnalækningar, meltingarlækningar og nýrnalækningar. Ekki var teljandi munur á kynjunum í vali á undirsérgreinum að undanteknum krabbameinslækningum, en aðeins konur völdu þá grein. Aðrar sérgreinar Alls sögðust 35 læknanemar (17%) hafa áhuga á að sérhæfa sig í barnalækningum (mynd 1), tveir þriðju voru konur. Athygli vekur að eingöngu konur völdu geðlækn- ingar og fæðinga- og kvensjúkdómalækn- ingar en aðeins karlar völdu myndgrein- ingu og svæfinga- og gjörgæslulækningar. Niðurlag Undanfarna áratugi hefur hlutur kvenna í læknastétt farið vaxandi og nú eru kon- ur meirihluti læknanema við læknadeild. Rannsóknir hafa sýnt að val á sérgreinum er að miklu leyti kynbundið. Hér á landi hefur hlutfall kvenna eftir sérgreinum ver- ið svipað og víða erlendis, hæst í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum en lægst í skurðlækningum og bráðalækningum.1 Athygli vekur að í þessari könnun voru konur helmingur þeirra læknanema sem Eyþór björnsson eyb8@hi.is Sigrún Tinna Gunnarsdóttir Ívar Marinó lilliendahl Öll læknanemar á 5. ári í Háskóla Íslands Hvaða sérgreinar vekja mestan áhuga læknanema? Mynd 1. Áhugi læknanema á sérgreinum í læknisfræði.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.