Læknablaðið - 01.02.2015, Page 45
LÆKNAblaðið 2015/101 113
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Mynd 3. Áhugi á undirsérgreinum lyflækninga.
hafði mestan áhuga á skurðlækningum.
Þetta er ánægjulegt í ljósi þess að hlutfall
kvenna í skurðlækningum á Íslandi er
enn afar lágt. Undanfarin ár hafa konur
í auknum mæli sótt í skurðlækningar en
þær voru um fimmtungur íslenskra skurð-
lækna í sérnámi árið 2010.2 Því er útlit fyrir
að konum í skurðlækningum haldi áfram
að fjölga í framtíðinni.
Þegar könnunin var lögð fyrir, á haust-
dögum 2013, blasti við afar erfitt ástand
á lyflækningasviði þar sem mannekla og
mikið álag á sérfræðinga var í algleymingi.
Erfitt er þó að henda reiður á hvort þessar
þrengingar hafi haft áhrif á viðhorf lækna-
nema til sérgreina lyflækninga.
Rétt er að hafa hugfast að fæstir lækna-
nemar höfðu gert upp hug sinn um val á
sérgrein í framtíðinni. Því má telja líklegt
að áhugasvið þeirra kunni að breytast
með breyttu námsumhverfi og áherslum
í námi, frá einu námsári til annars. Því er
erfitt að spá fyrir um endanlegt val þessa
hóps læknanema á sérnámi í framtíðinni.
Heimildir
1 Haraldsson Þ. Norðurevrópskt þing kvenna í læknastétt.
Kynjamunur í heilsu helsta umræðuefnið. Læknablaðið
2005; 91: 857-9.
2. Guðbjartsson T, Viðarsdóttir H, Magnússon S. Menntun,
starfsvettvangur og framtíðarhorfur á vinnumarkaði
íslenskra skurðlækna. Læknablaðið 2010; 96: 603-9.
Mynd 2. Áhugi á undirsérgreinum skurðlækninga.
Okkur vantar svæfingalækna í Danmörku.
Nýir starfsmöguleikar í hópi alþóðlegra sérfræðinga með fagmennsku í fyrirrúmi.
Anæstesiologisk Center – á Sjúkrahúsi Suðurjótlands, býður nú þennan
möguleika og auglýsir lausar til umsóknar, stöður svæfingalækna. Við erum
framsækin deild með 25 svæfingalækna sem hlakka til að bjóða nýja kollega
velkomna. Við bjóðum upp á stóran sveigjanleika í ráðningum. Þannig er
mögulegt að sækja um fastar stöður eða, ef það hentar betur,
afleysingarstöður. Ráðningar í afleysingarstöður verða þó minnst til 6
mánaða í einu til að tryggja faglegan stöðugleika í læknateyminu.
Við leggjum áherslu á að nýtt starfsfólk fái ýtarlega kynningu á sjúkrahúsinu,
faglegu umhverfi, sérgreinum sjúkrahússins, og möguleikum til faglegrar
starfsþróunar og rannsókna.
Okkur er annt um að nýr starfskraftur aðlagist nýju umhverfi sem best. Því
leggjum áherslu á að þú fáir góða kynningu á danska heilbrigðiskerfinu sem og
danskri menningu.
Við bjóðum þér aðstoð með allt þetta praktíska, danskt lækningaleyfi,
húsnæði, stuðning við að finna vinnu fyrir maka, barnapössun, mögulega
frístundaiðkun og tengslanet. Að sjálfsögðu bjóðum við einnig faglega aðstoð
við að nýta sem best þá kosti danska skattakerfisins sem lúta að erlendum
sérfræðilæknum.
Starfsvettvangur svæfingasviðs er innan skurðstofu, gjörgæslu, neyðarbíls og
bráðamóttöku og er staðsett á tveimur sjúkrahúsum, í Sønderborg og
Aabenraa. Þess utan sinnum við svæfingum fyrir geðsvið, röntgendeild og
hjartadeild.
Allar nánari upplýsingar um stöðurnar og sjúkrahúsið veita:
Centerchef Lars Demant, tlf. +45 30660356, e-mail: lars.demant@rsyd.dk.
Klinikleder Siv Leivdal, tlf. +45 24804576, e-mail: siv.leivdal@rsyd.dk.
Klinikleder Christian Bruun-Mogensen, tlf. +45 24804570, e-mail:
christian.bruun-mogensen@rsyd.dk.
Athafnasvæði Sygehus Sønderjylland er á Suður Jótlandi. Hafir þú áhuga á að
kynna þér Suður Jótland nánar er hugsanlega ráð að horfa á stutta
kynningarmynd hér „Destination Sønderjylland” (3 mín). Hafir þú áhuga á
meiru, þá er hér almenn kynning á hvað Danmörk hefur upp á að bjóða séð
með augum aðfluttra „Denmark - Your Future Career Destination?” eða á
heimasíðu „Talent Attraction Denmark“ .
www.sygehussoenderjylland.dk