Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 59
a T V i n n a Hvað sinnir Sjúkrahús Akureyrar mörgum sjúklingum á ári? Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) sinnir árlega um 5800 inniliggjandi sjúklingum og um 4800 dagsjúklingum. Rúmlega 16.000 komur eru á slysa- og bráðamóttöku. Hvert er þjónustusvæði sjúkrahússins? Hver er íbúafjöldi? Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Blönduósi og að Neskaup- stað. Íbúafjöldi upptökusvæðisins er um 35.000 manns. Hvað starfa margir á sjúkrahúsinu? Starfsmenn sjúkrahússins eru um 580 í um 450 stöðugildum. Til gamans má geta þess að meðallífaldur starfsmanna var 47,4 ár í lok árs 2013. Konur eru 86% starfsmanna og karlar 14%. Starfsmanna- velta árið 2013 var aðeins 5,4% þannig að hollusta við sjúkrahúsið er mikil. Hver eru markmið og gildi sjúkrahússins? Til dæmis hvað varð- ar starfsumhverfi og einnig gagnvart sjúklingum? Unnið er eftir gildunum þremur: Öryggi – samvinna – framsækni. Í samræmi við framtíðarsýn sjúkrahússins er unnið að því að þjónusta við sjúklinga sé til fyrirmyndar, biðtími sé stuttur og sjúklingar ánægðir. Einnig að sjúklingar séu upplýstir og taki virkan þátt í ákvörðunum um eigin meðferð. Þá er unnið ötullega að því að sjúkrahúsið sé framsækinn og eftirsóknarverður vinnu- staður þar sem umhverfi til rannsókna og þróunar er hvetjandi og öflugur vísindasjóður er til staðar. Hver eru helstu verkefni sjúkrahússins? Að veita sérhæfða sérfræðiþjónustu á Norður- og Austurlandi. SAk er kennslusjúkrahús fyrir nemendur í heilbrigðisfræðum. Þá sinnir sjúkrahúsið einnig læknisþjónustu við sjúkraflug. Hvað starfa margir nemar á sjúkrahúsinu hverju sinni? Um það bil 13-14 nemar eru hér í viku hverri á ársgrundvelli og er aukning á hverju ári. Eins og áður sagði eru þetta nemendur í flestum greinum heilbrigðisfræða. Er þörf á enn fjölbreyttari heilbrigðisþjónustu? Mikilvægast er að styrkja þá þjónustu sem þegar er til staðar en einnig að vera vakandi fyrir því að mæta þörfum samfélagsins. Þar má til dæmis nefna að koma á fót blóðskilun og að fjölga augnaðgerðum og aðgerðum vegna kvensjúkdóma. Er vöntun á mannauði? Á hvaða sviðum helst? Skortur á sérfræðilæknum er vaxandi vandamál. Þar má nefna almennar skurðlækningar, bæklunarskurðlækningar, barnalækn- ingar, geðlækningar og almennar lyflækningar. Yfirstandandi kjaradeilur lækna virðast einnig ætla að hafa áhrif á mönnun unglækna. Þá er farið að bera á skorti á sérhæfðum hjúkrunar- fræðingum. Hver er framtíðarsýn Sjúkrahúss Akureyrar? Framtíðarsýnin felst í því að Sjúkrahúsið á Akureyri er miðstöð sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á Norður- og Austurlandi auk þess sem stefnt er að því að starfsemin hér verði alþjóðlega vottuð árið 2017. Hvað hefur stofnunin yfir mörgum sjúkrabílum að ráða og hvað óku þeir marga km árið 2013? Engir sjúkrabílar eru á vegum sjúkrahússins. Slökkvilið Akur- eyrar rekur þjónustu sjúkraflutninga fyrir hönd Akureyrarbæjar. Hvað tóku ljósmæður ykkar á móti mörgum börnum árið 2013? Á SAk fæddust 409 börn í 404 fæðingum árið 2013. Líklegt er að fæðingar verði um 430 á árinu 2014. Hversu mörg sjúkraflug eru farin frá sjúkrahúsinu? Árið 2013 voru farin 475 sjúkraflug en það stefnir í að þau verði að minnsta kosti 100 fleiri árið 2014. StarFSmaNNaStjórar TEKNIR Á BEINIð ■ ■ ■ Sigdís Þóra Sigþórsdóttir Elsa b. friðfinnsdóttir hjúkrunarfræðingur er mann auðs stjóri Sjúkrahúss Akureyrar LÆKNAblaðið 2015/101 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.