Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 79
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 79
SUMARIÐ ER TÍMINN
Jeppa ferð ir efst ar á blaði. Gunn ar Karl Guð munds son, for stjóri Skelj ungs.
Kemst tæp ast nær nátt úr unni. Pét ur J. Ei ríks son.
„Starfs ins vegna er ég oft á
ferða lög um er lend is og því reyni
ég að vera sem mest inn an lands
þeg ar frí stund ir gef ast. Þá eru
jeppa ferð ir um há lend ið efst ar á
blaði. Það er ár leg ur við burð ur
hér á bæ að bjóða er lend um
birgj um og lán ar drottn um í jeppa-
ferð um há lend ið. Í fyrra var lagt
af stað frá Eg ils stöð um inn að
Kára hnjúk um, kom ið við í Hafra-
hvamms gljúfr um og gist í Kverk-
fjöll um. Dag inn eft ir var hald ið til
Ak ur eyr ar, með al ann ars með
við komu í Herðu breiða lind um og
við Mý vatn,“ seg ir úti vista mað-
ur inn Gunn ar Karl Guð munds son
for stjóri Skelj ungs.
„Ég hef ferð ast bæði með
vinnu fé lög um, vina hópn um og
fjöl skyld unni og er bú inn að fara
um mest allt land ið. Svæð ið suð-
vest ur af Vatna jökli; Skæl ing ar,
Skaft ár tung ur, Lak ar og Langisjór
er í miklu upp á haldi. Þá er leið in
fram hjá Keld um að Hung ur fit um,
um Krók og Þver ár botna og nið ur
Fljóts hlíð ina afar skemmti leg dag-
leið frá Reykja vík. Mik ið út sýni
með tign ar legu lands lagi og leið in
þokka lega greið fær. Hér áður var
kapps mál mitt að kom ast sem
víð ast yfir og aka þær slóð ir sem
voru mest krefj andi. Þetta hef ur
breyst. Nú fer ég hæg ar yfir og vil
njóta þess sem ég sé.“
Um hverf ið
er sí breyti legt
Á fót viss um
ferða hesti
„Mað ur kemst tæp ast nær nátt úr unni en á
hest baki og fær öðru vísi sýn á land ið. Ég
set slík ar ferð ir í flokk með skíða ferð um og
veit ekki betri leið en þessa til að end ur hlaða
sig,“ seg ir Pét ur J. Ei ríks son, fram kvæmda-
stjóri Icelanda ir Cargo. „Núna bein ist hug ur inn
að Fjörð um og Norð ur-Þing eyj ar sýslu. Í fyrra
fór um við í Land manna helli og -laug ar og
höf um sömu slóð ir í bak hönd inni ef Norð ur-
land ið geng ur ekki upp. Þar eru enda laus ar
reið leið ir. Góð ur ferða hest ur þarf að efl ast
með hverj um deg inu. Vera dug leg ur með
góð an vilja, hafa rúma ferð á tölti, vera þýð ur
á brokki og vel fót viss.“
GUNNAR KARL GUÐMUNDSSON:
PÉTUR J. EIRÍKSSON: