Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 44
44 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
mikill styrkur fyrir hana í starfinu. Það má því
segja að hún hafi verið heppin að koma inn
í stöðugt og þróað umhverfi þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur haft hreinan meiri-
hluta frá upphafi. Meirihlutinn er blanda af
gömlu, reyndu fólki í bæjarstjórn og nýju,
fersku fólki, en í sameiningu hefur hann siglt
fram hjá öllum meiriháttar uppákomum.
Þeir eldri veita ráð um hvað skal varast
en hún kemur með ferskleikann og hefur
hæfileikana og klókindin til að laða fram
það besta frá öllum. „Það skal samt enginn
halda að hún sé skaplaus enda er hún mjög
föst fyrir ef henni þykir þess þurfa,“ segir
einn samstarfsmanna Ásdísar Höllu.
Úti í náttúrunni
Í frítíma sínum hefur Ásdís Halla unun af að
ganga á fjöll og að vera úti í náttúrunni eða
ferðast með fjölskyldunni. Einn vina hennar
segir hana einmitt mjög
duglega við að búa sér
til tíma til að vera með
fjölskyldunni þrátt fyrir
miklar annir.
Hún fylgist einnig
vel með stjórnmálum,
jafnt hér heima og á
hinum Norðurlönd-
unum, Bretlandi og
Bandaríkjunum. Þá
les hún mjög mikið,
einkum fræðirit og þá
helst það sem snertir
stjórnun og stjórnun-
arfræði, en minna af
skáldsögum.
Ásdís á góðan og sterkan vinkvennahóp
sem samanstendur af nokkrum konum í
Sjálfstæðisflokknum. Þær kenna sig jafnan
við veitingastaðinn La Primavera, en þar
hittast þær reglulega, borða saman og ræða
málin. Mest samskipti hefur hún við borgar-
fulltrúann Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
en af öðrum konum í þessum hópi má
nefna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra, Grétu Ingþórsdóttur,
framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, Ragnheiði Elínu Árnadóttur,
aðstoðarmann fjármálaráðherra, og fleiri.
Traustur vinur
Ásdís Halla er að sögn
vina ofsalega trygglynd
og traustur vinur vina
sinna. Hún á ekki stóran
vinahóp, en fjölda kunn-
ingja. „Það er ekki til
betri manneskja til að
leita til, ef maður vill
hreinskilnislegt mat á einhverju. Það er
helst að hún sé of hreinskilin því hún segir
manni nákvæmlega hvað henni finnst,“ segir
ein vinkvenna hennar. „Aftur á móti er hún
alltaf glöð og skemmtileg og lítur aldrei á
verkefni sem vandamál, heldur viðfangsefni
sem þarf að leysa, sem er mikill kostur.
Meira að segja þegar ég sagði henni að ég
vorkenndi henni að þurfa að fara að pakka
niður á skrifstofunni sinni, því það hlyti að
vera heilmikið mál eftir fimm ára starf, þá
svaraði hún því til að
henni þætti það bara
mjög skemmtilegt. Það
væru svo margar góðar
og skemmtilegar minn-
ingar sem rifjuðust
upp í leiðinni.“
Ein af vinkonum
Ásdísar segir hana
vera dálítið hvat-
vísa og hrif-
næma. Hvað
það varðar geti
hún verið mjög
tilfinningarík.
Til dæmis fór
hún eitt sinn sem oftar í kirkju. Þar
hafði hún setið og hlustað andaktug
á prestinn og boðskap hans. Þegar
heim kom hringdi hún upprifin í
vinkonu sína og sagðist vera búin
að finna út hvað hún ætlaði að gera í
lífinu, en það væri að vera prestur.
Sterk fjölskylda
Ásdís Halla hefur mjög sérkennilegan
bakgrunn þar sem hún hefur flutt oft
á milli staða og landa, en hefur þar af
leiðandi ótrúlega aðlögunarhæfni og er
alltaf tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Þá er
hún óhrædd við að endurnýja sjálfa sig,
fer yfir skoðanir sínar
og veltir upp nýjum
flötum á þeim. Þá hefur
þessi bakgrunnur gert
það að verkum að hún
á auðvelt með að setja
sig í spor annarra, skilja
aðstæður þeirra og
sýna umburðarlyndi.
Ásdís er vel gift og ánægð í sínu nánasta
umhverfi. Hún kynntist eiginmanni sínum í
Háskólanum og að sögn vinkonu hennar var
hún strax viss um að hann yrði maðurinn
sinn, enda eigi þau mjög vel saman. Fjöl-
skyldan og vinirnir eiga sinn ákveðna sess í
hennar lífi og væri hún líklega ekki það sem
hún er í dag ef ekki hefði verið fyrir góða
fjölskyldu. Foreldrar hennar hafa veitt henni
mikið svigrúm í gegnum tíðina, en mikill
samgangur er á milli þeirra.
Það er hins vegar misskilningur að Ásdís
sé búin að skipuleggja allt sitt líf, segir sjálf-
stæðiskona: „Ég hef verið spurð að því hvort
Byko sé einhver liður í einhverju stærra ferli
hjá Ásdísi, en það er ekki svo. Hún lítur ekki
á það sem útgönguleið úr stjórnmálum og
inn í atvinnulífið eða eitthvað slíkt. Hún hefur
aldrei litið svo á að hún hafi byrjað í
stjórnmálum. Hún veltir því heldur
ekki fyrir sér hvort þetta sé skref
upp á við, niður á við eða til
hliðar. Þetta er einfaldlega
nýtt viðfangsefni.“
N Æ R M Y N D - Á S D Í S H A L L A B R A G A D Ó T T I R
Nafn: Ásdís Halla Bragadóttir.
Aldur: 36 ára. Fædd 6. júlí 1968.
Maki: Aðalsteinn E. Jónasson hrl.
Fjölskylda: Þau eiga tvö börn; Jónas
15 ára og Braga 6 ára.
Nám: Stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands og meistaragráða í opinberri
stjórnsýslu frá Harvard háskóla árið
2000.
Starf: Forstjóri Byko frá 27. maí
eftir að hafa verið bæjarstjóri í
Garðabæ frá árinu 2000.
Ásdís Halla er ein af þeim
manneskjum sem þurfa
stöðugt viðnám. „Ef það fer
að róast í kringum hana þá
fer hún að leita að nýjum,
ögrandi verkefnum.“
Áræðni, þekking og samstillt átak eigenda og
stjórnenda hefur gert Exista ehf. að öflugu fjár-
festingarfélagi sem stefnir á aukin umsvif. Félagið
leggur megináherslu á að vera kjölfestufjárfestir innan
valinna atvinnugreina. Með það í huga skoðum við
fjárfestingarkosti jafnt hér á landi sem erlendis.
Ef kosturinn er álitlegur, þá erum við til.
w w w . e x i s t a . i s
Við erum til
Exista ehf.
Tjarnargata 35
101 Reykjavík
Sími 550 8600
Fax 550 8699