Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
Glazer er „þögli
Ameríkaninn“, sem lætur
helst aldrei sjá sig. Hann
er 76 ára og hataður af
aðdáendum Manchester
United. Kannski er það
vegna þess að hann er
„guð minn almáttugur;
Ameríkani“.
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
GLAZER GERIR ALLA VITLAUSA
YFIRTAKAN Á MANCHESTER UNITED:
C
helsea-áhangendur tóku á móti
Rússanum Roman Abramóvitsj
með opnum örmum. Man U-áhang-
endur eru hins vegar harmi slegnir
að Ameríkaninn Malcolm Glazer
slái eign sinni á þeirra lið. Hvernig má þetta
vera?
Það eru margar hliðar á málinu og bresk
blöð hafa gert því skil á forsíðum, íþrótta-
síðum, viðskiptasíðum og fréttasíðum að
ógleymdum öllum lesendabréfunum, og ljós-
vakamiðlarnir hafa heldur ekki slegið slöku
við. Það heyrðist jafnvel taut frá bresku
stjórninni um að það þyrfti nú kannski
að setja lög gegn slíku, en það verður nú
tæplega í bráð.
Manchester United er ekki fyrsta enska
liðið sem er keypt af peningamönnum.
Amstrad-auðjöfurinn Alan Sugar, meira að
segja Sir Alan, á Tottenham og Mohamed
Fayed á Fullham.
Það segir óneitanlega sína sögu að
Abramóvitsj borgaði ekki „nema“ 150
milljón ir punda fyrir sitt stúkusæti og liðið
með, meðan Glazer dugir ekki minna en 790
milljónir fyrir Man U-pakkann. Munurinn er
hins vegar sá að Abramóvitsj borgaði með
vasapeningunum sínum en Glazer þarf að
taka lán.
Hver er Malcolm Glazer?
En hver er þessi Malcolm Glazer sem fer úr
súper í premíer? Hann er eiginlega „þögli
Ameríkaninn“, lætur helst aldrei sjá sig og er
að sögn 76 ára. Sonur hans Joel sér að mestu
um Man U-umsvifin. Sá gamli auðgaðist á
fasteignum og verktakastarfsemi, ekki allt
jafn fallegt, segja sumir, en sneri sér að