Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 59
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 59
þurrhreinsanir; þvottavélar og fleira. Iðnaðardeild kom aftur inn
fyrir nokkrum árum og þá var áherslan lögð á bragðefni og fleira
fyrir matvælaiðnaðinn. Út frá því þróaðist áhuginn á að selja skyr;
við stofnuðum fyrirtæki sem heitir Agrice en það er í eigu Austur-
bakka, Mjólkursamsölunnar, Flóabúsins og FCC í Skotlandi.
Meiningin er að kenna og aðstoða menn við að hefja framleiðslu á
íslensku skyri erlendis og að þeir borgi okkur svo þóknun. Fram-
leiðsla hefst í Bretlandi á næsta ári.“
Árni Þór segir að Austurbakki hafi verið sett á hlutabréfa-
markaðinn fyrst og fremst til að aðskilja fyrirtækið og „okkur
sjálfa“ og á hann þar við sig sjálfan og Valdimar Olsen. „Og líka til
að það yrði auðveldara fyrir okkur þegar við hættum vegna þess að
aðgangur að fjármagni var ekki auðveldur til uppbyggingar þangað
til fyrir svona þremur árum. Með þessu aukna fjármagni var húsið
byggt sem starfsemin er í í dag, auk þess sem við stækkuðum
fyrirtækið. Það var heldur ekki sjálfgefið að börnin hefðu áhuga á að
taka við fyrirtækinu. Verðbréfamarkaðurinn var að byrja á þessum
tíma og þetta lofaði góðu. Hins vegar varð stöðnun og Austurbakki
hefur verið í langan tíma eina fyrirtækið á hlutabréfamarkaðnum
sem flytur inn neytendavörur. Það hefur ekki verið gaman að vera
á markaðnum. Því fylgir mikil vinna og kostnaður. Það góða við
markaðinn er aftur á móti fagleg vinnubrögð í kringum bókhald og
stjórnun.“
Fjölbreytt og skemmtilegt
Árni Þór segir að þeir Valdimar hafi í nokkur ár reynt að kaupa
deildir af Atorku sem nú hefur keypt Austurbakka. Báðir aðilar
sáu hagræðingu í sameiningu fyrirtækjanna og ýmsar hugmyndir
voru ræddar. Í apríl bauðst forsvarsmaður Atorku, Styrmir Þór
Bragason til að kaupa þá Árna Þór og Valdimar út úr Austurbakka.
Þetta tók 3 daga og voru engir bankar og lögfræðingar viðstaddir.
Þeir slógu til.
Aðspurður um hvað sé eftirminnilegast þegar hann líti um öxl
segir Árni Þór: „Afnám bankastimplunar. Á meðan hún var við líði
gat ég ekki leyst vöru út, sem ég hafði pantað frá útlöndum, fyrr en
ég var búinn að fá stimpil frá Seðlabankanum og búinn að greiða
vöruna. Rökin fyrir því að þetta þyrfti að vera voru þau að það
var verið að passa að engir kæmu slæmu orði á Ísland með því
að lenda í vanskilum erlendis. Fyrirtækið okkar óx hægt áður en
þetta gerðist. Þetta pirraði okkur mikið.
Þetta tryggði líka stöðu gömlu fyrirtækjanna sem höfðu
pólitískan aðgang að fjármagni en kannski takmarkað hugmynda-
flug. Þetta var kvóti og skömmtun í fyllstu merkingu!
Þetta er búið að vera fjölbreytt og skemmtilegt starf. Í gegnum
starfið er ég búinn að kynnast fólki út um allan heim og á vini mjög
víða. Í síðustu viku var ég t.d. að heimsækja vínekrur í Kaliforníu
hjá vínframleiðandanum Robert Mondavi í Napa-dalnum með
góða gesti, en Austurbakki flytur inn vín frá honum.“
Árni Þór mun verða ráðgjafi hjá Austurbakka næsta eina og
hálfa árið en hann og Valdimar eru báðir stórir hluthafar í Atorku-
félaginu. „Ég fékk borgað bæði í hlutafé í Atorku og peningum – og
á því hagsmuna að gæta.“