Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 58

Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 F aðir minn, Árni Árnason, var deildarstjóri bíladeildar SÍS 1967. Þá hafði Dunlop-umboðið farið á hausinn og föður mínum, sem dreymdi um að fara út í sjálfstæðan rekstur, var boðið umboðið í gegnum breska sendiráðið. Hann fékk auk þess umboð fyrir ETHICON seymi, sér deild sem er hluti af Johnson & Johnson, einu stærsta fyrirtæki í heiminum á heil- brigðissviði. Í byrjun var aðaláherslan á Dunlop sem skiptist í fjölda deilda á iðnaðarsviði, svo sem dekk, slöngur, gólfflísar, skódeild og íþróttadeild. Það fór fljótlega að halla undan fæti hjá Dun- lop og búið að brytja það „í búta“ en hjá Austurbakka var stefnan fljótlega tekin á heilbrigðissviðið og var fyrirtækið leiðandi í innflutningi á einnota vörum þegar byrjað var að flytja þær inn til landsins,“ segir Árni Þór Árnason. Árni Þór var nemandi við Verzlunar- skóla Íslands þegar hann fékk áhuga á viðskiptum. Hann vann hjá föður sínum samhliða náminu og oft las hann skólabækurnar á biðstofum bankastjóra „vegna þess að ég var að ná stæði fyrir pabba í röðinni“. Þessi hlið þótti honum ekki spennandi. „Flestir forstjórar heild- verslana í Reykjavík voru kannski að eyða tveimur morgnum í viku að reka á eftir vörukaupavíxlum.“ Hann hóf nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands eftir stúdentspróf en lauk ekki námi; hætti á fyrsta ári þar sem hann festi kaup á skóbúð, Skóbúð Suðurvers. „Skóbúðin var að sigla í gjaldþrot og enginn vildi kaupa hana. Það endaði með því að við kvöldverðarborðið eitt kvöldið spurði pabbi hvort ég væri ekki tilbúinn til að kaupa hana; ég þyrfti ekkert að leggja út en ég þyrfti að borga skuldirnar sem væru á henni. Ég fékk að borga þessar skuldir á þremur árum. Ég fór í febrúar á stóra skósýningu í Bologna á Ítalíu. „Það var svo mikið af pappír á borðinu mínu þegar ég kom til baka og ég er ennþá að vinna það upp. Ég réð konu í búðina og fór fljótlega að vinna hjá Austurbakka. Þetta var árið 1973 og ég hef verið hérna síðan.“ Árni Þór rak skóbúðina í fimm ár. „Það var ekki mikill gróði af þessum rekstri en þegar ég seldi gátum við hjónin flutt úr tveggja herbergja íbúð í Keflavík í fjögurra herbergja íbúð í Norðurbænum í Hafnarfirði.“ Í upphafi sá Árni Þór einn um lækningadeild Austurbakka en starfsmenn voru þá fimm. Í dag starfa um sextíu manns hjá fyrirtækinu. Foreldrar Árna Þórs flutti til Vaccaville í Kaliforníu í Bandaríkjunum árið 1982. Þar komst faðir hans í samband við ýmis fyrirtæki sem Austurbakki er enn í samstarfi við. Árni Þór og mágur hans, Valdimar Olsen, tóku við fyrirtækinu en hann hefur séð um fjármálin. ,,Tvö faxtæki voru keypt um jólin 1983; eitt á Íslandi og eitt í Kaliforníu. Við sendum pantanir til Bandaríkjanna á faxi en Austurbakki var eitt af fyrstu fyrirtækjunum á Íslandi þar sem var faxtæki. Þetta var algjört sparitæki og þurfti starfsfólk leyfi til að nota það. Áður tók um hálfan mánuð eða meira að senda pöntun til Bandaríkjanna. Vac- cacille varð þannig safnstöð fyrir vöru- afgreiðslu okkar. Orðið „safnsending“ var ekki einu sinni til. Cargolux var byrjað að fljúga frá San Francisco til Lúxemborgar og þaðan til Keflavíkur. Það var gerður tímamótasamingur við þá og Flugleiðir sem fluttu vörurnar til Íslands fyrir fimm dollara á kíló. Í dag kostar kílóið í flugfrakt til Íslands innan við tvo dollara. Fyrsta árið sem pabbi og mamma bjuggu úti var veltan 100.000 dollarar en síðasta árið sem pabbi rak EASTBANK TRADING var hún orðin milljón dollarar. Hann hætti 1991, fór á eftirlaun og flutti til Flórída. Þar er ódýrara að búa og miklu styttra til Íslands, en þau hafa verið dugleg að koma heim, tvisvar til þrisvar á ári. Einnig heim- sækjum við þau miklu oftar.“ Á hlutabréfamarkaðnum „Mynstrið sem unnið var eftir frá byrjun byggðist á því að það væri mikið að gera allt árið. Við vorum með ákveðnar vörur sem voru seldar á vörukaupavíxlum og þær vorum við að selja allt árið þannig að það var ákveðin velta þar. Hjúkrunarvörurnar voru alltaf greiddar með peningum en það gat tekið langan tíma að fá greitt fyrir þær hjá ríkinu. Ríkið var venjulega búið með peningana í september þannig að við þurftum að vera með einhverja jólavöru. Þetta var viðskiptamódelið.“ Austurbakki flytur nú inn íþróttavörur - s.s. Nike-vörur - og lækningavörur og fyrir tilviljun var farið að flytja inn vín. Við gerðum breska sendiráðinu þann greiða að leysa út auglýsingavörur sem áttu að fara á uppboð. Erlendi birgirinn reyndist vera William Grants sem framleiðir samnefnt víský og Glenfiddich maltviský. Út frá lækningavörunum þróaðist svo lyfjadeild og síðar líftæknideild. „Á sínum tíma hættum við með iðnaðardeildina þegar við seldum frá okkur Dunlop-vörurnar auk þess sem við vorum með vöru fyrir TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYND: GEIR ÓLAFSSON HORFT UM ÖXL SELDI HLUT SINN Í AUSTURBAKKA: Árni Þór Árnason, fyrrverandi forstjóri Austurbakka, og meðeigandi hans, Valdimar Olsen, hafa nú selt hlut sinn og er 63,5% eignarhluti þeirra kominn í eigu Atorku. Á R N I Þ Ó R S E L D I H L U T S I N N Í A U S T U R B A K K A
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.