Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 72

Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 SUMARIÐ ER TÍMINN Öryggismiðstöð Íslands býður viðskiptavinum sínum fjöl-þættar lausnir og má einu gilda á hvaða sviði það er. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að bjóða lausnir fyrir sumarhúsaeigendur, en nú er einmitt runninn upp sá tími að fólk sæki þangað til að eiga góða daga í sveitasælunni. Þeir geta þó snúist upp í algjöra andhverfu sína hafi fólk ekki varann á. „Fyrir lítinn pening er hægt að setja upp einfalt kerfi sem lætur strax vita ef eitthvað kemur fyrir bústaðinn,� segir Ómar Örn Jónsson, sviðsstjóri sölusviðs Öryg- gismiðstöðvar Íslands. Hann leggur áherslu á, hvað öryggi í sumar- húsum áhærir, að hætturnar felist í mörgu fleiru en bara innbrotum. Tjón vegna vatns, kulda og elds geti einnig haft í för með sér veru- legar skemmdir. Myndavélakerfin algengari Þeim stóra hópi sumarhúsaeigenda, sem leitar til Öryggismiðstöðvar Íslands, bjóðast lausnir í kerfi sem byggir á þráðlausum einingum og er keyrt á GSM-boðskiptum. Þessar lausnir eru sveigjanlegar, einfaldar í uppsetningu og geta sinnt margþættu hlut- verki. Hægt er að fá hreyfi- og reyk skynjara, gas-, hita- og vatnsnema og loftrakaskynjara svo eitthvað sé nefnt. Þá má með GSM setja ofna af stað, án þess að fara á staðinn. „Núna eru væntanlegar á markað myndavélar sem tengjast við þráðlausa kerfið þannig að skoða má myndir úr bústaðnum á Netinu eða í gegnum GSM-síma,“ segir Ómar Örn. „Myndavélakerfi í sumarhúsabyggðum verða æ algengari, einfaldari og ódýrari og einstaklingar sem hafa fjárfest duglega í sumarhúsum vilja verja það með myndavélum.“ Hvernig ganga eigi frá sumarhúsi svo að hætta á innbrotum sé í lágmarki segir Ómar byggjast á einföldum reglum sem allir ættu að hafa skrifaðar upp á vegg við útihurð. Grunnatriði sé að hyggja vel að vatni, rafmagni og tækjum. Vatnstjón geti verið mjög alvarleg - sem og tjón vegna frosts ef rafmagnshitun bilar eða rafmagn slær út. Heldur hættu í lágmarki „Þá er lykilatriði að loka vel öllum gluggum, draga gardínur fyrir og ganga þannig frá húsinu að það verði ekki girnilegt fyrir innbrotsþjófa. Það er ríkt í okkur Íslendingum að treysta náunganum og halda að innbrot geti ekki hent okkur. Þetta er reginskyssa. Reynslan sýnir að innbrotsþjófar velja síður sumarhús með öflugum öryggiskerfum. Þá er mikilvægt að hafa í huga að bregðast þarf fljótt við til að hindra frekara tjón, t.d. af völdum vatnsleka, bruna og svo framvegis. Þessari hættu halda öryggiskerfi í lágmarki, rétt eins og val þúsunda heimila og sumarhúsaeigenda sýnir best. Því ættu allir sem vilja hugleiða þessi mál frekar að hafa samband við ráðgjafa okkar hjá Öryggismiðstöð Íslands,“ segir Ómar Örn Jónsson. Innbrot, eldur, leki og kuldi geta valdið tjóni í sumarhúsinu. Öryggismiðstöð Íslands býður marg- þættar lausnir, sem verða æ ódýrari og einfaldari. „Hægt að setja upp einfalt kerfi sem lætur strax vita ef eitthvað kemur fyrir bústaðinn,� segir Ómar Örn Jónsson, sviðsstjóri sölu- sviðs Öryggismiðstöðvar Íslands. Öryggismiðstöð Íslands: Tryggir öryggi í sumarhúsum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.