Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
Sannarlega þungar blikur þegar tekjur af
miðasölu og auglýsingar eru hryggurinn í
rekstri klúbbanna.
Sérstaða Man U er að aðhaldssamur
rekstur og skuldleysi gerir félagið að girni-
legri fjárfestingu, en kannski felst mesta
aðdráttaraflið í því hvað liðið er gríðarlega
þekkt og hefur tök á að selja endalaust af
bolum og öðru dóti um allan heim.
Almennt eru fótboltafjárfestingar þó
taldar áhættusamar – eða eins og einn fjár-
málarýnir sagði í viðtali við Financial Times:
„Þetta eru ekki fjárfestingar fyrir ekkjur og
munaðarleysingja.“
Skuldsett yfirtaka
En hvað ætlar Glazer sér, í nýju landi,
frammi fyrir vægast sagt fjandsamlegum
stuðningsmönnum? Það skelfilegasta er,
finnst áhangendunum, að hann ætlar sumsé
að gera félagið að einkaeign sinni – og velta
um 500 milljón punda láni, sem fjármagnar
kaupin, yfir á félagið. Frá því að vera skuld-
laust verði það nú skuldum vafið eins og
skrattinn skömmunum, en Glazer heldur því
fram að skuldunum verði aðeins að hluta
velt yfir á félagið.
Þetta getur hann gert í dýrlegu boði
bankanna sem fjármagna kaupin því þeir sjá
ekkert athugavert við þessa skuldsetningu í
ljósi talnanna. Á þeim forsendum er þetta
allt hið besta mál – segja þeir. En afskipti
bankanna eru líka orðin hluti af yfirtöku-
sögunni.
Bankinn sem stendur eins og klettur
að baki Glazers er JP Morgan Chase, en
aðrir bankar koma við sögu, þar á meðal
Landsbankinn og Kaupþing eins og fram
hefur komið. Glazer-fjölskyldan mun reiða
fram 272 milljónir punda, þar á meðal hlut-
inn sem hún á þegar. 275 milljóna punda
verður aflað með skuldabréfum og fjárfest-
ingarfélagið Red Football, í eigu fjölskyld-
unnar, mun afla lána, einkum frá JP Morgan
Chase.
Meðan yfirtakan var að komast á kopp-
inn og Man U-áhangendur sem reiðastir
var JP Morgan Chase með fínan kvöldverð
í Manchester Art Gallery þar sem nokkrir
æstir stuðningsmenn mættu óboðnir til að
ræða málin. Sagan segir að það hafi ekki
aðeins hnútur flogið um borð heldur hafi
víni verið skvett áður en lögreglan batt enda
á innrásina. Það er kannski ekki viturlegt að
fara á Man U-leik á næstunni í peysu merktri
þeim bönkum sem fjármagna Glazer.
Ráðgjafi stjórnar Man U undanfarin
misseri er fjármálafyrirtækið Cazenove. Í
febrúar komst á formlegt „joint venture“
samband milli Cazenove og JP Morgans.
Nú er Sir Roy Gardner stjórnarformaður
Man U illur út í Cazenove því það sé með
öllu óverjandi að Cazenove, sem JP Morgan
á helminginn í, hafi sinnt yfirtökunni fyrir
hönd Man U, því stjórnin hafi verið henni
mótfallin. David Mayhew, stjórnarformaður
JP Morgan Cazenove, segir engan hags-
munaárekstur þarna því kaup Glazers séu
ekki fjandsamleg yfirtaka.
Sorrí; meinti ekkert með þessu…
Mayhew bendir einnig á að samband Glaz-
ers og JP Morgans hafi verið komið á fyrir
löngu og varði því ekki hið nýja JP Morgan
Cazenove – og hnýtir því svo aftan við að
hann hafi í raun aldrei óskað eftir að ráðleg-
L U N D Ú N A P I S T I L L
Abramóvitsj borgaði ekki
„nema“ 150 milljónir punda
fyrir sitt stúkusæti og liðið með,
á meðan Glazer dugir ekki
minna en 790 milljónir fyrir Man
U-pakkann. Munurinn er hins
vegar sá að Abramóvitsj borgaði
með vasapeningunum sínum en
Glazer þarf að taka lán.
Yfirtaka Malcolms Glazers er svonefnd „skuldsett yfirtaka“, hann lætur félagið sjálft taka
lán til að standa straum að kaupunum.