Frjáls verslun - 01.08.2006, Qupperneq 192
192 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
eru íslenskir og þar eru höfuðstöðvar fyrirtækisins sem
flytur reyndar smávegis inn til Íslands.
Ekki bara fiskur
Fiskur er þó að hluta til undirstaða, segir Govare, en
áherslan er samt víðari. „Við stefnum á að vera leiðandi á
Evrópumarkaði í framleiðslu afurða munaðarmatvara og
tilbúinna kældra rétta sem teljast til munaðarvara. Hluti
framleiðslunnar er fiskur en alls ekki eingöngu heldur
leggjum við líka áherslu á svæðisbundin hráefni eins og
andalifur. Eins og er skiptist framleiðslan í fjórar megin-
stoðir: reyktan lax og afurðir úr honum, andalifur og aðrar
andaafurðir, blini (rússneska klatta) og smurálegg, rækjur
og rækjuafurðir.
Sem stendur einbeitum við okkur að þessum fjórum
stoðum: að afla besta hráefnisins, að vöruþróun, fram-
leiðslutækni og markaðssetningu. Þó við einbeitum okkur
á þessum fjórum sviðum um þessar mundir er aldrei að
vita hvað verður eftir þrjú til fjögur ár og við höfum hug á
að finna okkur fimmtu stoðina. Við stefnum að vexti í þá
átt, hvort sem verður innan þeirra fyrirtækja sem við eigum
þegar eða með því að kaupa fyrirtæki – hvort tveggja kemur
til greina.
Viðskiptamódel okkar er einfalt, við leitumst við að
vaxa á þessum fjórum sviðum sem við höfum markað
okkur. Á hverju ári bætum við framleiðslutækni okkar og
tækjabúnað og erum á toppnum þar. Okkar framleiðsla er
sú nútímalegasta á öllum þessum fjórum sviðum. Við erum
ötulir að koma fram með nýjar afurðir og auka markaðs-
hlutdeild okkar. Styrkur okkar er að við kunnum vel fyrir
okkur í þessum efnum og aukum þar með verðmætin í
fyrirtækinu fyrir hluthafana – eins og ég álít vera hlutverk
mitt sem forstjóri.“
– Hvernig skiptist fiskframleiðslan eftir vörum og stöðum?
„Reykti laxinn er 40% af framleiðslu okkar. Um 50% af
laxinum er frá Noregi, 35-40% frá Skotlandi og afgang-
urinn frá Írlandi og Alaska. Við notum lax veiddan í troll,
ekki netalax því netin skemma áferð fisksins svo það er ekki
hægt að reykja hann – hann verður allur blettóttur. Laxinn
vinnum við fyrst og fremst í Skotlandi. Rækjurnar koma
frá Suður-Ameríku og Austurlöndum fjær – við vinnum
hitabeltisrækju.
Framleiðslulöndin eru þrjú, Frakkland, Spánn og Bret-
land, þar hafa fyrirtæki í eigu Alfesca byggt upp sína
starfsemi svo að þarna liggja sögulegar skýringar að baki.
Þar eru líka mikilvægir markaðir okkar en auk þess flytjum
við út til Benelux-landanna, Sviss og Ítalíu þar sem er mikill
áhugi á vörum eins og okkar – en annars flytjum við út til
fjörutíu landa um allan heim.“
– En Ísland er ekki með í myndinni?
„Nei, við seljum reyndar smávegis á Íslandi en íslenski
markaðurinn er lítill á þeim sviðum sem við störfum á.
Hvað varðar framleiðsluna þá framleiðum við kældan mat
með stutt geymsluþol. Ef við værum til dæmis að framleiða
rækjuafurðir á Íslandi þá væri geymslutíminn að renna út
þegar þær vörur kæmust á markað úti – það er alltof dýrt
að senda svona vöru með flugi.“
– Eru neytendur meðvitaðir um muninn á villtum laxi og
eldislaxi?
„Já, um tíu prósent af okkar laxi er villtur og við merkjum
hann sérstaklega. Það verður þó að segjast að hann er bæði
dýrari en eldislaxinn og fellur ekki endilega í kramið hjá
neytendum hér í Evrópu. Flestum þykir hann of magur og
því um leið of þurr, auk þess sem hann er öðruvísi á litinn,
fölleitari, en eldislaxinn.“
X A V I E R G O V A R E , F O R S T J Ó R I A L F E S C A
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
Y
D
D
A
Y
1
2
8
.
2
/
S
Í
A
Stálslegið öryggi
B
E
D
C
O
&
M
A
T
H
IE
S
E
NÖryggisskáparnir frá Rosengrenseru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem eru í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.