Ægir

Volume

Ægir - 01.11.2004, Page 54

Ægir - 01.11.2004, Page 54
54 S Ö F N „Það er óhætt að segja að báta- húsið hafi gjörbreytt okkar aðstöðu. Safnið er stærra og meira en áður hefur verið gert í sjó- minjavörslu á Íslandi og mér sýn- ist að miðað við sýningarrými sé Síldarminjasafnið eitt þriggja stærstu safna á landinu,“ segir Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri. Næg verkefni næstu árin Örlygur segir að með vígslu báta- hússins sl. sumar hafi stórum áfanga verið náð í uppbyggingu Síldarminjasafnsins. Með því hafi í raun lokið þeirri uppbyggingu sem lagt var af stað með á sínum tíma. Hins vegar væri gaman að geta haldið áfram. Ágætt rými sé á safnlóðinni til þess að bæta þar við húsi eða húsum. Örlygur nefndi að Síldarminjasafnið ætti gamalt íbúðarhús á Eyrinni á Siglufirði, sem áhugavert væri að flytja á lóð safnsins, en það ber yf- irbragð síldaráranna. Í því er hús- búnaður frá þessum tíma svo og vísir að vélsmiðju. „Verkefnin erum næg hér næstu árin, en þau ráðast fyrst og fremst af þeim fjármunum sem við höfum yfir að ráða,“ segir Örlygur og tekur fram að bæði ríki og Siglufjarðar- bæ hafi sýnt uppbyggingu Síld- arminjasafnsins ómetanlegan skilning svo og fjölmörg fyrir- tæki, félagasamtök og einstak- lingar, svo einhverjir séu nefndir. Góð aðstaða til ráðstefnu- og fundarhalda Á efri hæð forskála bátahússins hefur verið útbúin aðstaða þar sem í framtíðinni verður aðstaða fyrir safngesti til að skoða kvik- myndir, bækur o.fl. Einnig er þarna prýðileg aðstaða til fundar- halda og ráðstefnuhalds. Far- manna- og fiskimannasambandið hélt fyrsta fundinn í þessum sal- arkynnum undir lok nóvember og lauk miklu lofsorði á aðstöðuna. Síðan var efnt til veislu í bátahús- inu, á bryggjunni inni á milli síldarbátanna. Umgjörð við hæfi. Stærsta árið í sögu Síldarminjasafnsins á Siglufirði til þessa: Aðsóknarsprenging Árið 2004 verður ritað með stóru letri í sögu Síldarminjasafnsins á Siglufirði. Þetta var árið sem bátahúsið var tekið í notkun, árið sem minnst var 100 ára afmælis síldarævintýrisins á Siglufirði og síðast en ekki síst árið sem safnið hlaut Evrópu safnaverðlaunin á sviði iðnaðar og tækni. Aðsóknina á safninu í ár má líkja við sprengingu. Gestirnir verða um áramót sem næst 14 þúsund, en hafa að jafnaði verið 6-7 þúsnd á ári undanfarin ár. Týr SK 33 fullbúinn til síldveiða á árunum kringum 1950. Háfurinn hangir í bómunni, siglingaljós, vantar og stög eins og þá tíðkaðist - tveir snurpunótabátar á síðunni með nótina um borð og allan eðlilegan búnað. Týr var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1946, einn af nýsköpunarbátunum í raðsmíðaverkefni á vegum nýsköpunarstjórnarinnar. Hét fyrst Skrúður í u.þ.b. eitt ár, svo Hrafn í stuttan tíma og loks Týr, lengi gerður út frá Ólafsvík og síðast í ein 25 ár frá Sauðárkróki. Skipið stundaði margvíslegar veiðar á sinni tíð og þar á meðal síldaveiðar með svipuðum hætti og hann er nú búinn til. Mynd: Steingrímur Kristinsson. Draupnir EA 70 búinn með reknetum til síldveiða. Draupnir var smíðaður úti á túni á Hauganesi við Eyjafjörð 1954 af öldruðum manni, Sigfúsi Þorsteinssyni og fór smíðin fram án rafmagnstækja eða teikninga en allt unnið af kunnáttu og hagleik. Miðað við tíma og aðstæður má ætla að þarna sé eitt síðasta skipið sem smíðað var með gamla hákarla- skipalaginu á Íslandi. Síðar var Draupnir gerður út frá Þórshöfn undir sama nafi og loks frá Vestmannaeyjum og hét þá Kristín VE 40. Mynd: Steingrímur Kristinsson. Safnahúsaþyrpingin á lóð Síldarminjasafnsins er orðin verulega glæsileg. aegirdes2004-11tbl 16.12.2004 12:41 Page 54

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.