Ægir

Volume

Ægir - 01.04.2009, Page 12

Ægir - 01.04.2009, Page 12
12 U M Æ Ð A N útvegsmálum er því mjög al- varleg og kallar á breytingar ef sjávarbyggðirnar eiga ekki að hrynja. Margt bendir til þess að aflaheimildir safnist á hendur fárra útgerða sem leggja skipum sínum til lönd- unar í útflutningshöfnunum og herða enn frekar á þensl- unni í atvinnulífinu þar, allt í nafni hagræðingar sem mun koma hart niður á þeim byggðum sem allt eiga undir veiðum og vinnslu sjávar- fangs. ... Sveiflur í þorskveið- um og framsal aflaheimilda milli verstöðva ógnar nú at- vinnulífinu og byggðunum. Við það verður ekki búið. Við verðum að snúa vörn og undanhaldi í sókn.“ Ræða Sturlu Böðvarsson vakti talsverða athygli og fékk mikil viðbrögð. Meðal þeirra sem brugðust við orð- um Sturlu var Einar Oddur Kristjánsson sem hafði m.a. þetta að segja um málið: „Það hlýtur hver einasti mað- ur sem er ekki blindur og heyrnarlaus að sjá að þetta hefur mistekist. Við hljótum og verðum að nálgast þessa hluti með opnum huga. Við verðum að vera reiðubúnir til þess að endurskoða allt, al- gjörlega frá grunni. Þetta er slík katastrófa sem býður okk- ar að við komumst ekki hjá því að taka á málinu nú þeg- ar.“ Einar Oddur benti einnig á að í stefnuyfirlýsingu þá nýrr- ar ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar væri kveðið á um að gera ætti sér- staka athugun á reynslunni af aflamarkskerfinu við stjórn fiskveiða og áhrifum þess á þróun byggða. „Ég sé enga ástæða til að bíða neitt með það að undirbúa slíka athug- un,“ sagði Einar Oddur af þessu tilefni í viðtali við Morgunblaðið 18. júní 2007. Fleiri sjálfstæðismenn sáu á þessum tíma ástæðu til að vekja athygli á sjávarútvegs- málum í ræðuhöldum á þjóð- arhátíðni árið 2007. Einn þeirra var þáverandi forsætis- ráðherra Geir H. Haarde sem sagði í ræðu sinni á Austur- velli þennan ágæta dag að vandinn í sjávarútvegi væri helsta úrlausnarefnið í ís- lensku þjóðlífi það árið. Geir taldi reyndar engar líkur á því að til væri í veröldinni annað og betra kerfi til að takmarka veiðarnar en það sem í daglegu tali er kallað kvótakerfið. Hann bætti því hinsvegar við að það væri ekki fullkomið og mætti ugg- laust bæta það og laga á margan hátt. Ég nefni þetta hér til að sýna að deilurnar um stjórn fiskveiða eru þvert á allar stjórnmálaskoðanir og þær rista djúpt í samfélagið allt. Sanngirniskröfum ekki fullnægt Eins og fram hefur komið þá tel ég að flestir landsmenn séu þeirra skoðunar að tak- marka þurfi aðgang að auð- lindum sjávar. Við getum deilt um það hvort rétt sé að veiða meira eða minna af ákveðinni tegund hverju sinni en við erum þó flest sammála um að ekki megi taka ótak- markað magn úr fiskistofnun- um. Flest erum við einnig sammála um að stýra beri veiðum og vinnslu þannig að sem mest hagkvæmni náist fram og að afraksturinn af nýtingu sjávarauðlinda nýtist samfélaginu öllu sem mest. Við erum held ég sammála um flest öll grundvallaratriði í því að nýta eigi fiskistofna við strendur landsins með sjálfbærum hætti. Það sem deilan stendur um er sá hluti kerfisins sem snýr að framsali veiðiheimilda og meintri eign útgerða á veiðiheimildum. Í rauninni mætti að mínu viti einfalda afstöðu þjóðarinnar til kvótakerfisins niður í það að rétt sé að takmarka að- gang að fiskistofnunum en í dag sé það hinsvegar gert með óréttlátum hætti. Réttlæt- is- og sanngirniskröfum er ekki fullnægt að mati meiri- hluta þjóðarinnar. Í samstarfsyfirlýsingu Sam- fylkingar og Vinstri grænna er kveðið á um að lög um stjórn fiskveiða verði endur- skoðuð. Sú endurskoðun mun snúa að því að reyna að leggja mat á það hvort við höfum nálgast þau markmið sem sett eru í núgildandi lög- um og nefnd eru hér að framan og þá í leiðinni hverju þarf að breyta til að þeim markmiðum verði náð. End- urskoðunin á jafnt að leiða til þess að ná betri árangri við stjórn fiskveiða og ekki síður því að ná sem mestri sátt um þessa mikilvægustu atvinnu- grein okkar Íslendinga. Það er löngu kominn tími til að fara yfir þessi mál af fullri einlægni og í samstarfi við alla sem hagsmuna eiga að gæta. Rétti tíminn til að klára málið Fiskveiðistjórnunarkerfið er mesta deilumál síðustu ára- tuga á Íslandi að meðtöldum deilunum um Kárahnjúka, aðild Íslands að EES, rimm- unni um fjölmiðlafrumvarpið og endalausri umræðu um hugsanlega aðild Íslands að ESB. Deilumál ber að leiða til lykta sé þess nokkur kostur. Óleystar langvarandi þjóðfé- lagsdeilur eru hverju samfé- lagi skaðlegar. Deilur af því tagi sem hér um ræðir blossa upp með reglulegum hætti og mynda smám saman sár í samfélaginu sem erfitt getur orði að græða. Því ber okkur að leysa deilurnar um stjórn fiskveiða og því fyrr, því betra. Ég hef margsinnis á und- anförnum árum sett fram þá ósk mína að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi og stjórnmála- menn geti sest niður og rætt þessi mál af meiri yfirvegun en gert hefur verið til þess. Ég hef sjálfur óbilandi trú á því að hægt sé að ná sáttum um stjórn fiskveiða á milli sjávarútvegsins og þjóðarinn- ar og vil mikið á mig leggja til að svo geti orðið. Þjóð sem byggir afkomu sína að svo stórum hluta á fiskveið- um eins og við gerum, þarf að sameinast um farsæl og sanngjörn markmið í sjávarút- vegsmálum. Nú er rétti tíminn til að klára það mál. Björn Valur Gíslason alþingismaður og skipstjóri á Kleifabergi ÓF-2 „Við erum held ég sammála um flest öll grundvallar atriði í því að nýta eigi fiskistofna við strendur landsins með sjálfbærum hætti. Það sem deilan stendur um er sá hluti kerfisins sem snýr að framsali veiðiheimilda og meintri eign útgerða á veiðiheimildum.“

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.