Ægir - 01.04.2009, Side 56
56
N Ý T T F I S K I S K I P
Óskum útgerð og áhöfn Skinneyjar SF 20
til hamingju með glæsilegt skip
Skinney SF 20
Vagnhöfða 12 – 110 Reykjavík - Sími 567 2800 - mdvelar@mdvelar.is - www.mdvelar.is
máli að hafa yfir að ráða skip-
um sem geti stundað neta- og
snurvoðarveiðar sem útheimti
minni olíunotkun en botn-
vörpuveiðarnar. „Ef olíuverðið
rýkur á nýjan leik upp þá er
ég ekki í vafa um að útgerðir
eiga eftir að beina kastljósinu
enn frekar að netaveiðunum
og þeim útgerðarháttum sem
kalla á minni olíunotkun.
Systurbátarnir á Hornafirði eru
því mjög spennandi bátar fyrir
útgerðirnar. Mér heyrist líka
allir vera sammála um að
smíðin sé vönduð og hand-
bragðið allt mjög gott. Þannig
að þetta verkefni virðist hafa
tekist vel,“ segir Sævar og
bætir við að rafmagnsspilbún-
aðurinn marki skipunum
tveimur algjöra sérstöðu.
„Skipin eru smíðuð fyrir út-
gerð með blandaðar aflaheim-
ildir og á margan hátt eru þau
því útfærð út frá þörfum út-
gerðarinnar. En fyrst og fremst
eru þetta bátar sem hafa þann
möguleika að fara á þann
veiðiskap sem er hagkvæm-
astur hvað varðar olíueyðslu,“
segir Sævar.
Rafmagnsvindurnar marka
sérstöðu
Naust Marine í Hafnarfirði
hafði milligöngu um smíði
skipsins í Taiwan og hafði
með allan rafknúna spilabún-
aðinn að gera. Sjálf spilin eru
framleidd hjá Ibercisa í Vigo
á Spáni en Naust Marine sá
um stjórnbúnaðinn og Auto
Trawl kerfið. Helgi Kristjáns-
son, sölumaður hjá Naust
Marine, er ánægður með út-
komuna.
„Jú, mér heyrist allir vera
sammála um að vel hafi tekist
til og að smíðin sé góð. Stóra
málið í þessum skipum á
Hornafirði eru rafmagnsvind-
urnar sem eru nýjung í skip-
um af þessari stærð, auk þess
sem við vitum ekki til þess að
snurvoðarbátur hafi áður ver-
ið búinn rafmagnsvindum.
Hér á árum áður komu að
vísu togarar hingað til lands
frá Frakklandi búnir raf-
mangsspilum en núna eru
þetta alsjálvirk spil og talsvert
frábrugðin tæki því sem þá
var,” segir Helgi.
Hann segir engan vafa
leika á að útgerðir hafi auk-
Í fiskimóttökunnni. Ljósmynd: Sverrir Aðalsteinsson Í káetunni. Ljósmynd: Skipasýn
Lj
ós
m
yn
d:
S
ve
rr
ir
A
ða
ls
te
in
ss
on