Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.2009, Side 26

Ægir - 01.04.2009, Side 26
26 V I Ð T A L Fyrningarleið í sjávarútvegi er eitt af málum málanna í þjóð- félagsumræðunni nú um stundir, að minnsta kosti í sjávarútveginum og umhverfis hann. Báðir ríkisstjórnarflokk- arnir höfðu fyrningu afla- heimilda á stefnuskrám sínum fyrir kosningar í vor og stungu klausu um fyrningar- áform sín inn í sáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Það voru hins vegar ekki Samfylkingin og vinstri-grænir sem stuðluðu að því að gera fyrningarleið- ina að því umræðuefni sem hún er orðin í samfélaginu heldur Binni í Vinnslustöð- inni. Hann tók sig nefnilega til og lagði útreikninga og upplýsingar á hið opinbera fréttaborð nokkru fyrir kosn- ingar þar sem greind var fjár- hagsleg staða sjávarútvegsfyr- irtækja í smáum atriðum og stórum og áhrif fyrningarleið- arinnar á reksturinn, ef af yrði. Binni hafði sökkt sér niður í ársreikninga 15-18 stærstu fyrirtækjanna í sjávar- útvegi frá árunum 2001-2007 og fékk til viðbótar trúnaðar- upplýsingar frá sömu fyrir- tækjum til að skerpa mynd- ina. Síðar bætti hann við árs- reikningum fleiri félaga fyrir árið 2007 og var þá kominn með úrtak 40 fyrirtækja sem ráða yfir um 80% aflaheimila við landið. Úrtakið endur- speglar með öðrum orðum atvinnugreinina í heild sinni og í ljós kom að minni fyrir- tækin eru að jafnaði skuldugri en stærstu fyrirtækin. Það stafar af kaupum þessara fyr- irtækja á aflaheimildum í þorski til að vega upp á móti áhrifum skerðingar heildar- afla. Þau voru líka að kaupa til baka skerðingu á aflaheim- ildum vegna sértækra úthlut- ana ríkisstjórna til svokallaðra byggðatengdra verkefna, svo sem byggðakvóta, línuíviln- unar, sóknarmarks smábáta og annarra sértækra aðgerða. Þessi fyrirtæki í minni byggð- arlögum urðu þannig beinlín- is fyrir barðinu á byggða- tengdum stjórnvaldsaðgerðum sem ætlað var að styrkja hinar minni byggðir en leiddu hins vegar til þess að staða þeirra veiktist! Allt þetta og miklu fleira má lesa út úr öllu upp- Útvegsbóndi gerist þjóðhagsstofnun Fiskur unninn í einni af mörg- um tæknivæddum fisk- vinnslum hér á landi. „Ég gat ekki látið kyrrt liggja heldur vildi ég gera það sem ég gæti til að koma í veg fyrir að sjávarút- vegsfyrirtækjum yrði stútað í stórum stíl, eins og væri nú ekki nóg komið þegar þremur bönkum var stútað hér á einni viku.“

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.