Ægir - 01.04.2009, Page 36
36
N Ý S K Ö P U N Í S J Á V A R Ú T V E G I
þannig að þarna gætu verið
ýmsir möguleikar til að skoða
nánar.“
Nýsköpun verður úr fleiru en
er meira en rannsóknum
Sigríður segist ekki óttast að
hamfarir í efnahagslífi hér á
landi dragi úr nýsköpunará-
huga landsmanna. „Nei, það
held ég ekki. Mér finnst ég
skynja aukinn skilning fólks á
að nýsköpun er vítt hugtak
og felst ekki bara í rannsókn-
um eins og stundum mætti
ætla af umræðunni. Nýsköp-
un getur verið nýtt viðskipta-
módel eða að finna út nýja
notkunarmöguleika fyrir
þekkingu eða tæki sem þegar
eru framleidd. Marel er gott
dæmi um þetta þar sem
þeirra tækni, þróuð fyrir sjáv-
arútveg, nýtist líka fyrir kjöt-
framleiðslu og fleiri greinar.
Með öðrum orðum er um-
ræðan um nýsköpun að þró-
ast yfir víðara svið en áður og
það tel ég tvímælalaust já-
kvætt. Um leið og umræðan
og þekking manna á eðli ný-
sköpunar breytist þá þarf „in-
frastrukturinn“ sem styður við
nýsköpun, fjármagn og fleira
einnig að breytast. En ég er
þess vegna fullviss um að þó
sjávarútvegurinn sé nú þegar
sterk stoð í atvinnulífinu þá
er hægt að búa til mun fleiri
störf í greininni. Það voru þau
skilaboð sem lesa mátti út úr
ráðstefnunni í Reykjavík,“
segir Sigríður Þormóðsdóttir
hjá Norrænu nýsköpunarmið-
stöðinni í Osló.
Stórkaup er birgðaverslun fyrir skip,
fyrirtæki og endusöluaðila
Opið mánudaga-föstudaga 08:00-17:00 og laugardaga 08:00-13:00
Góður kostur fyrir skip!
Santa Maria er sannkölluð stórfjölskylda
sem kryddar tilveruna!
Munið
svo eftir
ávöxtunum
og grænmetinu!
FAXAFENI 8 108 RVK. • S: 567 9585
STORKAUP@STORKAUP.IS • WWW.STORKAUP.IS
Frá fiskvinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyringa á sínum tíma. Sigríður bendir á þróun í fiskvinnslutækni sem styrkleika sjávar-
útvegs hér á landi sem nýst geti til frekari nýsköpunar í framtíðinni.