Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2009, Blaðsíða 37

Ægir - 01.04.2009, Blaðsíða 37
37 S J Ó M E N N S K A N „Þessi túr er búinn að ganga ansi brösulega. Við verðum sjálfsagt ekki komnir inn fyrr en langt verður liðið á kvöld. Aflabrögðin eru hins vegar fín,“ segir Þórlinni Sævarson háseti á dragnótabátnum Agli ÍS. Stefán Egilsson gerir bát- inn út og er jafnframt skip- stjóri en í áhöfninni er valinn maður í hverju rúmi. Strákar sem hafa gaman að því að taka hraustlega til hendi og kunna að stíga ölduna í tvö- faldri merkingu þeirra orða. Egill ÍS er gerður út frá Þingeyri en vormánuðina er róið frá Ólafsvík og sótt í þorsk og ýsu. „Við höfum að undanförnu mest verið hér út við Jökul, á Vetrarbrautinni sem svo er stundum kölluð. Þangað er um það bil tveggja stunda stím héðan úr Ólafs- víkinni. Það er annars mjög misjafnt hvenær við leggjum af stað. Eina nóttina í síðustu viku fórum við út klukkan tvö en í morgun klukkan fimm enda megum við ekki setja veiðarfærin út fyrr en klukkan sjö á mánudagsmorgnum.“ Með einu hnífsbragði Fjórir eru í áhöfn Egils og þann tíma ársins sem róið er frá Ólafsvík liggur áhöfnin við í bátnum. „Ég er búinn að vera eitt ár til sjós,“ segir Þór- linni. „Ég er frá Þingeyri það- an sem ég fór fyrir fjórum ár- um suður á Selfoss þar sem ég vann við smíðar hjá verk- takafyrirtæki í ein þrjú ár. Þegar það ævintýri var úti fór ég aftur vestur og var þar í nokkur misseri, einnig við smíðar. Svo lauk því og þá varð ég að finna mér eitthvað nýtt til að starfa við. Hef svo sem aldrei verið atvinnulaus enda kom þetta tækifæri al- gjörlega upp í hendurnar á mér. Fór á sjóinn í fyrra og líkar alveg ljómandi vel. Launin eru líka þannig að starfið er eftirsóknarvert.“ Fulllestaður tekur Egill ÍS þrjátíu ker. „Við erum sjaldn- ast mjög lengi að fylla þau. En síðan koma inn á milli lengri dagar; lengsti túrinn hjá okkur var líklega einhverjir átján tímar, “ segir Þórlinni sem kveðst aðspurður vera orðinn býsna leikinn við að gera að fiskinum. „Við blóðg- um um borð og ég er farin að ná þessu með einu hnífs- bragði.“ Óviss framtíð Eftir að hafa starfað í bygg- ingarvinnu suður á Selfossi og víðar keypti Þórlinni sér hús á Þingeyri. Þar kveðst hann vilja vera, enda liggi all- ar sínar rætur þar. Þar hafi hann meðal annars gott tæki- færi til að stunda áhugamál sín, sem sé motorsport í víð- ustu merkingu. Framtíðar- plönin segir hann hins vegar næsta óviss, í öllu falli stefni hann þó ekki á stýrimanns- nám enda sé það að sínu mati engin trygging fyrir skipsrúmi. Hins vegar hafi allir strákar gott af því að prófa sjómennsku – þó ekki sé nema um skemmri tíma – hafi þeir áhuga. Allir hafa gott af því að prófa sjómennsku: Starfið er eftirsóknarvert - segir Þórlinni Sævarsson háseti á Agli ÍS Þórlinni Sævarsson. Þingeyringur í húð og hár líkar sjómennskan vel. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Skrúfupressur lofthreinsibúnaður - loftkútar - loftsíur lofttengibúnaður - loftþurrkarar Ýmsar stærðir! Hafið samand við sölumann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.