Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2009, Síða 40

Ægir - 01.04.2009, Síða 40
40 S J Á V A R Ú T V E G S N Á M Nú í vor var Sjávarútvegsmið- stöð formlega stofnuð við Há- skólann á Akureyri þegar und- irritaður var samningur þar um milli Háskólans á Akureyri og sjávarútvegsráðuneytisins. Hreiðar Þór Valtýsson, for- stöðumaður miðstöðvarinnar, segir að tilgangurinn sé að auka tengsl háskólans út í sjávarútveginn en sem kunn- ugt er býður skólinn nám í sjávarútvegsfræðum og hefur útskrifað um 150 manns úr því námi. Sjávarútvegsmiðstöðinni við Háskólann á Akureyri er ætlað er að styðja við þá stefnu Háskólans á Akureyri að efla tengsl atvinnulífs og skóla; styrkja gagnkvæm tengsl og rannsóknir svo og öflun og miðlun þekkingar innan sjávarútvegs. Markmið miðstöðvarinnar er að styrkja forystuhlutverk HA á sviði menntunar og rannsókna í sjávarútvegi með eflingu hag- nýtra rannsókna, verkefna og kennslu tengdri sjávarútvegi. Í því felst m.a. að efla sam- starf HA við atvinnugreinina, að stuðla að bættri ímynd sjávarútvegs meðal almenn- ings og eflingu náms í sjávar- útvegsfræðum við HA. Skýr markmið Sjávarútvegsmiðstöðin mun leitast við að ná markmiðum sínum með því að: • Afla og miðla upplýsingum til fyrirtækja og samstarfsað- ila. • Annast gerð rannsóknaráætl- ana og framkvæmd þeirra. • Stuðla að nýsköpun og styðja við frumkvöðlastarfs- semi í sjávarútvegi. • Stuðla að samvinnu við inn- lendar og erlendar rann- sóknastofnanir, svo og aðra aðila, um málefni er varðar sjávarútveg. • Standa fyrir ráðstefnum, um- ræðufundum, námskeiðum, fyrirlestrum og annarri fræðslustarfsemi. • Tengja nemendur HA við verkefni í fyrirtækjum. • Annast þjónusturannsóknir í eigin nafni. • Safna upplýsingum um sjáv- arútvegs í gagnagrunn sem nýtist í rannsóknum. • Standa fyrir útgáfu rita og söfnun bóka, tímarita og annars efnis um sjávarútveg. Liður í eflingu sjávarútvegsins „Með stofnunun Sjávarútvegs- miðstöðvarinnar styrkjum við ímynd okkar út á við í sjávar- útveginn, bæði á þann hátt að efla sjávarútvegsnámið okkar og tengja það betur út í atvinnulífið. Því til viðbótar erum við með rannsóknir hér hjá okkur sem sömuleiðis er ætlunin að tengja betur út í avinnulífið og ég sé fyrir mér eflingu á því sviði líka,“ segir Hreiðar og bætir við að hann og Hörður Sævaldsson, sem einnig er starfsmaður mið- stöðvarinnar, hafi nú þegar farið víða í heimsóknir úti í greininni og fengið góðar viðtökur. „Við höfum verið að reyna að kynnast íslenskum sjávar- útvegi beint í æð og vinnum þannig strax markvisst að þessum auknu tengslum. Heimsóknum okkar er und- antekningalaust mjög vel tek- ið og við finnum því fyrir mikilli jákvæðni,” segir Hreið- ar og bætir við að í gegnum tíðina hafi Háskólinn á Akur- eyri átt góð samskipti við greinina og hafi því á góðum grunni að byggja. „Allt miðar þetta í sömu átt, þ.e. að efla íslenskan sjávarútveg og við teljum okkur hafa hlutverk að rækja í þeim efnum.“ Kastljósið á sjávarúteginn meira en áður Hreiðar segir fyrirtæki al- mennt jákvæð fyrir að efna til verkefna af ýmsu tagi með HA, bæði nemendaverkefna og annarra verkefna sem geti skilað báðum aðilum árangri. „Í sjávarútvegi hafa menn lengi átt við ímyndarvanda- mál að etja en vegna ástands- ins hefur staðan svolítið breyst, kastljósið á sjávarút- veginn aukist. Menn eru með- vitaðir um að það er verið að gera margt gott í sjávarútvegi en engu að síður skynja ég mikinn nýsköpunarvilja, það að gera enn betur á sem flest- um sviðum. Þar getum við komið að málum sem stofnun sem rannsakar eða miðlar upplýsingum sem geta komið að gagni. En því má heldur ekki gleyma að nú njótum við þess að mjög margir starfandi sjávarútvegsfræðingar frá okkur eru komnir inn í fyrir- Ný Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur að markmiði að efla tengsl skólans og sjávarútvegsins: Finnum fyrir auknum áhuga á sjávarútvegsnáminu á nýjan leik - segir Hreiðar Þór Valtýsson, forstöðumaður Hreiðar leiðbeinir nemendum í stofnmælingarleiðangri á Eyjafirði.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.