Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2013, Page 54

Ægir - 01.09.2013, Page 54
54 F R É T T I R „Við seljum um þrjú tonn af kæstri skötu nú fyrir jólin, törnin byrjar alltaf um það bil viku fyrir Þorláksmessu. Salan byrjar hinsvegar miklu fyrr og við seljum raunar skötu allan ársins hring. Undirbúningur fyrir jólin byrjar þremur mán- uðum áður, sjálf verkunin. Í nóvember er svolítið um að fólk kaupi skötu til þess að taka með sér erlendis svo hægt sé að hafa almennilega skötuveislu á Þorláksmessu,“ segir Jón Garðar Sigurvinsson, eigandi Litlu Fiskbúðarinnar í Hafnarfirði. „Verkunin fer þannig fram að við setjum grindur í botn á kari svo það nái að leka vel fra skötunni. Síðan röðum við skötunni í karið þar til það er orðið fullt, og lokum karinu vel og vandlega, pössum að ekkert loft komist inn. Skatan er svo látin verkast í sjö til tíu vikur en ef hún á ekki að vera mjög sterk þá er hún höfð í styttri tíma. Það er hægt að fá skötuna mjög vel kæsta eða lítið, allt eftir því hvað hentar fólki. Við mæl- um með því að þeir sem eru ekki mjög vanir því að borða skötu kaupi sér lítið kæsta skötu og eins fyrir börn. Reyndar er ég þeirrar skoð- unar að skólar og mötuneyti ættu að bjóða meira upp á skötu, til þess að venja börn- in við. Þetta er herramanns matur og sjálfur borða ég hana allt árið, helst vel kæsta. Á sumrin grilla ég hana, set hana á álbakka með vatni og sýð hana á grillinu. Það geri ég oft og finnst það sérstak- lega gott í útilegum, þá pirrar maður ekki neinn með lykt- inni,“ segir Jón Garðar kím- inn. Skata í tonnavís fyrir jólin Skatan er skorin niður áður en hún er sett í kar, þar sem hún er geymd í sjö til tíu vikur. Að því loknu er hún orðin vel kæst og tilbúin á borð landsmanna á Þorláks- messu. Jóni Garðar í Litlu Fiskbúðinni þykir gott að grilla skötu. Hann segist selja um þrjú tonn af skötu fyrir jólin. SKIP LAND ALLT SKOÐUM UM Skipaskoðunarsvið Þínir menn í skipaskoðun -áratuga reynsla Stefán Hans Stephensen ..................s. 8608378 stefans@frumherji.is Axel Axelsson ...................................s. 8608379 axela@frumherji.is Einar Hilmarsson ...............................s. 8651490 einarjh@frumherji.is Guðmundur Hanning Kristinsson .....s. 8608377 BE TR I S TO FA N

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.