Ægir - 01.09.2013, Síða 62
62
K R O S S G Á T A
Ú T F L U T N I N G U R
Í nýrri skýrslu Sjávarklasans
um umfang sjávarútvegs á Ís-
landi í hagkerfinu kemur fram
að framlag til landsfram-
leiðslu var 28,4% árið 2012.
Þetta hlutfall hefur hækkað
úr 25,6% árið 2010. Áætlað
er í skýrslunni að sjávarklas-
inn standi nú undir 25-35
þúsund störfum eða sem svar-
ar 15-20% vinnuafls á Íslandi.
Útflutningsverðmæti íslenskra
sjávarafurða er talið hafa
veirð tæpir 270 milljarðar
króna í fyrra, eða meira en
nokkru sinni áður. Skýrsluhöf-
undar segja að saman hafi
farið lágt raungengi krónu og
hækkandi verð á mörkuðum,
auk bættrar aflanýtingar og
vaxandi getu íslenskra fyrir-
tækja til að bjóða verðmæta
vöru árið um kring.
Líftækni og aukaafurðir skila
milljörðum
Einn af þeim þáttum sem
tengjast sjávarútvegi og hafa
verið í sókn undanfarin ár er
fullvinnsla og nýting aukaaf-
urða sem falla til við hefð-
bundna vinnslu. Líftæknifyrir-
tæki falla undir þessa skil-
greiningu. Fram kemur að
heildarvelta helstu fyrirtækja
sem falli undir þessa hafi ver-
ið um 22 milljarðar í fyrra og
hafði aukist um 17% frá árinu
áður.
Svipaða sögu er að segja
um vöxt tæknifyrirtækja sjáv-
arklasans sem talinn er hafa
vaxið um 13% og hafa velt
um 66 milljöðrum króna.
Flutningar og tengd starfsemi
telja skýrsluhöfundar að hafi
vaxið um 17 milljarða í fyrra
en í prósentum talið er vöxt-
ur í fiskeldi hvað mestur eða
hátt í 60% milli ára. Greinin
er hins vegar lítil að umfangi
en mjög vaxandi, ef marka
má fjárfestingaráform í grein-
inni.
Aflaverðmæti upp úr sjó er
metið á 160 milljarða króna í
fyrra og hefur að raunvirði
farið vaxandi síðustu ár.
Framleiðni með því besta í
heiminum
„Framleiðni í íslenskum sjáv-
arútvegi er með því besta
sem gerist í heiminum og ís-
lensk sjávarútvegs- og fisk-
vinnslufyrirtæki leggja nú sí-
fellt meiri áherslu á fram-
leiðslu ferskra gæðaafurða og
hámarksnýtingu hráefnis, þó
alltaf megi gera betur í þeim
efnum. Þróun í átt að lóðréttri
samþættingu, þar sem ein-
stök fyrirtæki ná yfir og
stjórna fleiri þáttum virðis-
keðjunnar, hefur meðal ann-
ars gert þessa auknu verð-
mætasköpun mögulega og
bætt hæfni íslenskra fyrir-
tækja til að mæta þörfum við-
skiptavina sinna,“ segir í
skýrslu Sjávarklasans.
Vaxandi umfang sjávarútvegsins á Íslandi:
Verðmæti útfluttra afurða
hafa aldrei verið meiri
Sjávarútvegur á Íslandi er nú talinn standa undir 25-35 þúsund störfum.
Oddi fyrir þig, þegar hentar, eins og þér hentar.
Við óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja.
Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is