Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Qupperneq 76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
eyðingarinnar. Og vitanlega hlýtur
þetta þá að stafa af því, að menn hafi
komizt að raun um að þetta sem sagt
hefur verið um framhald lífsins sé
blekking og hindurvitni. Já ég skal
játa það, að ef það er víst, að ekk-
ert sé að marka neitt af því, sem okk-
ur hefur verið kennt um framhald lífs-
ins, ef það er þvert á móti víst að líf-
ið eigi sér ekkert framhald, þá má e.
t. v. segja að eins gott sé að það sé
þurrkað út. En ef Guð er til, ef hann
hefur sent okkur hingað til lífsins, ef
hann hefur ætlað okkur hlutverk hér
á jörð, þá er það glæpur gagnvart
Guði sjálfum að tortíma lífinu, og
hver sá sem það gerir, hann gerist sek-
ur við skapara sinn og herra. Á hverj-
um einasta helgidegi ársins er okkur
fluttur einhver sá boðskapur sem
stefnir í þessa átt, það er alltaf og á
öllum stundum ævinnar verið að
minna okkur á það, að við eigum að
þjóna lífinu, elska lífið og virða lífið.
En aldrei er það þó fremur en í páska-
boðskapnum að þessum fagra og há-
leita sannleika sé að okkur haldið. Já,
í páskaboðskapnum er okkur sýnt inn
í dýrðarheima Guðs, og okkur er sagt
það að þangað eigi hún að liggja leið-
in okkar, að endaðri vegferðinni hér.
Þessi boðskapur hefur um aldir orðið
til ómælanlegrar blessunar og hugg-
unar, þessi boðskapur hefur veitt okk-
ur þær björtustu og fegurstu vonir
sem hugsun okkar hefur af að segja.
Já þessi boðskapur hefur gefið okkur
þann þátt trúar okkar sem dýrmætast-
ur er, þann þáttinn sem aldrei bregzt,
sem tengir okkur við þá sem á undan
okkur voru og þá sem á eftir kunna
koma, hann tengir okkur þeim sem
við hér höfum orðið að sjá á bak, já
hann tengir okkur sjálfum Guði föð-
ur og sendiboða hans, frelsara okkar
mannanna Jesú Kristi. Og aldrei get-
um við til fulls þakkað þá dýrmætu
gjöf sem okkur er gefin þar sem hún
er þessi trú á lífið. Jú við eigum að
leitast við að þakka hana svo vel sem
við getum, og við eigum að gera það
með því að vinna fyrir lífið, fegra líf-
ið, vernda lífið, hlúa að því hvar sem
við fáum færi á. Við eigum að vinna
með Guði föður í baráttunni fyrir lif-
inu, baráttunni um lífið. Gefi það Guð
að við reynumst trúir þjónar til enda
daganna. — Amen.
66