Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Qupperneq 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Qupperneq 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Haustið er kornið handau yfir sæinn, allt gengur kuldans myrka valdi í haginn. Þannig fær allur fyrri hluti sonnettunnar sjálfstæðan heildarsvip bæði uin efni og form. En þó 8. lína svari þannig til 1. línu, er hún um leið upp'naf þeirr- ar stígandi sem við tekur í síðara hluta kvæðisins, stígandi sem rís æ hærra með hverri ljóðlínu unz hún nær hámarki með hinni mögnuðu endurtekningu: .„sigð — reidda sigð“ í Iokalínunum. í ferhendunum má heita að setningar og ljóðlínur standist á; en þegar kvæðið stígur í þríhendunum, raskast þessi sam- svörun: „Hann ... sér / fuglana hverfa burt...“, „ ... austan fer / annarleg nótt...“ Það er því líkast að kvæðið hafi ekki lengur tíma til að iaga sig eftir forminu; það er næstum einsog af tilviljun að orðin „sér“ og „fer“ lenda í rímstöðu þarna í leiðinni, þegar ljóðið rennur einsog lifandi samfelldur straumur eftir farvegi bragarháttarins. Þannig fær kvæðið um leið og það stígur, aukinn hraða, sem magnar þann dularfulla geig sem hríslast mjúklega gegnum allar síðustu línurnar, um leið og brár dagsins hafa lokizt aftur. Svo hnitmiðuð, traust og fögur er bygging þessa ljóðs. Þrátt fyrir óvenju stranga formfestu er framvinda ljóðsins svo frjáls og óþvinguð, að helzt minnir á list- dans, sem þó er svo mjúklátur í fasi, að hann verður aðeins stiginn á sjónsviði hugans af þeim leikendum einum sem hafa næmleik Heimdallar og heyra stráin fölna. Ég fletti blaði. — Kvæðið Rökkur. Ég lít yfir efni þess, áður en ég læt undirspil formsins verulega til sín taka. Skáldlegar myndir og líkingar streyma fram: Rökkurtómið rekur spor dagsins; skáldið finnur húmið setjast að í sál sinni; hann vill verjast nóttinni með því að leita að Ijósum streng á hörpu sinni. En það er feigðin sem er að þokast nær með sína nöpru ró. Og þá ákallar skáldið þann strenginn sem undinn er úr yndi hans og þrá, og biður hann líknar, að hann kveði fram nýjan morgun, að hann lyfti hljómi sínum úr hyl húmsins einsog bjartri rós. Svo les ég kvæðið aftur, og leyfi nú forminu að læða inní það töfrum sínum: Rykgratt rokkurtom rekur dagsins spor, ómlaust ilmlaust húm inni í sjálfum mér. 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.